Fréttir
277 278 279 280 281 282 283 284 285 … 334 ›
Cameron fundar með Trump í Flórída David Cameron, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands og núverandi utanríkisráðherra, mun funda með Donald Trump, fyrrverandi forseta og núverandi forsetaframbjóðanda, í opinberri heimsókn sinni til Bandaríkjanna. Erlent 9.4.2024 07:23
Skýjað að mestu en úrkoma eða rigning sunnantil Grunn lægð lónar úti fyrir suðausturströndinni og fylgir henni dálítil úrkoma á sunnanverðu landinu, ýmist snjókoma eða rigning. Veður 9.4.2024 07:14
Saka formann fyrrverandi stjórnar um að eyðileggja MÍR Þrír félagar í íslensk-rússneska menningarfélaginu MÍR sem stefndu því fyrir dómi saka formann fyrrverandi stjórnar félagsins um að vinna að því að eyðileggja félagið og sóa fjármunum þess. Þeir sækjast eftir því að blása nýju lífi í starfsemina. Innlent 9.4.2024 07:00
Lýsing næturvarðar á árás bjórsala og foreldra hans skipti sköpum Maður var á dögunum sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás sem átti sér stað fyrir utan hótel um nótt árið 2021. Dómurinn frestaði ákvörðun um refsingu mannsins vegna ungs aldurs hans og hversu lengi það tók að fá niðurstöðu í það. Innlent 9.4.2024 07:00
Egyptar, Jórdanir og Frakkar vara við áhlaupi á Rafah Leiðtogar Egyptalands, Jórdaníu og Frakklands hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem Ísraelar eru eindregið varaðir við því að ráðast inn í Rafah á Gasa. Slík árás myndi hafa hættulegar afleiðingar. Erlent 9.4.2024 06:55
Máttu ekki útiloka Jóhann úr landsliðinu ótímabundið Áfrýjunardómstóll ÍSÍ hefur komist að þeirri niðurstöðu að stjórn og landsliðsnefnd Landssambands hestamannafélaga hafi verið óheimilt að vísa Jóhanni Rúnari Skúlasyni úr landsliðinu í hestaíþróttum. Innlent 9.4.2024 06:49
„Það er svo margt sem breyttist í lífi Grindvíkingsins“ Félagsráðgjafi í Grindavík segir áríðandi að tekið sé vel utan um Grindvíkinga. Það sé ekki nóg að byggja varnargarða um bæinn, heldur þurfi að verja fólkið líka. Hún segir marga í slæmri stöðu og að húsnæðisöryggi sé grunnurinn að því að tryggja fólki stöðugleika svo unnt sé að vinna betur að öðrum þáttum. Tryggja þurfi öllum nauðsynlegan stuðning. Innlent 9.4.2024 06:47
Bjarni forsætisráðherra og Sigurður Ingi fjármálaráðherra? Rætt hefur verið að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verði forsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn og að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins verði fjármálaráðherra. Innlent 9.4.2024 06:17
Yfirlæti forsetaframbjóðenda fer í taugarnar á Ragnari Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR tekur ekki undir með þeim sem pirra sig á þeim mikla fjölda frambjóðenda til embættis forseta sem borist hafa undanfarna mánuði. Hann segir það vera forréttindi að í landinu okkar geti nánast hver sem er gefið kost á sér án of þröngra skilyrða. Innlent 8.4.2024 23:41
Fólk leggi of oft eins og Tjokkó Deildarstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir það gerast of oft að ökumenn leggi bílum í sérstakt neyðarstæði fyrir viðbragðsaðila. Hver mínúta skipti sköpum í bráðaflutningum og því nauðsynlegt að stæðin séu auð. Innlent 8.4.2024 22:44
Allt bendir til að Bjarni verði forsætisráðherra Allar líkur er á að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verði næsti forsætisráðherra í endurnýjuðu stjórnarsamstarfi núverandi stjórnarflokka, samkvæmt heimildum fréttastofu. Innlent 8.4.2024 22:33
Sjálfstæðismenn afgreiða samstarfstillögu Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur tekið til afgreiðslu tillögu um stjórnarsamstarf. Óljóst er hvaða flokkar kæmu að því samstarfi. Að sama skapi er óljóst hvort samstarf Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Vinstri grænna haldi áfram. Innlent 8.4.2024 21:12
Krefur ríkið um 225 milljónir króna Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka var sýknaður í héraðsdómi Reykjavíkur í Exeter-málinu svokallaða en dómnum var snúið við í Hæstarétti Íslands árið 2013. Hann krefst nú að ríkið greiði honum 225 milljónir króna í fjártjóns- og miskabætur fyrir að hafa misst hæfi til að gegna forstjórastöðu sinni ásamt því að sæta eins árs fangelsisvist. Innlent 8.4.2024 20:06
Katrín minni á Ólaf Ragnar árið 2012 Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, segir líklegast að Katrín Jakobsdóttir, Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr muni heyja baráttuna um Bessastaði. Þau þrjú mælast með mest fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Þó segir hann að mögulega geti einhver af þeim frambjóðendum sem komi næst á eftir þeim þremur blandað sér í slaginn. Innlent 8.4.2024 20:05
Núverandi staða bjóði upp á stýrivaxtalækkun Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika telur að hagkerfið sé komið á þann stað að Seðlabankinn geti byrjað að lækka stýrivexti. Ákvörðun sín um að hætta í bankanum tengist þó ekki því að hann var ósammála peningastefnunefnd. Honum hafi einfaldlega boðist spennandi starf. Innlent 8.4.2024 20:00
Alþingi óstarfhæft vegna óvissu um stjórnarmyndun Þingstörf eru í óvissu á meðan ekki hefur verið mynduð ný ríkisstjórn í landinu. Ekkert varð af þingfundi í dag þar sem þrettán stjórnarfrumvörp voru á dagskránni vegna anna ráðherra við stjórnarmyndunarviðræður. Innlent 8.4.2024 19:21
31 íkveikja það sem af er ári Alls sinntu slökkvilið landsins 683 útköllum á fyrsta ársfjórðungi 2024, en 31 útkall var vegna elds sem grunur er á að hafi orðið til vegna íkveikju. Þetta er á meðal þess sem kemur fram útkallsskýrslugrunni slökkviliða, sem HMS hefur unnið tölfræðiupplýsingar úr, fyrir fyrsta ársfjórðung 2024. Innlent 8.4.2024 18:26
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ekkert varð af þingfundi sem halda átti í dag með þrettán stjórnarfrumvörp á dagskránni vegna anna ráðherra við stjórnarmyndunarviðræður. Óljóst er hvort hægt verði að boða til þingfundar á morgun. Við heyrum í þingmönnum og ráðherrum um sérstaka stöðu í íslenskum stjórnmálum í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 8.4.2024 18:21
Ríkisstjórnin dansi stóladans á meðan engin stjórni landinu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir í reynd enga ríkisstjórn starfandi í landinu og á meðan eyði ráðherrarnir tíma í stólaleik sem vinni ekki fyrir hag almennings. Hún segir að það hefði verið galið að fresta ekki þingfundi í dag. Innlent 8.4.2024 18:01
Réðst á móður sem hélt á syni sínum í Kringlunni Kona hlaut í síðasta mánuði þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, fyrir að ráðast á aðra konu sem hélt á syni sínum. Innlent 8.4.2024 18:00
Árekstur í Ártúnsbrekkunni Árekstur varð ofarlega í Ártúnsbrekkunni síðdegis í dag. Einn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar en um minniháttar meiðsli er að ræða. Innlent 8.4.2024 17:52
Hryðjuverkamálið til Landsréttar Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í hinu svokallaða hryðjuverkamáli til Landsréttar. Áfrýjað er til sakfellingar fyrir tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í þeirri tilraun. Sindri snær Birgisson og Ísidór Nathansson voru sýknaðir í héraðsdómi af þeim hluta málsins. Innlent 8.4.2024 17:18
Útlilokar ekki að leggja fram vantraust færi Svandís sig Inga Sæland útilokar ekki að hún haldi áfram að leggja fram vantrauststillögur á hendur Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra færi hún sig í annan ráðherrastól. Hún lagði fram vantrauststillögu í annað sinn í dag. Innlent 8.4.2024 17:16
Njósnaskandall skekur Austurríki Yfirvöld í Austurríki standa frammi fyrir umfangsmiklum njósnaskandal sem bendir til þess að leyniþjónustur Rússlands séu umsvifamiklar í ríkinu og varpar ljósi á slæmt eftirlit hins opinbera. Háttsettur fyrrverandi njósnari í Austurríki var handtekinn á dögunum. Erlent 8.4.2024 16:59
Sólmyrkvinn í beinni frá Ameríku Íslendingar munu mögulega getað séð deildarmyrkva á sólu í kvöld. Í Mexíkó, Bandaríkjunum og í Kanada mun fólk þó geta séð almyrkva en hann má einnig sjá á netinu. Erlent 8.4.2024 16:46
Katrín með forskot á Baldur Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi og forsætisráðherra er með 33 prósent fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði og mótframbjóðandi mælist með 27 prósenta fylgi. Innlent 8.4.2024 16:36
Lítil gasmengun mælst um helgina Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina mallar áfram og er nú einn gígur virkur. Hraunflæði er nú aftur farið að renna að megninu til suðurs eftir að það flæddi til norðurs um tíma í gær. Lítil gasmengun hefur mælst um helgina. Innlent 8.4.2024 16:27
Telur að ríkisstjórnin lifi þetta ekki af Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, kallar eftir því að Íslendingar kjósi til Alþingis þar sem ríkisstjórnin hafi engan vilja til þess að gera betri hluti fyrir þjóðina. Hann segir atburðarás síðustu daga afar áhugaverða. Innlent 8.4.2024 15:46
Öllum rýmingum aflétt á Austurlandi Hættustigi og rýmingum vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði hefur verið aflétt. Rýmingar sem gripið var til á Austurlandi hafi því verið aflétt að fullu. Óvissustig vegna snjófljóðahættu er enn í gildi á Austfjörðum. Innlent 8.4.2024 15:41
Hefðu lent í vandræðum án frestunar Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata sagði það í raun eðlilegt að Birgir Ármannsson, forseti þingsins, hefði tekið öll mál af dagskrá og slitið fundi. Ríkisstjórnin sé ekki starfhæf og ekki við hæfi að ræða mál á þingi sem ekki sé hægt að leysa. Innlent 8.4.2024 15:26