Meistaradeildin
262 263 264 265 266 267 268 269 270 … 274 ›
Egill dæmir í UEFA keppninni Egill Már Markússon verður dómari í síðari viðureign pólska liðsins Wisla Plock og Grasshoppers frá Sviss í UEFA-bikarnum, en liðin mætast á Gorskiego-leikvanginum í Plock á fimmtudag. Aðstoðardómarar verða þeir Gunnar Gylfason og Ingvar Guðfinnsson, og fjórði dómari verður Erlendur Eiríksson. Sport 13.10.2005 19:44
Soffía sigraði Evrópumeistarana CSKA Soffía sigraði Liverpool 1-0 á Anfield í 3.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Liverpool fer þó áfram því liðið vann fyrri viðureign liðanna 3-1. Þetta eru mjög óvænt úrslit því afar fáheyrt er að Evrópumeistarar tapi fyrir liði eins og CSKA Soffíu, en KA sem nú er í íslensku 1. deildinni sigraði CSKA á heimavelli fyrir 15 árum. Sport 13.10.2005 19:44
Liverpool undir í hálfleik CSKA frá Soffíu er að vinna Liverpool 1-0 í hálfleik á Anfield í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Stuðningsmenn Liverpool geta þó andað léttar því liðið vann fyrri leik liðanna 3-1 í Soffíu. Sport 13.10.2005 19:44
Sofia sektað fyrir Cisse-atvikið Búlgarska knattspyrnufélagið CSKA Sofia hefur verið sektað um 19.500 evrur vegna kynþáttaeineltis sem sóknarmaður Liverpool, Djibril Cisse varð fyrir í leik liðanna á dögunum. Sektin jafngildir um einni og hálfri milljón íslenskra króna. Sport 13.10.2005 19:43
Carvalho biður Mourinho afsökunar Ricardo Carvalho varnarmaður Chelsea hefur beðið Jose Mourinho afsökunar á ummælum sínum eftir leikinn gegn Wigan í úrvalsdeildinni um helgina. Þrátt fyrir afsökunarbeiðnina er reiknað með því að hann verði sektaður um tveggja vikna laun. Sport 13.10.2005 19:43
Sá besti sem við gátum fengið Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að miðjumaðurinn Michael Essien fullkomni Chelsea liðið og hann sé besti leikmaður í sinni stöðu sem hægt hafi verið að fá. Essien er 22 ára og kostaði Chelsea 24,4 milljónir punda sem er félagsmet. Sport 13.10.2005 19:43
Mörkin í símann Allir GSM viðskiptavinir Og Vodafone eiga nú kost á því að skoða mörkin úr ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu á þessu keppnistímabili. Þjónustan gefur knattspyrnuáhugamönnum tækifæri að fá send myndskeið af mörkum úr leikjum í Meistaradeildinni og ensku úrvalsdeildinni í símann fáeinum andartökum eftir að þau eru skoruð. Sport 13.10.2005 19:41
Cisse varð fyrir kynþáttafordómum Knattspyrnusamband Evrópu hefur gefið til kynna að það hyggist grípa til aðgerða vegna kynþáttafordóma í garð sóknarmannsins Djibril Cisse í leiknum gegn CSKA Sofia í gær. Leikurinn fór fram í Sofiu en þetta var fyrri viðureign liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Sport 13.10.2005 19:40
Liverpool yfir í hálfleik Liverpool er 2-1 yfir gegn CSKA Soffíu frá Búlgaríu í hálfleik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Djibril Cisse og Fernando Morientes gerðu mörk Liverpool en Dimitrov gerði mark Búlgaranna en leikurinn fer fram í Soffíu. Sport 13.10.2005 19:40
Liverpool sigraði í Soffíu Liverpool sigraði CSKA Soffíu í kvöld 3-1 í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Fernando Morientes gerði tvö marka Liverpool en Djibril Cisse eitt. Úrslit annara leikja í kvöld í forkeppni Meistaradeilda karla var eftirfarandi... Sport 13.10.2005 19:40
Buryak látinn fara Stjórnarmenn úkraínska knattspyrnuliðsins Dynamo Kiev ráku í dag Leonid Buryak þjálfara liðsins þrátt fyrir að Buryak hafi aðeins stjórnað liðinu í 2 mánuði. Liðinu hefur gengið illa í úkraínsku deildinni og var slegið út í forkeppni meistaradeildar Evrópu af svissneska liðinu Thun í síðustu viku. Anatoly Demyanenko var ráðinn í stað Buryaks Sport 13.10.2005 19:39
Sigur hjá Árna Gauti og félögum Árni Gautur Arason og félagar í norska liðinu Välerenga sigruðu Club Brugge frá Belgíu 1-0 í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Manchester United sigraði Debrechen frá Ungveralandi 3-0 með mörkum frá Wayne Rooney, Ruud van Nistelrooy og Ronaldo. Úrslit kvöldsins í forkeppni Meistaradeildarinnar eru eftirfarandi.... Sport 13.10.2005 19:39
United yfir í hálfleik Manchester United er 1-0 yfir gegn Debrechen frá Ungverjalandi í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Wayne Rooney gerði mark United á 7. mínútu.Þá er leik Glasgow Rangers frá Skotlandi lokið, þeir sigruðu Anorthosis frá Kýpur 2-1 á útivelli í sömu keppni. Sport 13.10.2005 19:39
Geir eftirlitsmaður á Spáni Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, verður eftirlitsmaður UEFA á viðureign Real Betis og Mónakó í 3. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Liðin mætast á Manuel Ruíz de Lopera leikvanginum í Sevilla á Spáni á þriðjudagskvöld. Sport 13.10.2005 19:39
Vålerenga áfram í Meistaradeild Árni Gautur Arason og félagar í norska liðinu Vålerenga tryggðu sér í kvöld farseðilinn í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu þegar þeir lögðu Haka frá Finnlandi 1-4 á útivelli. Árni lék að venju allan leikinn í marki Vålerenga sem mætir Club Brugge frá Belgíu í næstu umferð forkeppninnar. Sport 13.10.2005 19:37
Neftchi vann Anderlecht heima Neftchi Baku frá Azerbaijan, sem sló FH út úr Meistaradeildinni í knattspyrnu á dögunum, vann 1-0 sigur á Anderlecht frá Belgíu í kvöld í síðari leik liðanna í 2. umferð forkeppninnar. Anderlecht vann fyrri leikinn örugglega heima fyrir viku, 5-0 þannig að samanlagður sigur Belganna var aldrei í hættu og FH-banarnir eru úr leik. Sport 13.10.2005 19:37
Liverpool áfram í Meistaradeild Liverpool tryggði sér í kvöld farseðilinn í 3. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar þegar Evrópumeistararnir lögðu Kaunas frá Litháen, 2-0 í síðari leik liðanna á Anfield. Samanlagður sigur því 5-1. Steven Gerrard skoraði fyrra mark Liverpool í kvöld á 77. mínútu aðeins þremur mínútum eftir að hann kom inn á af varamannabekknum. Sport 13.10.2005 19:37
Carson og Crouch í byrjunarliðinu Sami Hyypia er fyrirliði Liverpool í kvöld þegar Evrópumeistararnir taka á móti Kaunas frá Litháen í síðari viðureign liðanna í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Rafael Benitez setur ungstirnið Scott Carson í markið í stað Jose Reina og þá er kóngurinn á Anfield, Steven Gerrard á varamannabekknum ásamt öðrum stórjöxlum. Leikurinn hófst kl. 18:45. Sport 13.10.2005 19:37
Markalaust í hálfleik á Anfield Staðan í hálfleik í viðureign Liverpool og Kaunas í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar er 0-0 en leikið er á Anfield. Leikurinn hófst kl. 18:45. Þetta er síðari leikur liðanna en Liverpool vann fyrri leikinn í Litháen 1-3. Liverpool hefur ráðið gangi leiksins í fyrri hálfleik. Sport 13.10.2005 19:37
Ótrúlegur leikur í Glasgow í kvöld Glasgow Celtic er úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu þrátt fyrir 4-0 sigur á Artmedia frá Slóvakíu á Celtic Park í kvöld. Slóvaska liðið vann fyrri leikinn heima fyrir 5-0 og því hefði Celtic þurft að komast í sögubækurnar til að knýja fram framlengingu með því að vinna upp þann mun. Sport 13.10.2005 19:37
Sveittur og kaldur með Liverpool Sigursteinn Brynjólfsson formaður Liverpool klúbbsins á Íslandi á von á því að Jerzy Dudek og Milan Baros fari frá félaginu innan skamms. Hann ætlar á Players í kvöld að horfa á seinni leik Liverpool og Kaunas frá Litháen í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst kl. 18:45. Sport 13.10.2005 19:37
Baros er alltof dýr fyrir Schalke Milan Baros er ekki á leiðinni til þýska liðsins Schalke 04 eins og allt stefndi í þar sem Þjóðverjunum þykir verðmiði Liverpool á tékkneska framherjanum vera alltof hár. Evrópumeistarar Liverpool vilja fá 7 milljónir punda eða um 800 milljónir íslenskra króna fyrir Baros. Sport 13.10.2005 19:36
Slag Liverpool-liðanna frestað Þeim sem vildu að Liverpool og Everton drægjust saman í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu varð ekki að ósk sinni þó svo að möguleikinn hafi vissulega verið fyrir hendi. Þess í stað fékk Everton það erfiða verkefni að mæta spænska liðinu Villareal og Liverpool mætir sigurvegaranum úr viðureignum Tirana KF og CSKA Sofia. Sport 13.10.2005 19:36
Liverpool-liðin mætast ekki Liverpool-liðin, Liverpool og Everton, mætast ekki í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en dregið var í dag. Vinni Liverpool Kaunas frá Litháen mætir liðið sigurvegurum úr leik Tirana og CSKA Sofia en Everton mætir spænska liðinu Villarreal. Manchester United er líklega á leiðinni til Ungverjalands. Sport 13.10.2005 19:36
Kristinn dæmir í Meistaradeildinni Knattspyrnudómarinn Kristinn Jakobsson dæmir í kvöld leik í annarri umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn er heimaleikur albanska liðsins KF Tirana og CSKA Sofia frá Búlgaríu og hefst hann kl. 18:30 að íslenskum tíma. Aðstoðardómarar í leiknum verða Pjetur Sigurðsson og Sigurður Óli Þorleifson. Eigill Már Markússon er eftirlitsdómari. Sport 13.10.2005 19:35
Anderlecht burstaði Nefchi FH banarnir í Nefchi fengu slæman skell í Belgíu í kvöld er liðið tapaði 5-0 fyrir Anderlecht í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Seinni leikur liðanna verður í Azerbadjan eftir rúma viku. Þá sigruðu Árni Gautur Arason og félagar hans í norska liðinu Valerenga lið Haka frá Finnlandi 1-0 en leikurinn fór fram í Noregi. Sport 13.10.2005 19:35
Liverpool yfir í hálfleik Liverpool er yfir í hálfleik gegn Kaunas í Litháen 2-1 í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Baravicius kom Kaunas yfir en þeir Cisse og Carrager gerðu mörk Liverpool. Sport 13.10.2005 19:35
Liverpool sigraði 3-1 Liverpool sigraði lið Kaunas frá Litháen 3-1 í Litháen í annarri umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Kaunas komst yfir með marki frá Baravicius en þeir Cisse, Carrager og Gerrard úr víti svöruðu fyrir Liverpool. Sport 13.10.2005 19:35
Liverpool gegn Kaunas í kvöld Allt bendir til þess að miðjumaðurinn Steven Gerrard verði orðinn klár fyrir Evrópuleik Liverpool gegn Kaunas í kvöld. Hann þurfti að hætta á æfingu á mánudagskvöld vegna meiðsla á ökkla en er líklegast klár fyrir leik kvöldsins. Sport 13.10.2005 19:34
Fyrsti sigur lúxemborgsks liðs F91 Dudelange varð í gær fyrsta knattspyrnuliðið frá Lúxemborg til þess að vinna leik í Evrópukeppni meistaraliða í 42 ár. Dudelange sigraði Bosníumeistarana í Mostar, 4-0, eftir að Mostar hafði unnið fyrri leikinn á heimavelli l-0. Sport 13.10.2005 19:33
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn