Stj.mál
116 117 118 119 120 121 122 123 124 … 187 ›
Gagnrýndi ómálefnalega umræðu Tími Ingibjörgar Sólrúnar sem leiðtogi Samfylkingarinnar er ekki kominn sagði Össur Skarphéðinsson, formaður flokksins, á opnum stjórnmálafundi á Akureyri í dag. Ingibjörg Sólrún gagnrýndi Össur og stuðningsmenn hans fyrir ómálefnalega umræðu. Innlent 13.10.2005 19:04
Hafi erindi sem erfiði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segist vona að Agnes Bragadóttir og félagar hennar í átaki til að koma saman hópi lítilla fjárfesta til að kaupa hlut í Símanum hafi erindi sem erfiði. Hann furðar sig hins vegar á því að hún geri Alþingi að blóraböggli. Innlent 13.10.2005 19:04
Össur og Ingibjörg á Akureyri Össur Skarphéðinsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eru á meðal ræðumanna á opnum fundi um stjórnmál unga fólksins á Akureyri í hádeginu. Fundurinn ber yfirskriftina <em>Ekki gera eins og mamma þín segir þér!</em> - klár tilvísun í þá félaga Karíus og Baktus. Þetta er í fyrsta sinn sem þau Ingibjörg og Össur mæta á sameiginlegan fund frá því að baráttan um formannsembættið í Samfylkingunni tók að harðna. Innlent 13.10.2005 19:04
Illskiljanleg ákvörðun Heilbrigðisyfirvöld fyrirskipa sameiningu allra heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu. Starfsfólk heilsugæslunnar í Hafnarfirði telur að ákvörðunin gangi þvert gegn fyrri yfirlýsingum heilbrigðisráðherra. Reglugerð um framkvæmd sameiningarinnar hefur ekki verið gefin út. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:04
Björn fagnar áræði Agnesar Björn Bjarnason dómsmálaráðherra vonar að Agnes Bragadóttir blaðamaður og félagar hennar hafi erindi sem erfiði í baráttu sinni fyrir því að almenningur eignist sem stærstan hlut í Símanum. Þetta segir Björn á heimasíðu sinni í dag og fagnar áræði Agnesar sem og dugnaði. Innlent 13.10.2005 19:04
Háhraðavæðing fyrir árið 2007 Fjarskiptaáætlun fyrir tímabilið 2005-2010 gerir ráð fyrir að öll heimili, stofnanir og fyrirtæki landsins verði orðin háhraðavædd fyrir árið 2007 sem muni skipa Íslandi í fremstu röð þjóða í upplýsingatækni. Áætlunin gerir ráð fyrir að ein sjónvarpsstöð hið minnsta verði send stafrænt út um gervihnött fyrir landið allt og næstu mið strax á þessu ári og að í boði verði stafrænt sjónvarp um háhraðanet. Innlent 13.10.2005 19:04
Gagnrýna lóðaútdrátt í Lamabaseli Niðurstöður happadrættisins um lóðirnar 30 í Lambaselinu í Reykjavík sem fram fór á fimmtudag eru stórlega dregnar í efa í grein sem birtist á <em>Vefþjóðviljanum</em> í dag. Greinarhöfundar benda á að umsókn númer 545 var dregin út í 14. drætti og umsókn númer 546 í 15. drætti. Þykir þeim ólíklegt að tvær samliggjandi umsóknir úr svo stórum bunka séu dregnar út í röð. Innlent 13.10.2005 19:04
Tími Ingibjargar ekki kominn Það er ekkert sem bendir til þess að tími Ingibjargar Sólrúnar muni ekki koma einhvern tíma en það verður þó að bíða betri tíma. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson á opnum fundi um stjórnmál unga fólksins sem haldinn var fyrir norðan í dag undir yfirskriftinni <em>Ekki gera eins og mamma þín segir þér</em>. Þá sagðist Össur sjálfur vera best til þess fallinn að leiða flokkinn í næstu kosningum. Innlent 13.10.2005 19:04
Auka kvóta úr sameiginlegum stofni Sjávarútvegsráðherra ákvað í gær einhliða að auka kvóta íslenskra skipa til veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum. Fá íslensku skipin á þessu ári að veiða 157.700 lestir af norsk-íslenskri síld. Ekki náðist samkomulag við Norðmenn um veiðarnar og hafa báðar þjóðir því í reynd tekið einhliða ákvörðun í málinu. Innlent 13.10.2005 19:04
Athyglin dregin frá kjarna málsins Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að forseti Alþingis hafi beitt gamaldags aðferðafræði í pólitík og dregið athyglina frá kjarna málsins með því að víta hann á þinginu. Innlent 13.10.2005 19:03
Hvetja til afgreiðslu frumvarps Ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem skorað er á allsherjarnefnd Alþingis að hleypa frumvarpi um niðurfellingu fyrningarfrests í kynferðisafbrotamálum gegn börnum út úr nefndinni og leyfa Alþingi að afgreiða frumvarpið á lýðræðislegan hátt í samræmi við þingskaparlög en frumvarpið hefur legið óafgreitt hjá nefndinni í hartnær tvö ár. Innlent 13.10.2005 19:04
Vonarstjarna almennra flokksmanna Helle Thorning-Schmidt er fyrsta konan til að leiða danska jafnaðarmannaflokkinn og um leið fyrsta konan í sögu danskra stjórnmála sem á raunhæfan kost á að verða forsætisráðherra. Hún hyggst færa stefnu flokksins nær miðju.</font /></b /> Erlent 13.10.2005 19:04
Samfylkingin: Félögum fjölgar ört Félögum í Samfylkingunni hefur að líkindum fjölgað um tæpan þriðjung í aðdraganda formannskosninganna, en kjörskrá var lokað klukkan sex. Formaður kjörstjórnar óttast ekki að stuðningsmenn annarra flokka hafi skráð sig í stórum stíl til að hafa áhrif á kosningarnar. Innlent 13.10.2005 19:04
Þörf á ungliðum í forystusveit Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður býður sig fram til varaformanns Samfylkingarinnar. Ákvörðun sína tilkynnti hann opinberlega í gær og tók þar með áskorun framkvæmdastjórnar Ungra jafnaðarmanna. Innlent 13.10.2005 19:04
Tölvupóstur verður dulkóðaður Til skoðunar er að dulkóða tölvupóst á milli starfsmanna ráðuneytanna til að koma í veg fyrir að viðkvæm mál berist til óviðkomandi. Dæmi eru um að mál er varða þjóðaröryggi hafi lent í röngum höndum. Innlent 13.10.2005 19:03
Undrast hlutleysi Ágústs Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður tilkynnti í morgun að hann gæfi kost á sér til embættis varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í maí. Ágúst Ólafur er 28 ára og var kjörinn á þing í kosningunum árið 2003. Samfylkingarmenn sem fréttastofa ræddi við í morgun eru undrandi á yfirlýsingum Ágústs um að hann ætli engan að styðja til formannskjörs. Innlent 13.10.2005 19:03
Hafi tíma til að skila inn tilboði Forsætisráðherra telur einsýnt að almenningssímafélagi Agnesar Bragadóttur og fleiri vinnist tími til að skila inn tilboði í Landssímann, fresturinn verði rýmri en talið var. Agnes gekk ásamt félögum sínum á fund í stjórnarráðinu í hádeginu. Innlent 13.10.2005 19:04
Meðalverð lóða ríflega 100% hærra Meðalverð á einbýlishúsalóðum í Norðlingaholti var vel á annað hundrað prósentum hærra í tilboðunum, sem opnuð voru í gær, en í tilboðunum í júní í fyrra. Þá er lóðaverð vegna íbúðar í fjölbýlishúsi orðið hærra en einbýlishúsalóð kostaði fyrir nokkrum misserum. Innlent 13.10.2005 19:03
Landburður af nýjum félögum Talið er að allt að 4.000 nýir félagar hafi skráð sig í Samfylkinguna, en frestur til skráningar fyrir formannskjörið rann út klukkan sex í gærkvöld. "Það er landburður af nýjum félögum," segir Flosi Eiríksson formaður kjörstjórnar Samfylkingarinnar. Innlent 13.10.2005 19:04
Undirbýr leyfi til olíurannsókna Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hefja undirbúning að því að veita olíufyrirtækjum leyfi til rannsókna og vinnslu á olíu á landgrunni Íslands. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra lagði fram greinargerð um málið á ríkisstjórnarfundi í dag og samþykkti ríkisstjórnin áætlun sem gerir ráð fyrir að nauðsynlegum undirbúningi til að bjóða fram leyfi verði lokið í ársbyrjun 2007. Innlent 13.10.2005 19:04
Auka kvóta til jafns við Norðmenn Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að íslenskum skipum verði heimilt að veiða 157.700 lestir af norsk-íslenskri síld á þessu ári, en það er 14 prósentum stærri hlutur en Íslendingum var ætlaður samkvæmt vísindaráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Þessi aukning er jöfn aukningu Norðmanna á kvóta sínum úr stofninum að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu. Innlent 13.10.2005 19:04
Vítum mótmælt Þingflokkur Samfylkingar hefur sent Forsætisnefnd Alþingis bréf, þar sem því er harðlega mótmælt að orð Lúðvíks Bergvinssonar hafi verið af því tagi að forseti Alþingis hefði átt að víta hann á miðvikudag. Innlent 13.10.2005 19:03
Nýtt innflytjendaráð í deiglunni Stefnt verður að því að stofna innflytjendaráð til að sinna brýnum málefnum innflytjenda og bera ábyrgð á móttöku flóttamanna. Ráðið mun heyra undir félagsmálaráðuneyti, en vera skipað fulltrúum fjögurra ráðuneyta og Sambands sveitarfélaga. Innlent 13.10.2005 19:03
Neyðarfundur á Ítalíu Ríkisstjórn Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, er í kreppu. Neyðarfundur var haldinn í dag en ríkisstjórnarflokkarnir töpuðu miklu fylgi í héraðskosningum í síðustu viku. Erlent 13.10.2005 19:03
Samfylkingin mótmælir vítinu Þingflokkur Samfylkingarinnar mótmælir því harðlega að orð Lúðvíks Bergvinssonar, sem Halldór Blöndal vítti hann fyrir í gær, hafi verið af því tagi að beita ætti vítum. Lúðvík sagði: „Forseti, ég hef orðið.“ Innlent 13.10.2005 19:03
Chirac reynir að sannfæra Frakka Jacques Chirac Frakklandsforseti mun í kvöld taka þátt í sjónvarpskappræðum með áttatíu frönskum ungmennum þar sem fjallað verður um stjórnarskrá Evrópusambandsins. Chirac mun reyna að koma þeim skilaboðum til þjóðarinnar að hún verði að samþykkja stjórnarskrána í lok maí. Erlent 13.10.2005 19:03
Borgin látin kaupa kampavínsbörur Borgarstarfsmenn voru látnir kaupa og sendast með þrjár hjólbörur undir vín í fimmtugsafmæli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Ekki var gerður reikningur. Rekstrarstjóri hjá gatnamálasviði segir börurnar hafa nýst síðar í hverfisstöð. Til marks um velvild starfsmanna í sinn garð að mati Ingibjargar Sólrúnar sem telur ekkert óeðlilegt við málið. Innlent 13.10.2005 19:03
Kárahnjúkar með axlabönd og belti Formaður Vinstri - grænna sagði það hneyksli að Kárahnjúkavirkjun hefði verið troðið í gegnum Alþingi um leið og viðvaranir vísindamanna um misgengissprungur hefðu verið þaggaðar niður. Iðnaðarráðherra sagðist hins vegar í þingumræðum í dag þess fullviss að engin hætta væri á ferðum og sagði virkjunina með tvenn axlabönd og tvö belti. Innlent 13.10.2005 19:03
Mun bjóða sig fram Ágúst Ólafur Ágústsson mun formlega tilkynna í dag að hann muni gefa kost á sér sem varaformaður Samfylkingar á næsta landsfundi. Innlent 13.10.2005 19:03
Framlögin hafa rúmlega tvöfaldast Framlög ríkisins til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hafa meira en tvöfaldast á síðustu sjö árum, úr 3,3 milljörðum króna árið 1998 í 7,1 milljarð 2005. Þetta kemur fram í nýju vefriti fjármálaráðuneytisins. Innlent 13.10.2005 19:03