Lögreglumál
81 82 83 84 85 86 87 88 89 … 279 ›
Lögregla lýsir eftir Stefáni Arnari Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Stefáni Arnari Gunnarssyni, 44 ára. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að Stefán Arnar sé búsettur á Arnarhrauni í Hafnarfirði en síðast er vitað um ferðir hans síðdegis í gær. Innlent 3.3.2023 11:49
Kærð fyrir að virða ekki gangbrautarrétt í Vesturbænum Nokkuð rólegt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Síðdegis í gær var lögregla þó kölluð út þar sem kona var kærð fyrir að hafa ekki virt gangbrautarrétt gangandi vegfaranda í vesturbæ Reykjavíkur. Innlent 3.3.2023 06:09
Krefst þess að lögreglan biðjist afsökunar Sex ára rannsókn á máli sem lögreglan kynnti sem eitt umfangsmesta fíkniefna og peningaþvættismál sögunnar er lokið án þess að gefin verði út ákæra. Fyrrverandi sakborningur í málinu krefst afsökunarbeiðni. Innlent 2.3.2023 20:53
Handtekinn vegna sprengjuhótunar í Reykjanesbæ Karlmaður var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í gær við komuna til landsins. Hann er grunaður um að standa að baki sprengjuhótunar sem send var á nokkrar stofnanir og vinnustaði í Reykjanesbæ í síðustu viku. Ráðhús Reykjanesbæjar var rýmt vegna hótunarinnar auk þess sem hún beindist gegn nokkrum leikskólum. Lögreglustjóri segir manninn eiga langan sakaferil að baki. Innlent 2.3.2023 16:32
Skólasamfélagið í Háteigsskóla slegið eftir áflog Tveimur nemendum í unglingadeild Háteigsskóla í Reykjavík lenti saman í unglingaálmu skólans í dag. Á sama tíma voru tvö ungmenni sem eru ekki nemendur við skólann á svæðinu. Innlent 2.3.2023 16:06
Kærður fyrir líkamsárás gegn dreng sem gerði dyraat Karlmaður í Reykjanesbæ hefur verið kærður fyrir frelsissviptingu og líkamsárás gegn barni. Maðurinn er sakaður um að hafa setið fyrir hópi ellefu ára drengja sem gerði dyraat á heimili hans, ráðist að einum drengjanna og læst hann inni. Innlent 1.3.2023 20:41
Ekið á unglingsstrák á hlaupahjóli í Lindahverfi Fólksbíl var ekið á fjórtán ára dreng á hlaupahjóli í Lindahverfi í Kópavogi um miðjan dag. Samkvæmt upplýsingum slökkviliðs slasaðist drengurinn ekki alvarlega en farið var með hann til skoðunar á slysadeild til öryggis. Innlent 1.3.2023 15:28
Blönduósmálið fellt niður á grundvelli neyðarvarnar Héraðssaksóknari hefur ákveðið að gefa ekki út ákæru í rannsókn á manndrápi á Blönduósi í ágúst í fyrra. Talið var að sakborningar í málinu hefðu ekki farið út fyrir takmörk sín til leyfilegrar neyðarvarnar. Málið hefði ekki verið líklegt til sakfellis. Innlent 1.3.2023 11:36
Í góðum gír að ónáða gesti Í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um mann í miðbænum sem var að ónáða gesti á veitingastað. Lögreglufulltrúar fóru á vettvang og ræddu við aðilann og virtist maðurinn bara vera í góðum gír. Ekki var metin þörf á frekari afskiptum lögreglu. Innlent 1.3.2023 06:28
Héldu árásarmanni niðri á meðan beðið var eftir lögreglu Tilkynnt var í líkamsárás á höfuðborgarsvæðinu í gær í umdæmu lögreglunnar á lögreglustöð 2 sem nær yfir Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes. Vegfarendur héldu árásarmanninum niðri þar til lögregla kom á vettvang. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa. Innlent 28.2.2023 06:39
Fjórir handteknir eftir stunguárás í Mathöll Höfða Fjórir hafa verið handteknir eftir hnífstungu á Höfða í dag og einn fluttur á slysadeild eftir stunguárás. Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang eftir að tilkynning barst, samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Innlent 27.2.2023 15:25
Lögreglan leitar að manni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að manninum á myndunum hér fyrir ofan. Lögreglan vill ná tali af honum. Innlent 27.2.2023 12:45
Handtekinn fyrir líkamsárás og reyndist eftirlýstur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Tilkynnt var um þrjár líkamsárásir og nokkuð af innbrotum. Einn gerandi líkamsárásar reyndist eftirlýstur. Innlent 27.2.2023 06:45
Ungi maðurinn er aftur fundinn Átján ára karlmaður sem lögreglan lýsti eftir í tvígang í gærkvöldi er kominn í leitirnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 27.2.2023 06:24
Of margir í bílnum og börnin án öryggisbúnaðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann við akstur í dag sem reyndist vera með of marga farþega í bílnum. Börn sem voru um borð í bifreiðinni notuðu ekki öryggisbúnað. Innlent 26.2.2023 17:45
Lögreglan lýsir eftir Daníel Cross Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Daníel Cross, 18 ára. Hann er rúmlega 190 sentimetrar á hæð, þéttvaxinn og með mikið krullað hár. Innlent 26.2.2023 17:28
Sást til veggjakrotarans í Vesturbæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er engu nær um það hver stóð að verki þegar krotað var á fjölda veggja í Vesturbæ Reykjavíkur aðfaranótt laugardags. Innlent 26.2.2023 10:43
Kveikt í rusli fyrir framan hús í miðborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að kveikt hefði verið í ruslið fyrir framan hús í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Lögreglumenn sem fóru á vettvang náðu að slökkva eldinn en málið er nú í rannsókn. Innlent 26.2.2023 07:53
Stórsér á Vesturbænum eftir skemmdarvarginn Veggjakrotari, vopnaður spreybrúsum í öllum litum, framdi skemmdarverk á fjölda mannvirkja í Vesturbæ Reykjavíkur í gær. Maðurinn krotaði meðal annars á vegg Melabúðarinnar og furðar eigandi sig á atferli skemmdarvargsins. Lögreglan er með málið til rannsóknar. Innlent 25.2.2023 22:06
Réttindalaus ók lyftara á bíl Ökumaður lyftara ók á bifreið við Hafnarfjarðarhöfn klukkan hálf tvö í dag. Ökumaðurinn var ekki með réttindi til að vinna á vinnuvél á opnu svæði. Innlent 25.2.2023 17:07
Lokuðu veitingastað sem var ekki með rekstrarleyfi í miðborginni Lögregla hafði afskipti af tveimur veitinga- og skemmtistöðum í gærkvöldi og í nótt. Lét hún meðal annars loka veitingastað þar sem hann hafði ekki leyfi fyrir rekstrinum. Innlent 25.2.2023 07:30
Sendu sprengjuhótun meðal annars á leikskóla Tölvupóstur með sprengjuhótun var sendur á nokkrar stofnanir og vinnustaði í Reykjanesbæ í morgun, þar á meðal nokkra leikskóla. Ráðhúsið í Reykjanesbæ var rýmt vegna hótunarinnar. Lögregla segir ekkert að óttast en en málið sé litið alvarlegum augum. Innlent 24.2.2023 13:21
Lögreglan telur sprengjuhótun í ráðhúsi Reykjanesbæjar ótrúverðuga Tilkynning barst með tölvupósti á almennt netfang Reykjanesbæjar í morgun um að búið væri að koma þar fyrir sprengjum. Lögregla segir hótunina ekki trúverðuga. Innlent 24.2.2023 11:22
Kölluð út vegna tveggja líkamsárása í borginni Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna tveggja líkamsárása á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Innlent 24.2.2023 06:11
Þrír slösuðust í árekstri í miðborginni Þrír slösuðustu í árekstri í miðborg Reykjavíkur í morgun. Bíl var ekið í veg fyrir aðra á gatnamótum með fyrrgreindum afleiðingum. Báðar bifreiðar voru óökuhæfar eftir áreksturinn. Innlent 23.2.2023 21:57
Sú sem ók bílnum fannst köld og illa áttuð í Nauthólsvík Ökumaður bílsins sem hafnaði í sjó við dælustöðina í Skerjafirði í morgun slasaðist mjög lítið. Um var að ræða konu sem tilkynnt var um á gangi nærri Nauthólsvík í morgun, illa áttuð og köld. Bíllinn er í eigu bílaleigunnar Avis. Innlent 23.2.2023 14:55
Mætti með heimatilbúið skotvopn í skólann Nemandi á unglingastigi Lundarskóla á Akureyri mætti með heimatilbúið skotvopn í skólann fyrir helgi og sýndi ógnandi hegðun gagnvart kennara. Lögregla var kölluð til vegna málsins. Innlent 22.2.2023 10:38
Ók undir áhrifum og gaf upp kennitölu annars manns Lögregla á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann vegna rásandi aksturslags í gærkvöldi og gaf sá upp kennitölu annars manns þegar rætt var við hann. Auk þess kom í ljós að hann var sviptur ökuréttindum og hafði ekið bílnum undir áhrifum fíkniefna. Innlent 22.2.2023 06:11
Árekstur á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar Árekstur varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar nú í kvöld. Innlent 21.2.2023 20:19
Tekinn á 172 kílómetra hraða Ökumaður var stöðvaður í Reykjavík í nótt þar sem hann ók á 172 kílómetra hraða á svæði þar sem hámarkshraði er áttatíu kílómetrar á klukkustund. Hann var sviptur ökuréttindum á staðnum til bráðabirgða. Innlent 21.2.2023 06:11