Kauphöllin

Kauphöllin

Fréttir úr Kauphöllinni á Íslandi og af skráðum félögum á markaði.

Fréttamynd

Mega kaupa Öryggis­miðstöðina og Opin kerfi

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Ása, áður Símans, á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum. Samþykkið er þó háð því skilyrði að Öryggismiðstöðin bjóði ekki betri kjör á öryggisþjónustu ef kaupandi er í fjarskiptaviðskiptum við Símann.

Viðskipti innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Bláa lónið á markað í nóvember

Á hluthafafundi Bláa Lónsins hf. í dag var formlega samþykkt að efna til almenns hlutafjárútboðs og óska eftir töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á aðalmarkað Nasdaq Iceland. Hluthafar samþykktu einnig kaupréttaráætlun fyrir allt fastráðið starfsfólk samstæðunnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Óskiljan­legt“ að nær alltaf sé sjálf­kjörið í til­nefningar­nefndir fé­laga

Hluthafar skráðra félaga ættu að beita sér mun meira við val á fulltrúum í tilnefningarnefndir, að mati stjórnarformanns Íslandsbanka, sem þykir „óskiljanlegt“ af hverju sé nær undantekningarlaust sjálfkjörið í þær. Framkvæmdastjóri Birtu segir að innkoma tilnefningarnefnda hafi „stórbætt“ fyrirkomulagið um hverjir eigi að taka sæti í stjórnum skráðra félaga.

Innherji
Fréttamynd

Mikill sam­dráttur í fram­legð N1 dregur niður af­komu Festar

Mikill samdráttur í framlegð eldsneytissölu hjá N1 vó þungt í afkomu Festar á þriðja ársfjórðungi, sem var talsvert undir spám greinenda. Krónan skilaði hins vegar kröftugum rekstrarbata og var eini helsti starfsþáttur samstæðunnar sem var í takt við væntingar markaðaðarins.

Innherji
Fréttamynd

Til Ilulissat á Airbus með nýjum flug­velli

Nýr alþjóðaflugvöllur verður opnaður við Ilulissat, þriðja stærsta bæ Grænlands, í dag. Bæði Icelandair og Air Greenland hyggjast fljúga þangað á Airbus-þotum en hann er með 2.200 metra langri flugbraut, sem leysir af völl við hliðina með aðeins 845 metra langri braut.

Innlent
Fréttamynd

Arion telur byggingar­lána­safnið þola frekari verðlækkanir og söluta­fir

Hægari sala nýbygginga er ein helsta sértæka áhættan í útlánasafni Arion, sem fjármagnar um 15 til 20 prósent nýrra íbúða sem ætlaðar eru til sölu á markaði, en bankinn telur álagspróf sýna talsvert svigrúm til að mæta bæði sölutöfum og verðlækkunum á íbúðamarkaði. Arion skilaði yfir sextán prósenta arðsemi á þriðja fjórðungi, sem var í samræmi við spár, og var afkoman drifin áfram af kröftugum vaxtatekjum á meðan þóknanatekjur gáfu eftir við krefjandi markaðsaðstæður.

Innherji
Fréttamynd

Birta gott upp­gjör og hnýta í ríkis­stjórnina

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi er í samræmi við markmið að sögn bankastjóra. Hann segir áform stjórnvalda um að hækka bankaskatt um ríflega 75 prósent þó vera skammsýna ráðstöfun og það sé nauðsynlegt að til staðar sé framtíðarsýn um starfsumhverfi fyrirtækja. Skattahækkunin muni í tilfelli Arion banka nema um 1.700 milljónum á ári.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ein­skiptis­kostnaður skyggir á af­komu­bata í rekstri Ása

Uppgjör Ása, áður Símans, fyrir þriðja ársfjórðung sýnir merki um bata í undirliggjandi rekstri samstæðunnar en einskiptiskostnaður vegna yfirtaka og skipulagsbreytinga setti hins vegar talsvert mark á afkomuna, að sögn hlutabréfagreinenda. Tekjuvöxtur í fjarskiptastarfseminni reyndist meiri en vænst var og kostnaðaraðhald hefur batnað.

Innherjamolar
Fréttamynd

Af­kom­endur síðasta böðuls á Ís­landi búa enn á Illuga­stöðum

Afkomendur síðasta böðulsins á Íslandi búa enn á Illugastöðum á Vatnsnesi, á jörðinni þar sem morðin voru framin sem leiddu til þess að þau Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir voru hálshöggvin á Þrístöpum í Vatnsdalshólum árið 1830. Þetta var síðasta aftaka sem fram fór á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Vill setja fimmtungs­hlut í Lands­virkjun á markað til að laða að er­lenda fjár­festa

Framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs telur að skráning Landsvirkjunar á hlutabréfamarkað og sala á minnihluta í fyrirtækinu gæti laðað erlenda fjárfesta til landsins og gert íslenska markaðinn, sem sé núna „í þriðju deild í ensku“, að álitlegri fjárfestingarkost. Hann segir jafnframt að það sé ekki „góður bragur á því“ að haldnir hafi verið reglulegir óformlegir fundir stjórnar orkufyrirtækisins án þátttöku fráfarandi forstjóra og er þeirrar skoðunar að slíkt fyrirkomulag samræmist tæplega leiðbeiningum um góða stjórnarhætti fyrirtækja.

Innherji
Fréttamynd

Guð­ný Helga tekur við af Haraldi

Stjórn Skaga hefur samið við Harald I. Þórðarson, forstjóra félagsins, um starfslok en hann mun áfram gegna stjórnarstörfum innan samstæðunnar. Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS trygginga, verður æðsti stjórnandi samstæðunnar og mun leiða hana frá og með deginum í dag, samhliða því að stýra áfram VÍS tryggingum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Greiða hundruð milljóna króna sekt

Arion banki hefur fallist á að greiða 280 milljóna króna sekt vegna brota á reglum um verðbréfaviðskipti og fjárfestavernd. Bankinn gerði sátt við Fjármálaeftirlit Seðlabankans eftir að í ljós kom að hann hafði ekki tilkynnt um grunsamleg hlutabréfaviðskipti tveggja viðskiptavina á árunum 2022 og 2023, þrátt fyrir skýrar vísbendingar um mögulega markaðsmisnotkun.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sjá fram á aukin inn­grip seðla­banka og mikla hættu fyrir evru­sam­starfið

Sjóðstjóri Visku Macro, sem hefur einkum veðjað á fjárfestingar í málmum, hrávörum og innviðum tengdum gervigreind og orkuframleiðslu, telur að vaxandi skuldavandi ríkja muni knýja seðlabanka til aukinna inngripa á skuldabréfamörkuðum og varar við því að evrusamstarfið geti komist í verulega hættu. Erfitt verður að viðhalda háum raunvöxtum í skuldsettum hagkerfum án þess að það setji þrýsting á ríkisfjármálin og fjármálakerifð, að mati sjóðastýringarfélagsins, og því sé líklegt að ákall um aðgerðir fari vaxandi eftir því sem þau áhrif koma skýrar fram.

Innherji
Fréttamynd

Gagn­rýnir að ekkert bóli á að­gerðum varðandi skatt­lagningu tæknirisa

Guðmundur Halldór Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála Sýnar, gagnrýnir í aðsendri grein á Vísi að enn hafi engar aðgerðir verið kynntar um skattlagningu alþjóðlegra tæknifyrirtækja. Hann segir fjölmiðlafyrirtæki verða að geta treyst boðuðum aðgerðum og kallar eftir því að brugðist sé við. Málið er ekki á þingmálaskrá stjórnvalda.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum

Þegar erlendi fararstjórinn spurði bóndann í Suðursveit hver munurinn væri á því að vera með sauðfé og ferðamenn var svarið óvænt: Það væri eiginlega alveg það sama. Það væri sama jarmið.

Innlent
Fréttamynd

Staða Kald­víkur „þung“ og verðmatið komið undir markaðs­gengi

Verðmat á fiskeldisfyrirtækinu Kaldvík hefur verið lækkað um liðlega þriðjung í kjölfar erfiðleika í rekstri, versnandi sjóðsstöðu og hækkandi fjármagnskostnaðar. Greinendur telja fjárhagsstöðu félagsins þunga eftir mikil áföll síðustu misseri en gera ráð fyrir að reksturinn fari að rétta úr kútnum á næsta ári.

Innherjamolar
Fréttamynd

Fresturinn liðinn en enn ó­samið við flug­virkja

Fjögurra vikna frestur sem Icelandair og flugvirkjar gáfu sér til að ná nýjum kjarasamningi rann út á miðvikudag án þess að samningar næðust. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í deilunni en búist er við óformlegum samtölum í næstu viku.

Innlent
Fréttamynd

Ella frá Marel til Lands­bankans

Elín Gränz hefur verið ráðin sem mannauðsstjóri Landsbankans. Hún starfar í dag sem mannauðsstjóri rekstrarsviðsins Meat & Prepared Foods hjá JBT Marel, með ábyrgð á mannauðsmálum í Evrópu og Norður-Ameríku en hefur störf hjá Landsbankanum í upphafi næsta árs.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Af­koman yfir væntingum en horfurnar versna með hækkandi elds­neytis­verði

Árangur af umfangsmiklum breytingum á rekstri Icelandair er þegar farinn að skila sér í ávinningi upp á nærri tuttugu milljarða á ársgrundvelli, að sögn stjórnenda flugfélagsins, sem segja undirliggjandi afkomu sterkari en nýjar uppgjörstölur gefa til kynna. Rekstrarhagnaður Icelandair var talsvert yfir væntingum sumra greinenda, en þrátt fyrir verulegan afkomubata á háannatíma flugfélagsins stefnir í mikið tap á síðustu mánuðum ársins vegna hækkandi eldsneytisverðs og sterkrar krónu.

Innherji