Komu slösuðum skipverja til bjargar Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Neskaupstað og á Patreksfirði voru kölluð út í nótt og snemma í morgun til aðstoða tvo fiskibáta. 24.6.2024 11:54
Selja eintómt brauð á 3.190 krónur Ýmsir ráku upp stór augu í gær og í dag þegar þeir skoðuðu vefsíðu Dominos en þar er ný pítsa á matseðli sem ber heitið „Nakin pizza“. Nýja pítsan er án áleggs, án sósu og án osts. Brauðið kostar 3.190 krónur samkvæmt matseðli. 24.6.2024 10:32
Mbl.is liggur niðri eftir tölvuárás Árvakur varð í dag fyrir alvarlegri tölvuárás en af þeim sökum liggur vefur fyrirtækisins, mbl.is og útvarpsstöðin K100 niðri. 23.6.2024 17:01
Úlfar réðust á skokkara í dýralífsgarði 36 ára kona liggur nú á gjörgæslu í Frakklandi eftir að úlfar réðust á hana. Konan skokkaði frá húsinu sem hún dvaldi í í Thoiry-garðinum rétt fyrir utan París í dag og endaði fyrir slysni í dýralífsgarði sem á aðeins að vera opinn fyrir bifreiðar. 23.6.2024 16:05
Neyddust til að aflýsa flugferðum vegna rafmagnsleysis Öllum flugferðum til og frá tveimur stærstu flugstöðvunum á flugvellinum í Manchester-borg í Englandi var aflýst í dag vegna rafmagnsleysis í byggingu flugvallarins. Icelandair neyddist til að aflýsa flugferðum sínum til og frá Manchester í dag. 23.6.2024 15:10
Fara enn huldu höfði þrátt fyrir fjölda vísbendinga Mennirnir tveir sem brutust inn í veitingasal Brunnhóls á Mýrum í Hornafirði í gær og höfðu þaðan með sér öryggiskassa fara enn huldu höfði. Lögreglunni á Suðurlandi hefur borist þó nokkrar vísbendingar síðan að eigandi Brunnhóls birti myndskeið af mönnunum að fara ránshendi um gistihúsið. 23.6.2024 14:34
Segir öldrun þjóðarinnar eitt helsta áhyggjuefnið „Það er nánast ekki tekið tillit til þessa. Þegar ég hef verið að lesa gögnin þá kemur verulega á óvart hvað þetta fær litla umfjöllun og lítið vægi og á nokkrum stöðum hef ég fundið umfjöllun um það að þetta breyti ekki miklu til skamms tíma en þetta er bara að gerast núna.“ 23.6.2024 14:30
Landris gæti aukist en of snemmt að segja til um goslok Veðurstofa Íslands tilkynnti í gær að eldgosinu við Sundhnúkagígaröð, sem hófst þann 29. maí, væri sennilega lokið. Benedikt Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, segir of snemmt til að fullyrða um það og bendir á að goslok gætu haft áhrif á landris í Svartsengi. 23.6.2024 12:18
Beit stóran bita úr eyra eftir orðaskak á skemmtistað Tveir karlmenn eru í haldi lögreglu eftir að hafa ráðist á annan mann inni á salerni á skemmtistað á Laugaveginum í miðbæ Reykjavíkur. Átök mannanna hófust með orðaskaki þeirra á milli en endaði á því að einn maðurinn beit hluta úr eyra hins. 23.6.2024 11:49
Umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu samþykktar Alþingi samþykkti í gærkvöldi frumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra um umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu. Alls munu 95 prósent örorkulífeyrisþega fá hærri greiðslur í nýja kerfinu. 23.6.2024 09:54