Meistaradeildin
249 250 251 252 253 254 255 256 257 … 274 ›
Juninho gagnrýnir brasilíska landsliðið Juninho, leikmaður Lyon í Frakklandi og fyrrum landsliðsmaður Brasilíu, gagnrýnir harðlega undirbúning Brassa fyrir HM í Þýskalandi í sumar og segir að liðið hafi farið á mótið með hangandi hendi. Hann segist þó ánægður með störf nýja landsliðsþjálfarans Dunga það sem af er. Fótbolti 28.11.2006 16:10
Chelsea tapaði fyrir Bremen Chelsea tapaði sínum fyrsta leik í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld þegar liðið lá 1-0 fyrir þýska liðinu Werder Bremen. Á sama tíma vann Barcelona 2-0 sigur á Levski Sofia með mörkum frá Giuly og Iniesta, en Eiður Smári Guðjohnsen náði ekki að koma sér á blað þrátt fyrir að eiga nokkur ágæt færi í leiknum. Chelsea og Bremen eru jöfn í efsta sæti riðilsins með 10 stig en Barcelona hefur 8 stig. Fótbolti 22.11.2006 21:37
Bremen hefur yfir gegn Chelsea Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sjö sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Þýska liðið Werder Bremen hefur yfir 1-0 gegn Chelsea á heimavelli sínum og þá hefur Barcelona yfir 1-0 gegn Levski Sofia í Búlgaríu. Ekkert mark er komið í leik Liverpool og PSV, en markaskorara kvöldsins má sjá á Boltavaktinni hér á íþróttasíðu Vísis. Fótbolti 22.11.2006 20:44
Vafasamt met hjá Spartak Bayern Munchen fór langt með að tryggja sér efsta sætið í B-riðli Meistaradeildarinnar í kvöld þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Spartak í Moskvu á gervigrasvelli liðsins. Spartak setti vafasamt met með jafnteflinu, því liðið hefur nú spilað 22 leiki án sigurs í Meistaradeildinni. Fótbolti 22.11.2006 19:47
Ancelotti hefur miklar áhyggjur Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, segist hafa miklar áhyggjur af slöku gegni liðs síns á leiktíðinni. Þessi ummæli lét hann falla eftir að Milan tapaði 1-0 fyrir AEK frá Aþenu í Meistaradeildinni í gær. Milan hefur þegar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitunum, en það dregur ekki úr áhyggjum þjálfarans. Fótbolti 22.11.2006 19:13
Mikil pressa á Eiði Smára í kvöld Útlit er fyrir að pressan sé mikil á Eið Smára Guðjohnsen hjá Barcelona í kvöld þegar liðið sækir Levski Sofia í Búlgaríu í Meistaradeildinni. Barcelona þarf nauðsynlega á sigri að halda og á heimasíðu félagsins í dag stendur að liðið muni treysta á að íslenski framherjinn sýni aðra eins frammistöðu og þegar hann skoraði tvö mörk gegn Mallorca í spænsku deildinni á dögunum. Fótbolti 22.11.2006 17:22
Kennum okkur sjálfum um tapið Ryan Giggs, leikmaður Manchester United, segir að tap liðsins gegn Celtic í Meistaradeildinni í gærkvöld sé engum öðrum að kenna en leikmönnunum sjálfum, sem hafi fengið á baukinn fyrir að nýta ekki færin sín. Hann hefur ekki stórar áhyggjur af því að mæta Benfica í lokaleiknum í riðlakeppninni. Fótbolti 22.11.2006 17:10
Benitez vill hirða toppsætið Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur lagt ríka áherslu á það við leikmenn sína að reyna að ná toppsætinu í C-riðli Meistaradeildarinnar í undirbúningi liðsins fyrir leikinn við PSV á Anfield í kvöld. Fótbolti 22.11.2006 16:56
Þrír leikir í beinni á Sýn í kvöld Keppni í Meistaradeild Evrópu heldur áfram með miklum látum í kvöld og sjónvarpsstöðvar Sýnar verða með þrjá leiki í beinni útsendingu. Leikur Werder Bremen og Chelsea verður í beinni á Sýn klukkan 19:30, Liverpool - PSV verður í beinni á Sýn Extra og Levski - Barcelona verður í beinni á Sýn Extra 2 á sama tíma. Fótbolti 22.11.2006 15:04
Vissi að Saha næði ekki að skora Neil Lennon, fyrirliði Glasgow Celtic, hefur gefið það upp að Gary Neville hjá Manchester United hafi komið til sín skömmu áður en Louis Saha tók vítaspyrnuna á lokamínútum leiks liðanna í Meistaradeildinni í gær og sagt sér að Saha myndi ekki skora úr henni. Fótbolti 22.11.2006 14:30
Mourinho ætlar að spila til sigurs Jose Mourinho segir sína menn í Chelsea ætla að sækja til sigurs gegn Werder Breen í Meistaradeildinni í kvöld, þó sigur gæti í raun orðið til þess að hjálpa erkifjendunum Barcelona að komast áfram upp úr riðlinum. Fótbolti 22.11.2006 13:43
Áfall að tapa þessum leik Sir Alex Ferguson segir að það hafi verið algjört áfall fyrir sig og sína menn í Manchester United að tapa fyrir Celtic í Meistaradeildinni í kvöld, en enska liðið hafði tögl og haldir áður en frábær aukaspyrna Japanans Nakamura tryggði Celtic sigurinn. Fótbolti 21.11.2006 23:20
Nakamura tryggði Celtic sigur á Man Utd Manchester United tapaði öðrum leik sínum í röð í Meistaradeild Evrópu í kvöld þegar liðið lá 1-0 fyrir Glasgow Celtic í Skotlandi. Enska liðið var mun betri aðilinn í leiknum en eins og til að kóróna slæmt kvöld hjá liðinu, misnotaði Louis Saha vítaspyrnu á lokamínútum leiksins. Það var japanski aukaspyrnusérfræðingurinn Nakamura sem tryggði Celtic sigur með stórkostlegu marki beint úr aukaspyrnu, en hann skoraði einnig beint úr aukaspyrnu í fyrri leik liðanna í haust. Fótbolti 21.11.2006 21:48
Hamburg yfir gegn Arsenal í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sjö sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu. Þýska liðið Hamburg hefur yfir 1-0 gegn Arsenal á Emirates þar sem Rafael van der Vaart skoraði strax á 4. mínútu og Lyon hefur yfir 2-1 gegn Real Madrid á Bernabeu. Enn er markalaust í baráttunni um Bretland á Celtic Park, en stöðuna í leikjum kvöldsins má sjá á Boltavaktinni hér á Vísi og svo eru þrír leikir í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðvum Sýnar. Fótbolti 21.11.2006 20:39
Porto tók CSKA Moskvu í kennslustund Einum leik er lokið í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Porto vann öruggan og sannfærandi útisigur á CSKA Moskvu 2-0 með mörkum frá Ricardo Quaresma og Lucho Gonzalés og er liðið fyrir vikið komið í toppsætið í G-riðli. Fótbolti 21.11.2006 19:45
Fjórir leikir í beinni á Sýn í dag Sjónvarpsstöðvar Sýnar verða með fjórar beinar útsendingar frá Meistaradeildinni í dag. Hátíðin hefst með leik CSKA Moskvu og Porto klukkan 17:15 á Sýn. Klukkan 19:30 hefst svo leikur Celtic og Manchester United á Sýn og á sama tíma verða leikir Arsenal og HSV á Sýn Extra og leikur Real Madrid og Lyon á Sýn Extra 2. Fótbolti 21.11.2006 14:37
Celtic ætti fullt erindi í ensku úrvalsdeildina Gordon Strachan og lærisveinar hans í skoska liðinu Glasgow Celtic mæta Manchester United í Meistaradeildinni í kvöld og á blaðamannafundi fyrir leikinn sagði Strachan að ekki væri jafn mikill munur á ensku úrvalsdeildinni og þeirri skosku og margir héldu. Fótbolti 21.11.2006 14:28
Geir verður eftirlitsmaður í Meistaradeildinni Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, verður eftirlitsmaður UEFA á leik Benfica og FC Kaupmannahöfn í Meistaradeild Evrópu á morgun. Leikurinn er liður í riðlakeppni Meistaradeildarinnar, en liðin eru í F-riðli keppninnar. Fótbolti 20.11.2006 20:03
Eiður kippir sér ekki upp við ummæli Mourinho Eiður Smári Guðjohnsen lét sér fátt um finnast í dag þegar hann var spurður út í ummæli fyrrum stjóra síns í sinn garð, en Jose Mourinho kallaði hann leikara fyrir leik Barcelona og Chelsea í síðasta mánuði. Fótbolti 17.11.2006 14:16
Peningasekt er ekki nóg fyrir ríku liðin Lennart Johansson, forseti knattspyrnusambands Evrópu, vill að refsingum fyrir ríkari félög verði breytt ef þau fara yfir strikið. Fótbolti 5.11.2006 17:35
Ole Gunnar frá í nokkrar vikur Norski markaskorarinn Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United verður frá keppni í nokkrar vikur eftir að hafa tognað aftan á læri í Meistaradeildarleiknum á Parken í gærkvöldi. Alex Ferguson knattspyrnustjóri liðsins segist hafa verið feginn að heyra að vandamálið var ekki alvarlegra en raun bar vitni og sagðist hafa óttast að hnéð hefði gefið sig þegar hann fór að haltra undir lok leiksins. Fótbolti 2.11.2006 14:50
Stórhuga í Meistaradeildinni Jose Mourinho segir að lið sitt sé að spila betur en nokkru sinni fyrr í Meistaradeild Evrópu og bendir á að þó samkeppnin sé hörð, hafi hans menn alla möguleika á að fara alla leið í keppninni að þessu sinni. Fótbolti 2.11.2006 14:41
Hugsanlega besti leikur okkar í Meistaradeildinni Arsene Wenger var ekkert að velta sér upp úr því að lið hans hafi farið illa með fjölda færa og því þurft að sætta sig við markalaust jafntefli á heimavelli við CSKA Moskva í kvöld. Hann segir spilamennsku liðsins hafa verið frábæra. Fótbolti 1.11.2006 23:24
Við verðum að ná í stig gegn Celtic Sir Alex Ferguson var ekki á þeim buxunum að koma með lélegar afsakanir í kvöld eftir að hans menn afhentu FC Kaupmannahöfn fyrsta sigur sinni í Meistaradeildinni í sögu félagsins. Ferguson sagði sína menn hafa fengið á baukinn fyrir að nýta ekki færi sín. Fótbolti 1.11.2006 23:20
United lá í Kaupmannahöfn Manchester United þurfti að sætta sig við 1-0 tap fyrir FC Kaupmannahöfn í Danmörku í kvöld og Arsenal og CSKA Moskva gerðu markalaust jafntefli í G-riðli, þar sem allt er nú opið. Fótbolti 1.11.2006 21:37
Dauft hjá enskum í fyrri hálfleik Ensku liðunum Arsenal og Manchester United hefur ekki gengið vel í fyrri hálfleik í leikjum sínum í Meistaradeild Evrópu sem sýndir eru beint á sjónvarpsstöðvum Sýnar í kvöld, en raunar hafa fá mörk verið skoruð í leikjunum átta sem standa yfir. Fótbolti 1.11.2006 20:36
Meiðsli Eiðs ekki alvarleg Ökklameiðsli landsliðsfyrirliðans Eiðs Smára Guðjohnsen í leiknum gegn Chelsea í Meistaradeildinni í gærkvöld voru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu og svo gæti farið að hann yrði klár í slaginn um helgina þegar meistararnir mæta Deportivo í deildinni. Fótbolti 1.11.2006 18:16
Arsenal - CSKA Moskva í beinni Leikur Arsenal og CSKA Moskvu í meistaradeild Evrópu verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 19:30 og á sama tíma verður leikur FC Kaupmannahöfn og Manchester United sýndur á Sýn Extra. Fótbolti 1.11.2006 15:58
Baunar áfram á Barcelona Jose Mourinho hrósaði baráttuanda sinna manna í gærkvöld þegar lið Chelsea náði jöfnu gegn Barcelona í Meistaradeildinni, en hann gat ekki stillt sig um að bauna aðeins á Frank Rijkaard þjálfara. Fótbolti 1.11.2006 14:44
Öruggt hjá Liverpool Liverpool átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Bordaeux af velli á heimavelli sínum í Meistaradeildinni í kvöld. Lokatölur urðu 3-0 og er Liverpool búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum, rétt eins og PSV sem sigraði Galatasary, 2-0. Fótbolti 31.10.2006 21:43