Ástin á götunni
313 314 315 316 317 318 319 320 321 … 334 ›
Jafnt á Ásvöllum Haukar og Víkingur Ólafsvík gerðu 2-2 jafntefli á Ásvöllum í Hafnarfirði í fyrstu deild karla í kvöld. Kristján Ómar Björnsson og Hilmar Rafn Emilsson gerðu mörk Hauka en mörk Ólafsvíkinga gerðu þeir Alexander Linta úr víti og Hermann Geir Þórisson. Sport 13.10.2005 19:43
Houllier vill Baros, ekki Cisse Gerard Houllier, knattspyrnustjóri Lyon í Frakklandi er sagður hafa gert 8,5 milljón punda tilboð í framherjann Milan Baros hjá Liverpool og hefur játað áhuga sinn á að fá leikmanninn til liðs við frönsku meistarana. Sport 13.10.2005 19:43
Þeir ættu að reka Eriksson Fyrrum landsliðsmaðurinn Mick Channon segir að enska knattspyrnusambandið ætti að sjá sóma sinn í að reka landsliðsþjálfara sinn Sven-Göran Eriksson, eftir útreiðina sem liðið fékk á Parken í Kaupmannahöfn í 4-1 tapinu í vikunni. Sport 13.10.2005 19:43
Luque ekki til Newcastle Graeme Souness, knattspyrnustjóri Newcastle hefur viðurkennt að félaginu hafi enn á ný mistekist að klófesta sterkan sóknarmann og sá nýjasti er Alberto Luque hjá Deportivo la Corunia á Spáni. Sport 13.10.2005 19:43
Carvalho biður Mourinho afsökunar Ricardo Carvalho varnarmaður Chelsea hefur beðið Jose Mourinho afsökunar á ummælum sínum eftir leikinn gegn Wigan í úrvalsdeildinni um helgina. Þrátt fyrir afsökunarbeiðnina er reiknað með því að hann verði sektaður um tveggja vikna laun. Sport 13.10.2005 19:43
Dramatík á Akureyri Norðfirðingurinn Jón Gunnar Eysteinsson jafnaði metin fyrir KA gegn Víkingum á síðustu mínútu á Akureyri í 1.deild karla í kvöld í leik sem lauk 1-1. Mark Víkinga gerði Andri Steinn Birgisson á upphafsmínútum leiksins. Við þessi úrslit er það ljóst að Breiðablik er komið í úrvalsdeild. Sport 13.10.2005 19:43
Ókeypis á sunnudag Ísland mætir Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM 2007 í kvennaknattspyrnu á Laugardalsvelli á sunnudag kl. 14:00. Um er að ræða fyrsta leik liðsins í riðlinum og eina heimaleikinn á árinu. Aðgangur á leikinn er ókeypis og er fólk því hvatt til að mæta og styðja við bakið á íslenska liðinu. Sport 13.10.2005 19:42
Nakata hæstánægður Hidetoshi Nakata er genginn til liðs við Bolton frá Fiorentina á eins árs lánssamningi. Hann er viss um að enska úrvalsdeildin hennti honum vel en hann hefur leikið í sjö ár í efstu deild á Ítalíu. Sport 13.10.2005 19:42
Denilson til Vestel Manisaspor Brasilíski knattspyrnumaðurinn Denilson sem eitt sinn var álitinn einn efnilegasti leikmaður heims er genginn til liðs við nýliða Vestel Manisaspor, í tyrknesku úrvalsdeildinni að láni frá spænska liðinu Real Betis. Denilson gekk til liðs við Betis eftir heimsmeistarakeppnina 1998 en aldrei staðið undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar. Sport 13.10.2005 19:42
Morrison til Norwich Sóknarmaðurinn Clinton Morrison er genginn til liðs við Norwich í Championship deildinni frá úrvalsdeildarliði Birmingham fyrir 2 milljónir punda. Morrison taldi sig ekki fá sanngjarna meðferð frá Steve Bruce, knattspyrnustjóra Birmingham og bað um sölu. Sport 13.10.2005 19:42
Owen á leið til Liverpool? Breskir fjölmiðlar kepptust um það í morgun að greina frá því að Michael Owen væri á leið aftur til Liverpool eftir allt saman. Sport 13.10.2005 19:42
Pearce stendur með sínum manni Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Man. City, hefur komið markverði sínum David James til varnar, en hann átti hörmulegan leik með Englandi gegn Dönum í gær og hefur þurft að þola mikil skítköst frá breskum fjölmiðlum. Sport 13.10.2005 19:42
Toppslagur í 1.deild KA og Víkingur mætast í 1.deild karla í kvöld. Víkingur er í öðru sæti á eftir Breiðablik en KA er í því þriðja sæti tveimur stigum á eftir Víking. Úrslit leiksins munu því líklega hafa mikil áhrif á það hvað lið kemst í úrvalsdeildina í haust. Þá munu Fjölnismenn taka á móti HK í botnslag í Grafarvogi og Völsungar fá Þórsara... Sport 13.10.2005 19:42
Eriksson aðvarar leikmenn sína Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands, hefur varað leikmenn sína við því að ef þeir spila einhverntímann aftur eins og í síðari hálfleiknum gegn Dönum í gærkvöldi, geti þeir gleymt því að komast á HM næsta sumar. Sport 13.10.2005 19:42
Wembley á áætlun Þrátt fyrir áhyggjur breskra fjölmiðla undanfarið, virðist sem nýji Wembley-völlurinn í Lundúnum verði tilbúinn til notkunar fyrir úrslitaleikinn í FA bikarnum í vor. Sport 13.10.2005 19:42
Stærsti ósigur Breta í 25 ár Sven Göran Eriksson landsliðsþjálfari Englands var æfur út í sína menn og vandaði þeim ekki kveðjurnar á Sky sjónvarpstðinni í gærkvöld eftir 4 - 1 tap enskra fyrir Dönum á Parken í Kaupmannahöfn. Danir léku Englendinga grátt í síðari hálfleik og það tók þá aðeins sjö mínútur að skora þrjú mörk. Sport 13.10.2005 19:42
Vináttulandsleikir í gær Fjölmargir vináttulandsleikir fóru fram í gær. Króatar og Brasilíumenn gerðu jafntefli 1 - 1 í Split , Svíar lögðu Tékka 2 - 1. Holland og Þýskaland gerðu jafntefli 2 - 2 í Hollandi en heimamenn komust í 2 - 0. Sport 13.10.2005 19:42
Ég mun alltaf svara kallinu Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins, sagðist í samtali við Fréttablaðið eftir leikinn í gær mjög ánægður með sigurinn og að hann hefði svarað gagnrýnisröddum sem hefðu verið á stjá í allt sumar. Sport 13.10.2005 19:42
Stórsigur á Suður Afríku Ísland sigraði Suður Afríku 4-1 í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld. Arnar Þór Viðarsson, Grétar Rafn Steinsson, Heiðar Helguson og Veigar Páll Gunnarsson gerðu mörk Íslendinga. Mark Veigars Páls var sérlega glæsilegt, þrumuskot utan teigs í efri 90 gráðurnar, sjón er sögu ríkari. Mark Suður Afríku gerði Delron Buckley. Sport 13.10.2005 19:42
Við Eiður Smári grétum saman Í nýútkominni bók sinni greinir John Terry, fyrirliði Chelsea, frá þeirri angist sem greip um sig meðal leikmanna liðsins eftir að þeir féllu úr Meistaradeildinni gegn Liverpool í undanúrslitum, annað árið í röð í vor og segir að tapið hafi fengið hvað mest á þrjá leikmenn liðsins. Sport 13.10.2005 19:42
Wright-Phillips ekki með Englandi Shaun Wright-Phillips, miðvallarleikmaður Chelsea, hefur dregið sig út úr enska landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Dönum í kvöld vegna meiðsla á hné. Sport 13.10.2005 19:42
Byrjunarliðið gegn Suður Afríku Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson hafa tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Suður-Afríku. Liðið er skipað (4-5-1) Árnir Gautur; Kristján Örn, Auðun, Stef´na G.,Indriði; Arnar Þór,Kári Árnason, Tryggvi G., Grétar Rafn, Eiður Smári; Heiðar Helguson. Sport 13.10.2005 19:42
Landsleikurinn í beinni hér á Vísi Landsleikur Íslands og Suður-Afríku í knattspyrnu sem fram fer í kvöld á Laugardalsvelli verður í beinni hér á boltavaktinni á Vísi. Elvar Geir Magnússon íþróttafréttamaður færir lesendum fregnir af vellinum um leið og eitthvað gerist. Sport 13.10.2005 19:42
Jafnt eftir hálftíma leik Staðan er jöfn 1-1 í leik Íslands og Suður Afríku þegar hálftími er liðinn af leiknum. Grétar Rafn Steinsson kom Íslandi yfir á 25. mínútu en Delron Buckley jafnaði fyrir Suður Afríku rúmri mínútu síðar. Leikurinn er í beinni á <strong>BOLTAVAKT VÍSIS.</strong> Sport 13.10.2005 19:42
Eiður, Grétar og Kári bestir Þeir Eiður Smári Guðjohnsen, Grétar Rafn Steinsson og Kári Árnason stóðu sig best í leiknum gegn Suður-Afríku að mati Fréttablaðsins en hér má finna dóm um frammistöðu allra leikmanna liðsins í 4-1 sigrinum á Laugardalsvellinum í gær. Sport 13.10.2005 19:42
Jafntefli hjá nágrönnunum Hollendingar og Þjóðverjar gerðu jafntefli í kvöld 2-2 í vináttulandsleik í Hollandi. Arjen Robben gerði bæði mörk Hollendinga og kom þeim í 2-0 en þeir Michael Ballack og Gerald Asemoah jöfnuðu fyrir Þjóðverja. Sport 13.10.2005 19:42
Danir flengdu Englendinga Danir tóku Englendinga í kennslustund í vináttuleik á Parken í Kaupmannahöfn í gærkvöld en þetta var stærsta tap enska landsliðsins í 25 ár. Englendingar binda miklar vonir við landslið sitt á HM í Þýskalandi næsta sumar, en ef marka má frammistöðu liðsins í gærkvöld þarf Sven-Göran Eriksson að lesa hressilega yfir hausamótunum á sínum mönnum. Sport 13.10.2005 19:42
Englendingar niðurlægðir á Parken Danir unnu Englendinga 4-1 í vináttulandsleik í Parken í Kaupmannahöfn. Mörk Dana gerðu Dennis Rommendahl, Jon Dahl Tomsson, Sören Larsen og Mikael Gravgaard. Mark Englendinga gerði Wayne Rooney. Danir komust í 3-0 á níu mínútna kafla í seinni hálfeik. Sport 13.10.2005 19:42
Rooney ætlar að hemja skapið Wayne Rooney, sóknarmaður Man. Utd. og enska landsliðsins, kveðst ætla að reyna eftir fremsta megni í vetur að láta skapið ekki hlaupa með sig í gönur, eins og það hefur stundum gert í gegnum tíðina. Sport 13.10.2005 19:42
Beckham ætlar sér í form David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, segir að hann líti á vináttuleikinn gegn Dönum í kvöld sem kærkomið tækifæri til að koma sér í form. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn og hefst kl. 18:00. Sport 13.10.2005 19:42