Lögreglumál
156 157 158 159 160 161 162 163 164 … 275 ›
Fiskur og slor dreifðist um veginn Laust fyrir klukkan hálffjögur í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um umferðaróhapp á Suðurlandsvegi við Lækjarbotna. Innlent 16.2.2021 06:23
Til marks um „annan veruleika“ ef um uppgjör var að ræða Ef rannsókn leiðir í ljós að manndrápið við Rauðagerði um helgina tengist uppgjöri eða átökum í undirheimum eru það verulega alvarleg tíðindi og til marks um eitthvað sem ekki hefur tilheyrt íslenskum veruleika til þessa, að mati yfirlögregluþjóns. Innlent 15.2.2021 20:34
Sextán teknir fyrir brot á sóttkví Á einungis nokkrum vikum, eða frá 1. janúar til 5. febrúar, voru sextán einstaklingar sektaðir vegna brota á sóttkví eftir komuna til landsins. Innlent 15.2.2021 19:14
Íslendings leitað í tengslum við manndrápið Íslensks karlmanns er leitað í tengslum við rannsókn á manndrápi í Reykjavík í fyrrinótt. Talið er að málið tengist uppgjöri í undirheimunum en karlmaður frá Litháen hefur verið hnepptur í gæsluvarðhald vegna málsins. Dómsmálaráðherra segist skynja aukna hörku í undirheimunum og segir mikilvægt að bregðast við. Innlent 15.2.2021 18:52
Telur að þjálfa þurfi almenna lögreglumenn til að vopnast Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi lögregluþjónn, telur að þjálfa þurfi almenna lögreglumenn til að vopnbúast ef þörf er á. Þessa skoðun sína setur hann í samhengi við manndráp við Rauðagerði í Reykjavík um helgina. Innlent 15.2.2021 18:40
Kofinn enn ófeðraður Timburkofi sem fannst brotinn á Suðurstrandarvegi rétt vestan við Hlíðarvatn að mánudagskvöldið 8. febrúar er enn ófeðraður að sögn Lögreglunnar á Suðurlandi. Talið er að kofinn hafi fallið af flutningabíl umrætt kvöld. Innlent 15.2.2021 12:05
Meðal annars skotinn í höfuðið Karlmaður á fertugsaldri var í gærkvöldi úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag vegna gruns um aðild að manndrápi við Rauðagerði í fyrrinótt. Heimildir fréttastofu herma að maðurinn sem hinn handtekni er grunaður um að hafa myrt hafi verið skotinn nokkrum sinnum, meðal annars í höfuðið. Innlent 15.2.2021 11:31
Í gæsluvarðhaldi til 19. febrúar vegna manndráps við Rauðagerði Karlmaður á fertugsaldri var í kvöld úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 19. febrúar á grundvelli rannsóknarhagsmuna, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í þágu rannsóknar hennar á manndrápi við Rauðagerði í Reykjavík um miðnætti í gærkvöldi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Innlent 14.2.2021 23:40
Rúmlega helmingur býr enn við ofbeldisaðstæður Rúmlega helmingur þeirra sem varð fyrir heimilisofbeldi í fyrra býr enn við aðstæðurnar og er hlutfallið talsvert hærra miðað við fyrri ár, samkvæmt nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra. Skýrsluhöfundur telur að aukið atvinnuleysi og óvissa í samfélaginu hafi áhrif á stöðuna. Innlent 14.2.2021 17:00
Skotinn til bana fyrir utan heimili sitt Karlmaður á fertugsaldri var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði í Reykjavík um miðnætti síðastliðna nótt. Karlmaður er í haldi lögreglu í tenglsum við málið. Innlent 14.2.2021 14:34
Mannslát í Reykjavík til rannsóknar og einn í haldi Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í nótt tilkynning um slasaðan karlmann á fertugsaldri fyrir utan hús í Rauðagerði í Reykjavík. Endurlífgunartilraunir hófust strax á vettvangi og í kjölfarið var hann fluttur á Landspítala. Hann var úrskurðaður látinn stuttu eftir komuna. Innlent 14.2.2021 11:12
Sími, borvélar, humar og nautakjöt meðal þess sem stolið var Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fimmtán hávaðaútköllum frá klukkan fimm síðdegis í gær til klukkan fimm í morgun. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Innlent 14.2.2021 07:29
Þriðji staðurinn á von á sekt eftir brot um helgina Aðstandendur eins veitingastaðar í Reykjavík mega eiga von á kæru, þar sem staðnum hafði ekki verið lokað þegar klukkan var tuttugu mínútur yfir tíu í gærkvöldi. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Innlent 14.2.2021 07:18
Á von á að málum staðanna í miðbænum ljúki með sekt Víða var fullbókað á veitingastöðum í miðborginni í gær, fyrstu helgina sem krár og skemmtistaðir fengu að taka úr lás eftir rúmlega fjögurra mánaða lokun. Tveir veitingastaðir eiga von á sekt vegna brota á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Innlent 13.2.2021 11:31
Harður árekstur og skemmdarverk í ráðhúsinu Lögregla var kölluð á vettvang um kl. 21 í gærkvöldi eftir að bifreið var ekið á vegrið á Bústaðavegi með þeim afleiðingum að hún kastaðist yfir á rangan vegarhelming og framan á aðra bifreið. Innlent 13.2.2021 07:57
Tveir veitingastaðir eiga mögulega von á sektum Einn veitingastaður má búast við kæru fyrir brot á sóttvarnalögum annars vegar og brot á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald annars vegar. Annar veitingstaður verður hugsanlega kærður fyrir brot á sóttvarnalögum. Innlent 13.2.2021 07:43
Sex prósent landsmanna urðu fyrir barðinu á eltihrelli árið 2019 Eltihrellar mega búast við allt að fjögurra ára fangelsisvist eftir að Alþingi hefur samþykkt sérstök lög um umsáturseinelti. Um sex prósent landsmanna urðu fyrir barðinu á eltihrelli árið 2019. Dómsmálaráðherra segir þetta ofbeldisglæp og eitt mál af þessu tagi sé einu máli of mikið. Innlent 12.2.2021 19:56
Lögðu hald á nokkuð magn fíkniefna auk skotvopns Lögreglan á Austurlandi hefur á undanförnum vikum stöðvað tvær kannabisræktarnir í umdæminu. Innlent 12.2.2021 09:22
Fóru úr landi eftir að þeir brutu sóttkví Fjórir ferðamenn sem grunaðir eru um að hafa brotið reglur um sóttkví við komuna til landsins hafa yfirgefið landið. Mennirnir voru hér á vegum fyrirtækis sem sendi þá úr landi eftir að stjórnendur fréttu af brotunum. RÚV greinir frá. Innlent 11.2.2021 19:09
Lögregla beitti piparúða Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beitt skömmu fyrir klukkan tvö í nótt piparúða til þess að ná stjórn á vettvangi í Hafnarfirði. Innlent 11.2.2021 06:23
Starfsmenn barnaverndar kærðir til lögreglu: „Þarna er hreinn og klár ásetningur“ Starfsmenn Barnaverndar Reykjavíkur og Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hafa verið kærð til lögreglu fyrir brot á hegningarlögum. Í kærunni eru starfsmenn barnaverndar sakaðir um að hafa ítrekað og endurtekið haldið fram ósannindum og rangindum í skýrslum og nefndin sökuð um að byggja ákvarðanir á umræddum gögnum. Innlent 11.2.2021 06:15
Náðu ekki í skottið á Bandaríkjamönnum sem grunaðir eru um brot á sóttkví Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú tveggja Bandaríkjamanna sem grunaðir eru um brot á sóttkví. Mennirnir sátu að sumbli á Lebowski bar í miðbæ Reykjavíkur á sunnudag en voru horfnir á braut þegar lögregla kom á staðinn. Innlent 10.2.2021 19:21
Göngumaður ökklabrotnaði í Esjunni Talið er að maður sem var á göngu Esjunni hafi ökklabrotnað síðdegis í gær. Í pósti frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að tilkynning um slysið hafi borist um stundarfjórðungi yfir fimm í gær. Innlent 10.2.2021 07:13
Lögreglan leitar að kofaeiganda Um klukkan hálftíu í gærkvöldi fannst brotinn kofi á Suðurstrandarvegi, rétt vestan við Hlíðarvatn. Innlent 9.2.2021 07:28
Ofurölvi á veitingahúsi og áreitti gest Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók um kvöldmatarleytið í gærkvöldi mann sem var ofurölvi á veitingahúsi í austurbæ Reykjavíkur. Innlent 8.2.2021 06:27
Stríðið gegn konum Gunnar Smári skrifar um umræðuna og gengdarlaust ofbeldi gegn konum. Skoðun 7.2.2021 08:01
Neitaði að borga reikninginn á veitingastað og var vistuð í fangageymslu Lögregla var kölluð til á ellefta tímanum í gærkvöldi vegna konu á veitingahúsi í miðbæ Reykjavíkur. Konan hafði neitað að greiða reikninginn á veitingastaðnum og gaf ekki upp nafn eða kennitölu þegar lögregla kom á vettvang. Var hún vistuð sökum ástands í fangageymslu lögreglu. Innlent 7.2.2021 07:44
Grunaður um að hafa stolið tveimur pokum af humri Lögregla sinnti nokkrum útköllum vegna þjófnaðar í gærkvöldi og í nótt, en á níunda tímanum í gærkvöld var tilkynnt um hnupl úr verslun í miðbæ Reykjavíkur. Þar var maður sagður hafa stolið matvöru og var hann tekinn í skýrslutöku hjá lögreglu en látinn laus að henni lokinni. Innlent 6.2.2021 08:28
Óboðnir gestir ruddust í samkvæmi ungmenna Lögregla var kölluð til í samkvæmi í Grafarvogi á öðrum tímanum í nótt eftir ítrekaðar tilkynningar. Þar voru flestir gestir á aldrinum sextán til átján ára og höfðu óboðnir gestir ruðst inn í samkvæmið samkvæmt upplýsingum lögreglu. Grunur er um líkamsárás, húsbrot og brot á vopnalögum, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Innlent 6.2.2021 08:18
Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á innflutningi fíkniefna Karlmaður um þrítugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald til 12. febrúar á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 5.2.2021 21:42