Ástin á götunni
308 309 310 311 312 313 314 315 316 … 334 ›
Bouma til Villa Enska úrvaldsdeildaliðið Aston Villa hefur fegnið varnarmanninn Wilfried Bouma frá PSV Eindhoven í Hollandi. Villa borgaði 3.5 milljónir punda fyrir Hollendinginn sem er 27 ára gamall landsliðsmaður. Bouma var hjartað í vörn PSV sem fór í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu á síðustu leiktíð. Sport 13.10.2005 19:46
Owen kýs Newcastle Michael Owen samþykkti í morgun að ganga til liðs við Newcastle United og fer í læknisskoðun hjá liðinu í dag. Hann mun því væntanlega skrifa undir samning við norðanliðið fljótlega, en hann verður um leið dýrasti leikmaður í sögu félagsins. Sport 13.10.2005 19:46
Grétar Rafn orðaður við AZ Alkmaar Siglfirðingurinn Grétar Rafn Steinsson, landsliðsmaður í knattspyrnu er sterklega orðaður við AZ Alkmaar toppliðið í hollensku úrvalsdeildinni. Grétar Rafn sem er leikmaður Young Boys frá Sviss hefur hlotið verðskuldaða athygli að undanförnu í leikjum sínum með íslenska landsliðinu. Hann er nú staddur í Hollandi að skoða aðstæður. Sport 13.10.2005 19:46
Jafnt hjá Landskrona og Halmstad Landskrona og Halmstad markalaust jafntefli í sænku úrvalsdeildinni í gær. Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék allan leikinn með Halmstad. Örgryte tapaði á heimavelli fyrir Gautaborg 2-1. Jóhann B. Guðmundsson var í liði Örgryte en Hjálmar Jónsson sat á varamannabekknum hjá Gautaborg. Kalmar sigraði Helsingborg 1-0 og Hammarby og Elfsborg gerðu markalaust jafntefli. Sport 13.10.2005 19:46
Rekinn eftir einn leik Attilio Tesser komst ekki á spjöld sögunnar sem þjálfari Cagliari í ítölsku knattspyrnunni, því í gær var hann rekinn úr starfi sínu eftir að hafa stýrt liðinu í aðeins einum leik. Sport 13.10.2005 19:46
Meiðsli hjá enska landsliðinu Sven-Göran Eriksson bíður nú milli vonar og ótta eftir því hvort þeir John Terry, Steven Gerrard og Shaun Wright-Phillips verði búnir að ná sér af meiðslum fyrir landsleik Englendinga og Wales um helgina. Sport 13.10.2005 19:46
Rúrik færist nær Charlton Rúrik Gíslason, 17 ára leikmaður HK í 1.deild, er staddur í London í læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildaliðinu Charlton. Sóknarmaðurinn ungi hefur leikið 12 leiki með HK í 1.deild og gert eitt mark. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Rúrik en standist hann læknisskoðun má búast við því að gengið verði frá samningi í dag. Sport 13.10.2005 19:46
Loksins sigur hjá Brann Brann sigraði Fredrikstad með fjórum mörkum gegn engu í norsku úrvalsdeildinni í gær, en Brann vann síðast sigur í deildinni í byrjun júlí. Kristján Örn Sigurðsson lék allan leikinn með Brann sem er í sjöta sæti í deildinni með 29 stig. Sport 13.10.2005 19:46
Líkur Gylfa aukast hjá Leeds Helsti keppinautur landsliðsmannsins Gylfa Einarssonar um stöðu miðjumanns hjá enska 1. deildarliðinu Leeds Utd, hinn norski Eirik Bakke er að öllum líkindum á förum til enska úrvalsdeildarliðsins Aston Villa. Þetta sagði Gylfi í viðtali í Fótboltavikunni á Talstöðinni í dag en Bakke hélt Gylfa á varamannabekknum þar til hann meiddist á dögunum. Sport 13.10.2005 19:46
Landsliðshópur Íslands Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, landsliðsþjálfarar í knattspyrnu hafa valið landsliðshópinn sem mætir Króötum og Búlgaríu í næstu viku í undankeppni HM. Ekkert pláss er fyrir þá Bjarna Ólaf Eiríksson leikmann Vals og Harald Frey Guðmumndsson leikmann Álasunds. Sport 14.10.2005 06:39
Kuznetsova úr leik Rússneska tennisstjarnan Svetlana Kuznetsova er úr leik á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis en hún er núverandi meistari. Það var landa hennar, Ekaterina Bychkova sem sigraði hana 6-3 og 6-2 en Bychkova er í 96. sæti heimslistans. Sport 14.10.2005 06:39
U21 hópurinn í knattspyrnu Þrír nýliðar eru í U21 landsliðshópi Eyjólfs Sverrissonar fyrir leikina gegn Króatíu og Búlgaríu í undankeppni EM, þeir Ingvar Þór Kale, Andri Júlíusson og Andri Ólafsson. Framherjinn Hannes Þ. Sigurðsson, sem skorað hefur 6 af 7 mörkum Íslands í keppninni hingað til, er meiddur og getur ekki leikið. Sport 14.10.2005 06:39
Tudor óákveðinn Króatíski varnarmaðurinn Igor Tudor hjá Juventus virðist hafa snúist hugur með að fara sem lánsmaður til Bolton í ensku úrvalsdeildinni, því Sam Allardyce, knattspyrnustjóri félagsins segist ekkert hafa heyrt eða séð af varnarmanninum sterka. Sport 14.10.2005 06:39
Kuyt fer hvergi Dirk Kuyt, framherjinn knái hjá Feyenoord, hefur ákveðið að vera um kyrrt hjá félaginu þrátt fyrir mikinn áhuga ýmissa knattspyrnufélaga á honum. Kuyt lék frábærlega með Feyenoord í fyrra og var talið líklegt að hann myndi fara til einhvers stórliðs í Evrópu en á endanum ákvað Kuyt að vera áfram í Hollandi. Sport 14.10.2005 06:39
Enn eitt áfallið fyrir Newcastle Newcastle United á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir, enda situr liðið í fallsæti í byrjun tímabilsins og hefur aðeins hlotið eitt stig það sem af er. Um helgina þurfti Kieron Dyer svo að fara meiddur af leikvelli gegn Manchester United og talið er að hann verði frá í nokkurn tíma. Sport 14.10.2005 06:39
Pyo á leið til Tottenham Suður-Kóreumaðurinn Lee-Young Pyo er á leið til Tottenham Hotspur frá PSV Eindhoven, ef marka má orð forráðamanna félagsins í morgun. Pyo hefur fyrir löngu sagt að hann vildi fara til Lundúnaliðsins, en fram að þessu hefur hollenska liðið ekki viljað láta hann fara. Sport 14.10.2005 06:39
Tudor ekki til Bolton? Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, hefur að undanförnu unnið að því að öturlega að fá króatíska landsliðsmanninn Igor Tudor til liðs við sig en hann gerði garðinn frægan hjá Juventus á árum áður. Allardyce óttast að hann muni ekki fá Tudor þar sem hann hefur ekki gengið frá samningi ennþá. Sport 14.10.2005 06:39
Charlton gerir tilboð í Rúrik Enska knattspyrnufélagið Charlton hyggts gera HK tilboð í unglingalandsliðsmanninn Rúrik Gíslason, en Rúrik sem aðeins er 17 ára hefur verið til reynslu hjá Charlton í tvígang á síðustu vikum. Sport 14.10.2005 06:39
David James gefst ekki upp Markvörðurinn David James hjá Manchester City ætlar ekki að gefa upp alla von um að komast aftur í enska landsliðshópinn, þrátt fyrir að vera skilinn eftir úti í kuldanum af Sven-Göran Eriksson fyrir leiki Englands í undankeppni HM á næstu dögum. Sport 14.10.2005 06:39
Tileinkaði Robson markið Ruud van Nistelrooy, framherji Manchester United tileinkaði Bobby Robson, fyrrum knattspyrnustjóra hjá PSV Eindhoven og Newcastle markið sem hann skoraði gegn Newcastle í gær í 2-0 sigri rauðu djöflanna. " Ég hitti Robson á hóteli skömmu fyrir leikinn og lofaði honum að ég myndi gera mark fyrir hann." Sport 14.10.2005 06:39
Tottenham á eftir Carlton Cole Tottenham Hotspur hefur nú gert Chelsea 2 milljóna punda tilboð í sóknarmanninn unga, Carlton Cole, en hann hefur fram að þessu ekki verið sagður til sölu. Tottenham er komið í mikil vandræði með framherja eftir að Mido fékk rauða spjaldið um helgina, því þá hefur liðið aðeins tvo leikhæfa framherja í næstu leikjum. Sport 14.10.2005 06:39
Shearer biðlar enn til Owen Alan Shearer, fyrirliði Newcastle, er enn að biðla til fyrrum félaga síns í enska landsliðinu um að ganga til liðs við sig í framlínu Newcastle frá Real Madrid og nú hefur hann sagt að Owen verði hetja á St James´ Park ef hann komi þangað sem lánsmaður. Sport 14.10.2005 06:39
Guðjón eykur forskotið Guðjón Þórðarsonar og lærisveinar hans í Notts County náðu í dag þriggja stiga forskoti í ensku 2. deildinni í knattspyrnu þegar þeir báru sigurorð af Mansfield, 3:2, á útivelli en Notts County skoraði tvö mörk á síðustu átta mínútum leiksins. Notts County hefur 14 stig eftir sex umferðir en Darlington kemur næst með 11 stig. Sport 14.10.2005 06:39
Collina hættur að dæma Ítalski dómarinn Pierluigi Collina er hættur að dæma, það tilkynnti hann forráðamönnum ítalska knattspyrnusambandsins í dag. Hann hafði nýverið gert auglýsingasamning við bílaframleiðandann Opel sem einnig styrkir A.C. Milan en samningurinn var afar illa séður af ítölsku knattspyrnuforustunni og aðdáendum annara liða en A.C Milan. Sport 14.10.2005 06:39
Baros ætlar að skora grimmt Tékkneski framherjinn Milan Baros hjá Aston Villa ætlar að vera iðinn við kolann í markaskorun fyrir nýja liðið sitt og segir að leikstíll liðsins muni hjálpa sér að skora miklu meira en hann gerði þegar hann var hjá Liverpool. Sport 14.10.2005 06:39
Stoke sigruðu Norwich 3-1 Fjöldi leikja fór fram í dag í ensku Championship deildinni í knattspyrnu. Hæst ber 3-1 sigur Stoke City á Norwich og 4-0 útisigur Preston á Ipswich. Sjá úrslit úr Championship deildinni. Sport 14.10.2005 06:39
Liðið sem mætir Svíum Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari A landsliðs kvenna í knattspyrnu, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Svíum í undankeppni HM í Karlskoga í Svíþjóð í dag klukkan 15:00. Sport 14.10.2005 06:39
Svakalegt byrjunarlið Real Madrid Fyrsti leikur Real Madrid hófst núna klukkan 19 í spænsku úrvalsdeildinni. Liðið er að leika við Cadiz á útivelli. Ronaldo er búinn að koma Real yfir strax á 4. mínútu en byrjunjarlið Madridarliðsins er all svakalegt. Sport 14.10.2005 06:39
David James sparkað Sven Göran Erikson, landsliðsþjálfari Englands í knattspyrnu valdi markvörðinn David James ekki í landsliðshóp sinn sem mætir Wales og Norður-Írlandi í næstu viku. James lék illa með Englendingum þegar liðið tapaði fyrir Dönum 4-1 í Kaupmannahöfn. Sport 14.10.2005 06:39
Ruud og Rooney afgreiddu Newcastle Wayne Rooney og Ruud van Nistelrooy gerðu mörk Manchester United sem sigraði Newcastle í dag 2-0 í ensku úrvalsdeildinni.Þetta var þriðji sigur United í jafn mörgum leikjum í deildinni. Newcastle eru hins vegar í vondum málum með aðeins eitt stig eftir fjóra leiki. Sport 14.10.2005 06:39