Nord Stream-leiðslurnar í Eystrasalti
Sagðir hafa lagt á ráðin um skemmdarverkin á Nord Stream í ölæði Hugmyndin um að vinna skemmdarverk á Nord Stream-gasleiðslunum er sögð hafa orðið til í ölæði hjá hópi úkraínskra herforingja og kaupsýslumanna. Herforingi hafi hunsað fyrirmæli Volodýmýrs Selenskíj forseta um að hætta við árásina. Erlent 15.8.2024 10:34
Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Þjóðverjar hafa gefið út handtökuskipun innan evrópska efnahagssvæðisins á hendur úkraínskum köfunarkennara sem er sakaður um að hafa verið hluti af teymi sem sprengdi upp Nord Stream gasleiðsluna á sínum tíma. Erlent 14.8.2024 07:56
Skemmdir á öðrum sæstreng í Eystrasalti Carl-Oskar Bohlin, ráðherra almannavarnamála í Svíþjóðar, segir að skemmdir hafi orðið á sæstreng sem liggur á milli Svíþjóðar og Eistlands í Eystrasalti. Hann segir að ekki hafi orðið rof á strengnum og að hann geti áfram verið starfræktur. Erlent 17.10.2023 14:44
Enn lítið um svör, ári frá sprengingunum Ár er liðið frá því Nord Stream gasleiðslurnar voru skemmdar í sprengingum á botni Eystrasalts. Skemmdarverkið er til rannsóknar í nokkrum ríkjum en enn er ekki búið að varpa ljósi á því hverjir sprengdu leiðslurnar. Erlent 26.9.2023 16:00
Vissu af áætlun Úkraínumanna um árás á Nord Stream Yfirvöld í Bandaríkjunum fengu í júní í fyrra upplýsingar frá evrópskri leyniþjónustu um að Úkraínumenn hefðu skipulagt árás á Nord Stream gasleiðslurnar. Þremur mánuðum síðar, eða þann 22. september, sprungu sprengjur við Nord Stream 1 og 2 en skemmdarverkinu hefur verið lýst sem bíræfni árás á orkuinnviði Evrópu. Erlent 6.6.2023 16:48
Mynduðu rússneskt rannsóknarskip við Nord Stream Nokkrum dögum áður en Nord Stream gasleiðslurnar sprungu á botni Eystrasalts, mynduðu danskir sjóliðar rússneskt rannsóknarskip á svæðinu. Skipið, sem kallast SS-750 ber lítinn kafbát og er smíðað til rannsóknarstarfa neðansjávar. Erlent 28.4.2023 11:13
Endurnýja tryggingar á Nordstream-gasleiðslunni Tvö stór þýsk tryggingafélög endurnýjuðu tryggingu á Nordstream 1-gasleiðslunni sem skemmdarverk voru unnin á í haust. Það er sagt benda til þess að ekki hafi verið útilokað að leiðslan verði tekin aftur í notkun einhvern daginn. Viðskipti erlent 4.4.2023 11:49
Svíar staðfesta að skemmdarverk voru unnin á Nord Stream leiðslunum Saksóknarinn sem fer fyrir rannsókn Svía á skemmdunum á Nord Stream 1 og 2 gasleiðslunum í Eystrasalti hefur staðfest að um skemmdarverk sé að ræða og segir leifar sprengjuefna hafa fundist á vettvangi. Erlent 18.11.2022 09:58
Fimmtíu metra kafli Nord Stream 1-leiðslunnar eyðilagður Nýjar neðansjávarmyndir úr Eystrasalti benda til að um fimmtíu metra kafli gasleiðslunnar Nord Stream 1 í Eystrasalti sé eyðilagður. Erlent 18.10.2022 08:08
Segja gas hætt að leka úr Nord Stream leiðslunum Rússneska orkufyrirtækið Gazprom segir að þrýstingur í Nord Stream leiðslunum í Eystrasaltinu sé kominn í jafnvægi eftir að leki kom upp í síðustu viku. Verið sé að vinna í að takmarka skaðleg áhrif á umhverfið en gas sé hætt að leka úr leiðslunum. Erlent 3.10.2022 11:01
Putin segir Vesturlönd sækja að Rússum með skemmdarverkum og úrkynjun Úkraína hefur óskað eftir aðild að Atlantshafsbandalaginu með hraði eftir að Rússlandsforseti setti á svið innlimun fjögurra héraða í landinu með athöfn í Kreml í dag. Utanríkisráðherra segir ekkert mark takandi á svo kölluðum kosningum í þessum héruðum þar sem varla fannst maður á móti innlimuninni. Erlent 30.9.2022 19:21
Svíar á svæðinu sólarhring áður en meint skemmdarverk átti sér stað Fjórir lekar fundust á Nord stream 1 og 2 gasleiðslurnar í Eystrasalti á dögunum og telur Atlantshafsbandalagið að um skemmdarverk hafi verið að ræða. Norrænir jarðskjálftamælar urðu varir við tvær sprengingar á svæðinu. Sænski sjóherinn sinnti eftirliti á svæðinu þangað til sólarhring áður en meintu skemmdarverkin áttu sér stað. Erlent 30.9.2022 18:37
Lekinn í Eystrasalti lítill hluti af losun manna á metani Þrátt fyrir að þúsundir tonna af jarðgasi velli út um göt á Nord Stream-gasleiðslunum tveimur er lekinn lítill í samanburði við aðra losun manna á metani. Áætlað er að ef allt gasið í leiðslunum læki út í andrúmsloftið næmi það um 0,1% af heildarlosun á metani í heiminum. Erlent 30.9.2022 09:35
Þjóðaröryggisstefnan uppfærð eftir innrás Rússa Forsætisráðherra segir þjóðaröryggisstefnu Íslands hafa sannað gildi sitt og væri í uppfærslu eftir innrás Rússa í Úkraínu. Framlög til varnarmála hafi verið aukin á undanförnum árum og náið samstarf sé haft við bandalagsríki. Ekki hafi verið óskað eftir varanlegri herstöð á Íslandi. Innlent 29.9.2022 19:20
Sást til rússneskra herskipa nærri lekastaðnum í vikunni Evrópskar öryggisstofnanir eru sagðar hafa fylgst með ferðum rússneskra herskipa nærri staðnum þar sem lekar komu á Nord Stream-gasleiðslurnar í Eystrasalti í vikunni. Atlantshafsbandalagið telur að um skemmdarverk hafi verið að ræða. Erlent 29.9.2022 14:04
Skemmdir á gasleiðslum færa átökin nær Íslandi Forsætisráðherra segir stjórnvöld fylgjast grannt með atburðarás stríðsins í Úkraínu og nú síðast skemmdarverkum á gasleiðslum í Eystrasalti sem færi átökin nær Íslendingum. Framlög til varnarmála hefðu verið aukin og mikilvæt væri að tryggja netöryggi. Innlent 29.9.2022 13:10
Svíar fundu fjórða lekann og Rússar benda á Bandaríkjamenn Sænska landhelgisgæslan hefur fundið fjórða gaslekann á Nord Stream gasleiðslunum, samkvæmt Svenska Dagbladet. Blaðið hefur eftir talsmanni landhelgisgæslunnar að tveir af lekunum fjórum séu í sænskri lögsögu en hinir tveir eru í danskri lögsögu. Erlent 29.9.2022 07:30
Telja gasleiðslurnar geta skemmst varanlega Óttast er að rússnesku gasleiðslurnar tvær í Eystrasalti kunni að skemmast varanlega eftir skemmdarverk sem virðast hafa verið unnin á þeim. Þýski sjóherinn ætlar að taka þátt í rannsókn á lekanum. Erlent 28.9.2022 14:36
Óttast loftslagsstórslys vegna gaslekans Losun gróðurhúsalofttegunda frá lekanum í Nord Stream-gasleiðslunum tveimur í Eystrasalti gæti jafnast á við árslosun heillrar borgar. Vísindamenn óttast loftslagshamfarir en losun vegna lekans gæti í versta falli orðið umtalsvert meiri en árslosun Íslands. Erlent 28.9.2022 10:54
Danir telja sprengingarnar hafa verið skemmdarverk Forsætisráðherra Danmerkur sagði á blaðamannafundi fyrr í kvöld að dönsk yfirvöld telji að sprengingarnar tvær, sem ollu leka á Nord stream gasleiðslunum í gær, hafi verið skemmdarverk. Hún sagðist þó ekkert geta gefið upp um hverjir eru taldir standa að baki skemmdarverkum. Erlent 27.9.2022 19:52
Greindu sprengingar við Nord Stream leiðslurnar Tvær sprengingar greindust greinilega á mælitækjum í Svíþjóð og Noregi þegar göt mynduðust á Nord Stream 1 og Nord Stream 2 leiðslunum í Eystrasalti. Þá birtu Danir í dag myndefni sem sýnir lekana á yfirborði hafsins. Erlent 27.9.2022 13:46
Lekar í Nord Stream 1 og 2 mögulega skipulagðar árásir Lekar sem uppgötvuðust í báðum Nord Stream-gasleiðslunum Eystrasalti í gær - Nord Stream 1 og 2 - kunna skýrast af því að skipulögð árás hafi verið gerð á leiðslunar. Erlent 27.9.2022 08:03