Íran

Íran

Höfuðborg: Teheran. Mannfjöldi: 89,6 milljónir (2025). Flatarmál: 1.648.195 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Enn lítið um svör í Eng­landi

Yfirvöld í Bretlandi hafa enn litlu svarað um handtöku fimm manna nærri mikilvægri herstöð í Englandi á sunnudaginn. Mönnunum var sleppt í gær og hefur það vakið mikla furðu, þar sem þeir voru handteknir vegna gruns um skipulagningu hryðjuverks og neyðarástandi var lýst yfir við herstöðina, þar sem enn má sjá mikinn viðbúnað.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Síðustu her­mennirnir fara frá Írak, aftur

Bandarískir hermenn munu á morgun fara frá síðustu herstöðvum sínum í Írak, eftir rúmlega tveggja áratuga viðveru þar, með hléum. Íranir og bandamenn þeirra, sem njóta mikilla áhrifa í Írak þessa dagana, líta á brottflutninginn sem sigur.

Erlent
Fréttamynd

Hélt á myndum af skóla­börnum og sakaði Banda­ríkin um hryðju­verk

Forseti Írans sakaði Bandaríkin um hryðjuverk í ræðu sinni fyrir Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og sagði Írani aldrei myndu beygja sig og bugta fyrir Bandaríkjunum. Þá hélt hann á myndum af hinum látna leiðtoga Ayatollah Khameinei sem og af látnum almennum borgurum. Á sama tíma lýsti hann Írani opna fyrir viðræðum en sendinefnd Bandaríkjanna yfirgaf salinn.

Erlent
Fréttamynd

Segir stóra á­kvörðun fram­undan

Donald Trump forseti Bandaríkjanna hótaði í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær að afmá klerkastjórnina í Íran ef átökin leystust ekki. Samskipti áttu sér stað á milli fulltrúa landanna á þinginu í gær.

Erlent
Fréttamynd

Svona var ræða Trumps: Spurning um „ger­eyðingu“ og nýtt nafn á gervi­greind

Donald Trump Bandaríkjaforseti fór um víðan völl eins og hans er von og vísa í árlegri ræðu hans frammi fyrir Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Hann segist standa frammi fyrir mikilli ákvörðun hvað varðar Íran, að gera samning við þarlend stjórnvöld eða eyða íslamska lýðveldinu. Þá gekk sendinefnd Kúbu út úr salnum og forsetinn sagði Bandaríkjamenn bera höfuð og herðar yfir Kína þegar kemur að gervigreind, sem hann nefndi nýju nafni.

Erlent
Fréttamynd

Bretar ætla að að­stoða Sáda gegn Hútum

Bretar ætla að aðstoða Sáda í átökum þeirra gegn Hútum, með því að veita „varnartengda“ eldsneytisþjónustu. Breskar eldsneytisflugvélar verða senda til Sádi-Arabíu og notaðar til að dæla eldsneyti á herþotur Sáda.

Erlent
Fréttamynd

Kín­verjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda

Ráðamenn í Kína hafa sent skilaboð til ráðamanna í Íran og beðið klerkastjórnina um hjálp við að halda aftur af Hútum í Jemen. Það er eftir að ríkisstjórn Sádi-Arabíu, sem selur talsvert af olíu til Kína, bað Kínverja um aðstoð. Árásir Húta á olíuvinnsluinnviði í Sádi-Arabíu og lokun sunnanverðs Rauðahafs fyrir siglingum Sáda hafa komið verulega niður á getu konungsríkisins til að flytja olíu úr landi.

Erlent
Fréttamynd

Kostaði 57 milljarða að verjast einni á­rás

Bandarískir hermenn notuðu allt að og um áttatíu háþróuð og rándýr flugskeyti til að verjast nýlegri árás Írana á herstöð í Jórdaníu. Íranir notuðu um tuttugu skotflaugar við árásina og sprengjur úr þeim náðu til jarðar. Enginn bandarískur hermaður lét lífið en herþotur og aðrar flugvélar urðu fyrir skaða.

Erlent
Fréttamynd

Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um

Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, fundaði í morgun með Brad Cooper, aðmírál og yfirmanni yfirstjórnar herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (Centcom). Prinsinn hefur á undanförnum dögum farið fram á við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að Bandaríkjamenn aðstoði Sáda með árásum á Húta í Jemen. Því hefur Trump hafnað.

Erlent
Fréttamynd

Lokuðu einni mikil­vægustu olíu­leiðslunni

Sádi-Arabar hafa lokað einni mikilvægustu olíuleiðslu landsins eftir drónaárásir sem Írakar eru taldir bera ábyrgð á. Atvikið er nýjasta dæmið um útbreiðslu átakanna fyrir botni Persaflóa og setja aukinn þrýsting á alþjóðlegar olíuflutningaleiðir.

Erlent
Fréttamynd

Miklar hækkanir á olíu­mörkuðum í dag

Verð hráolíu hefur rokið upp í dag vegna áhyggja af enn frekari truflunum á flutningsleiðum olíu um heiminn, sem rekja má til aukinna og harðnandi átaka í Jemen. Hútar tóku í dag mikilvægan strandbæ við Rauðahaf sem mun gera þeim mun auðveldara að gera árásir á olíuflutningaskip á Rauðahafi.

Erlent
Fréttamynd

Pakistanar sögðu klerka­stjórninni að koma böndum á Húta

Erindrekar frá Pakistan komu í dag viðvörun á framfæri við ráðamenn í Íran. Klerkastjórnin var beðin um að koma böndum á Húta eftir umfangsmiklar árásir þeirra á Sádi-Arabíu, ellegar væri hætta á því að átök á svæðinu gætu stigmagnast verulega.

Erlent
Fréttamynd

Réðust á fleiri olíu­flutninga­skip

Bandaríkjamenn gerðu í dag árásir á fimm olíuflutningaskip Írana til viðbótar, eftir að Íranir skutu eldflaugum í átt að bandarísku herskipi. Íranir svöruðu með umfangsmiklum eldflaugaárásum.

Erlent
Fréttamynd

Skutu tugum eld­flauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu

Hútar skutu í nótt tugum dróna og eldflauga að fjórum borgum í Sádi-Arabíu. Að minnsta kosti 73 eru særðir eftir árásirnar og ollu þær meðal annars skemmdum á olíuvinnsluinnviðum. Ráðamenn í Sádi-Arabíu heita umfangsmiklum viðbrögðum en átök hafa harðnað í Jemen að undanförnu.

Erlent
Fréttamynd

Klerka­stjórnin missir tökin

Ráðamenn í Íran vöruðu í dag við því að þeir gætu gert árásir á bandarísk skotmörk í Mið-Austurlöndum og á olíuvinnsluinnviði í nágrannaríkjum sínum. Klerkastjórnin virðist þó vera að missa tökin á Hormússundi og þar af leiðandi missa vogarafl í mögulegum viðræðum við Bandaríkjamenn.

Erlent
Fréttamynd

Banda­ríkjaher gerði á­rásir á þrjú írönsk skip

Bandaríkjaher hefur gert árás á þrjú írönsk olíuskip eftir að Íranir skutu skotflaugum að tveimur bandarískum herskipum, að sögn aðgerðarstjórnar hersins. Árásir milli ríkjanna tveggja hafa færst í aukana síðastliðna viku.

Erlent
Fréttamynd

Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund

Donald Trump Bandaríkjaforseti spyr í færslu á samfélagsmiðlum hvort hann ætti að breyta heiti Hormússunds í Trumpsund. Nokkrir dagar eru síðan hann tilkynnti um breytingu á Ontaríó-vatni.

Erlent
Fréttamynd

Á­tökin við Persa­flóa stig­magnast á ný

Íranir skutu í nótt flugskeytum og drónum að bandarískum herstöðvum í Jórdaníu, Kúveit, Íraq og Barein. Voru árásirnar gerðar í kjölfar þess að Bandaríkjamenn hófu árásir á Írani að nýju í gær.

Erlent
Fréttamynd

Banda­ríkja­her hefur á­rásir á Íran á ný

Bandaríkjaher hóf árásir á skotmörk íranska byltingarvarðarins í Íran í dag. Árásirnar eru svar Bandaríkjahers við tilraunum byltingarvarðarins til árása á kaupskip á Hormússundi að sögn hersins. 

Erlent
Fréttamynd

Í­huga fleiri á­rásir á Hormússund

Donald Trump Bandaríkjaforseti og hans hæstsettu ráðgjafar vega nú og meta hvort Bandaríkjaher eigi að gera takmarkaðar árásir á Hormússundi í von um að koma í veg fyrir það að Íranir geti endurreist ratsjár- og eldflaugagetu sína á svæðinu.

Erlent
Fréttamynd

Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að á­rásum á Kharg-eyju

Íranir hafa svarað fyrir árásir Bandaríkjamanna á skotflaugapalla á Larak-eyju með árásum á herstöðvar í Jórdaníu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þá hafa fjölmiðlar í Íran greint frá því að kviknað hafi í olíuflutningaskipi á Hormússundi, eftir að skipið lenti á tveimur tundurduflum.

Erlent