Kauphöllin
17 18 19 20 21 22 23 24 25 … 79 ›
Fjórði fjórðungur Festar „heldur erfiður“ en verðmat nokkuð yfir markaðsgengi Rekstur Festis á árinu 2022 gekk ágætlega, en fyrri hluti ársins var nokkuð betri en sá seinni. Seinasti fjórðungur ársins var heldur erfiður, afkoma af eldsneytissölu var slök og dagvörusvið gaf eftir undan kostnaðarþrýstingi, og heilt yfir var afkoma ársins örlítið undir væntingum, að sögn hlutabréfagreinenda. Innherji 1.3.2023 10:51
Sýn kaupir allt hlutafé móðurfélags Já Sýn hefur gengið frá samkomulagi um kaup á öllu hlutafé Eignarhaldsfélagsins Njálu, móðurfélags upplýsingatæknifyrirtækisins Já, sem rekur meðal annars vefsíðuna og appið ja.is ásamt því að veita upplýsingar í símanúmerinu 1818. Seljendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir. Innherji 28.2.2023 09:31
Fjárfestar selja í sjóðum þrátt fyrir viðsnúning á mörkuðum Fjárfestar losuðu um stöður sínar í helstu verðbréfasjóðunum á fyrsta mánuði ársins 2023 sem einkenndist engu að síður af verðhækkunum á mörkuðum eftir erfitt ár í fyrra. Í tíu skipti á síðustu tólf mánuðum hefur verið hreint útflæði úr innlendum hlutabréfasjóðum. Innherji 27.2.2023 10:21
VÍS minnkar enn verulega vægi skráðra hlutabréfa í eignasafninu Markaðsvirði skráðra hlutabréfa í eignasafni VÍS minnkaði samanlagt um liðlega fjóra milljarða á árinu 2022 samtímis erfiðum aðstæðum á mörkuðum og aukinni áherslu á að draga úr áhættu í eignasafni tryggingafélagsins. Vægi óskráðra hlutabréfaeigna VÍS er núna orðið nánast jafn mikið og skráðra hlutabréfa félagsins. Innherji 27.2.2023 07:00
„Af hverju ættum við að fara í þrot?“ „Af hverju ættum við að fara í þrot?“ spyr Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, sem kveðst þreyttur á sögusögnum um að félagið sé á barmi gjaldþrots. Hann segir að merki séu um að þrotlaus vinna sé farin að skila sér. Viðskipti innlent 25.2.2023 12:04
Íslensk stjórnvöld stundum „eins og eyðiland í Evrópu,“ segir forstjóri Brims Forstjóri og aðaleigandi Brims gagnrýnir íslensk stjórnvöld, sem hann segir að séu eins og „eyðiland“ í Evrópu, fyrir að neita að ræða við Rússland um nýtingu á veiðirétti Íslands í Barentshafi. Fyrirtækið skilaði metafkomu í fyrra samhliða hagstæðum markaðsaðstæðum fyrir sjávarafurðir og horfur fyrir þetta ár líta „þokkalega út.“ Innherji 24.2.2023 11:21
Agnar kemur inn í stjórn Íslandsbanka sem fulltrúi Bankasýslunnar Agnar Tómas Möller, sem starfaði síðast sem sjóðstjóri skuldabréfa hjá Kviku eignastýringu, kemur nýr inn í stjórn Íslandsbankabanka en bankinn á núna í viðræðum um samruna við Kviku. Er hann tilnefndur af Bankasýslunni, sem heldur utan um 42,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka, en stofnunin fer núna með þrjá stjórnarmenn í stað fjögurra áður. Innherji 22.2.2023 19:46
Hagræðing í rekstri hjá Íslandsbanka gerir hann 25-30 prósent verðmætari Sú hagræðing sem hefur átt sér stað hjá Íslandsbanka á undanförnum árum jafngildir því að vaxtamunur hafi aukist um 0,5 prósentustig. Hún hefur aukið verðgildi bankans um 25 til 30 prósent, samkvæmt nýju verðmati. Innherji 22.2.2023 17:00
Stærsti erlendi fjárfestirinn selur í ISB fyrir nærri þrjá milljarða Bandaríski sjóðastýringarrisinn Capital Group, sem hefur verið stærsti erlendi fjárfestirinn í hluthafahópi Íslandsbanka frá skráningu á markað sumarið 2021, hefur minnkað hlut sinn í bankanum um meira en fimmtung í þessum mánuði. Sala félagsins kemur í kjölfar þess að tilkynnt var um samrunaviðræður Íslandsbanka og Kviku. Innherji 21.2.2023 10:10
Skiptir stærðin máli? Það hentar ekki öllum fyrirtækjum að vera almenningshlutafélög. En stærð og kostnaður eru yfirleitt ekki sá þröskuldur sem af er látið. Umræðan 17.2.2023 10:00
Forstjóri Regins segir upp Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, hefur óskað eftir því að láta af störfum á næstu mánuðum. Hann hefur gegnt stöðu forstjóra síðan árið 2009. Viðskipti innlent 16.2.2023 17:54
Alvotech orðið ein stærsta eignin hjá helstu hlutabréfasjóðum landsins Vægi Alvotech í eignasöfnum stærstu hlutabréfasjóða landsins hefur aukist verulega á fáum vikum samtímis miklum verðhækkunum á gengi bréfa íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins og þátttöku sjóðanna í nýafstöðnu hlutafjárútboði. Úttekt Innherja sýnir að félagið er orðið stærsta eða næststærsta eignin hjá meirihluta sjóðanna. Innherji 16.2.2023 15:54
Kvika muni sjá til lands í samrunaviðræðum við Íslandsbanka „fyrr en seinna“ Hagnaður Kviku á fjórða ársfjórðungi eftir skatt minnkaði um rúmlega milljarð króna á fjórða ársfjórðungi og nam 1.613 milljónum sem skilaði sér í arðsemi á efnislegt eigið fé upp á 15,3 prósent. Afkoman litaðist af einskiptiskostnaði en forstjóri Kviku segir rekstur fjórðungsins hafa verið þann besta á liðnu ári og hann býst við að niðurstaða muni fást í viðræðum bankans um mögulegan samruna við Íslandsbanka innan ekki of langs tíma. Innherji 16.2.2023 08:20
Rekstrarhagnaður Sýnar tvöfaldast og spáð enn meiri afkomubata í ár Rekstrarhagnaður Sýnar á fjórða ársfjórðungi nam 383 milljónum á sama tíma og félagið gjaldfærði einskiptiskostnað upp á 150 milljónir vegna hagræðingaraðgerða undir lok síðasta árs. Samkvæmt fyrstu afkomuspá sem Sýn hefur gefið út undanfarin ár þá er gert ráð fyrir að rekstrarhagnaður (EBIT) félagsins á árinu 2023 verði á bilinu 2,2 til 2,5 milljarðar króna. Innherji 15.2.2023 18:31
Aðdragandinn að kaupum VÍS á Fossum „var stuttur“ VÍS ítrekaði áhuga sinn á að útvíkka starfsemi félagsins á fjármálamarkaði og vaxa á þeim vettvangi í tilkynningu til Kauphallarinnar í janúar. Eftir það fór boltinn að rúlla. Í morgun var tilkynnt um möguleg kaup VÍS á Fossum fjárfestingabanka. Þetta segir Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður VÍS, segir í samtali við Innherja. Innherji 15.2.2023 17:05
Play tapaði 6,5 milljörðum króna Heildartap flugfélagsins Play árið 2022 nemur 6,5 milljörðum króna. Tap sem má rekja til ófærðar á Reykjanesbrautinni í desember er metið á 317 milljónir króna. Heildarfjöldi farþega árið 2022 var 789 þúsund og vonast flugfélagið eftir því að tvöfalda þann fjölda á næsta ári. Viðskipti innlent 15.2.2023 15:53
Bein útsending: Árshlutauppgjör Play kynnt Flugfélagið Play mun kynna uppgjör sitt á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 16:15. Viðskipti innlent 15.2.2023 15:45
Yfirvofandi verkfallsátök auka enn á óvissuna á mörkuðum Áhyggjur fjárfesta af mögulega langvinnari verkfallsátökum á vinnumarkaði en áður var talið setti mark sitt á þróun markaða í dag. Hlutabréfaverð flestra félaga lækkaði, mest í tilfelli Icelandair, og verðbólguálagið á skuldabréfamarkaði hækkaði sömuleiðis. Innherji 14.2.2023 18:48
Moody's íhugar að hækka lánshæfismat Kviku í ljósi samrunaviðræðna Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody's tilkynnti í dag að formlega hefði verið tekið til skoðunar að hækka lánshæfismat Kviku í kjölfar þess að ákveðið hefur verið að hefja viðræður um samruna Kviku og Íslandsbanka. Innherji 13.2.2023 12:21
Stóru sjóðirnir stækkuðu stöðu sína í Marel fyrir á annan tug milljarða Stærstu íslensku lífeyrissjóðirnir, einkum Gildi, juku nokkuð við hlutabréfastöðu sína í Marel á árinu 2022 samhliða því að hlutabréfaverð félagsins gaf mikið þegar það þurfti að glíma við brostnar aðfangakeðjur og hækkandi afurðaverð sem kom mikið niður á afkomu þess. Staðan hefur núna snúist við og útlit fyrir að Marel nái rekstrarmarkmiðum sínum fyrr en áður var talið en gengi bréfa félagsins hefur hækkað um 22 prósent frá áramótum. Innherji 13.2.2023 07:00
Alvotech tekið inn í vísitölu MSCI fyrir vaxtarmarkaði Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech, verðmætasta félagið í Kauphöllinni, verður tekið inn í vísitölu MSCI fyrir vaxtarmarkaði frá og með næstkomandi mánaðarmótum. Það ætti að hafa í för með sér aukna fjárfestingu frá erlendum vísitölusjóðum en Alvotech bíður þess nú sömuleiðis að vera bætt við nýmarkaðsvísitöluna hjá FTSE Russell. Innherji 12.2.2023 14:18
Ætti ekki að undrast að erlendir fjárfestar hafi bætt við sig í Icelandair Gengi flugfélaga hefur hækkað „gríðarlega mikið“ að undanförnu. Algegnt er að félög hafi hækkað um 30 til 40 prósent frá áramótum. Má nefna Icelandair, Finnair, Air France, Lufthansa og Ryanair sem dæmi. EasyJet, WizzAir og American Airlines hafa hækkað um nærri 50 prósent á sama tíma. „Það skildi engan undra að erlendir fjárfestar hafa verið að auka vægi sitt í Icelandair.“ Innherji 10.2.2023 17:16
Samruni bankanna hefði „mikil samlegðaráhrif á kostnaðarhliðinni“ Bankastjóri Íslandsbanka segir að samruni við Kviku sé „áhugavert tækifæri“ og myndi meðal annars hafa „mikil samlegðaráhrif á kostnaðarhliðinni“. Verði af sameiningu bankanna er gert ráð fyrir því að viðskiptin færu fram að öllu leyti með skiptum á hlutabréfum, fremur en að hluta með greiðslu reiðufjár. Innherji 10.2.2023 10:48
Stóru samlegðartækifærin á bankamarkaði liggja í gegnum Kviku Útlit er fyrir frekari samruna á fjármálamarkaði þar sem stjórnendur keppast við að leita leiða til hagræðingar á tímum hækkandi launakostnaðar og erfiðari markaðsaðstæðna. Sum af stærri fjármálafyrirtækjum landsins hafa að undanförnu mátað sig við hvort annað sem hefur nú leitt til þess stjórn að Íslandsbanka, sem fundar á morgun, mun væntanlega samþykkja ósk Kviku banka um að hefja samrunaviðræður milli félaganna. Óformlegt samtal um að sameina Kviku og Arion banka, sem margir höfðu spáð fyrir um, skiluðu ekki árangri en blessun frá Samkeppniseftirlitinu við slíkum bankasamruna gæti reynst þrautin þyngri. Innherji 8.2.2023 06:00
Uppgjör Icelandair bendir til að „flugið er komið til baka“ Rekstur Icelandair á árinu 2022 var ótrúlegur þegar litið er til hversu mikið farþegum flugfélagsins fjölgaði á milli ára og hvernig til tókst að „skala upp reksturinn“ til að mæta aukinni á eftirspurn, segir hlutabréfagreinandi IFS. Erlendir hluthafar eiga samanlagt 26 prósenta hlut í Icelandair, að sögn forstjóra Icelandair. Innherji 6.2.2023 15:31
Samruni myndi styrkja lánshæfi bæði Kviku og Íslandsbanka, segir Moody´s Verði af samruna Kviku og Íslandsbanka þá mun það hafa jákvæð áhrif á lánshæfi beggja bankanna. Kvika myndi verða hluti af mun stærri bankaeiningu, sem ætti að draga meðal annars úr rekstraráhættu, og fyrir Íslandsbanka yrði það til þess fallið að breikka enn frekar tekjustrauma bankans, að mati alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækisins Moody´s. Innherji 4.2.2023 15:54
Sameiningin minnir á samruna Kaupþings og Búnaðarbanka sem gekk vel Hlutabréfagreinandi IFS segir að mögulegur samruni Kviku og Íslandsbanka minni á samruna Kaupþings og Búnaðarbanka árið 2003. Sá samruni hafi heppnast vel. Að hans mati eru samlegðartækifærin við sameininguna augljós. Líkur á að af samrunanum verði séu nokkuð góðar. Innherji 3.2.2023 13:59
Bréf bankanna hækka um fimm prósent fyrir áformaðar samrunaviðræður Umtalsverð utanþingsviðskipti voru með hlutabréf allra bankanna í Kauphöllinni eftir lokun markaða í gær í kjölfar þess að Kvika sagðist hafa óskað eftir því að hefja samrunaviðræður við Íslandsbanka. Hlutabréfaverð Kviku og Íslandsbanka í þeim viðskiptum var allt að um fimm prósentum hærra en það stóð í gær. Innherji 3.2.2023 09:30
Kvika óskar eftir samrunaviðræðum við Íslandsbanka Stjórn Kviku hefur óskað eftir því við stjórn Íslandsbanka að hefja samrunaviðræður milli félaganna. Sameiginlegt markaðsvirði félaganna er rúmlega 320 milljarðar. Innherji 2.2.2023 16:34
Sautján milljarða hagnaður Landsbankans á krefjandi ári Landsbankinn hagnaðist um sautján milljarða á síðasta ári. Bankaráð bankans hyggst leggja til að greiddur verði 8,5 milljarðar í arð til eigenda bankans vegna reksturs síðasta árs. Bankastjóri bankans segir árið hafa verið krefjandi. Viðskipti innlent 2.2.2023 13:56