Erlent

Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Trump hefur farið hörðum orðum um Selenskí undanfarna daga. Myndin er frá fundi forsetanna tveggja í Hvíta húsinu í febrúar 2025.
Trump hefur farið hörðum orðum um Selenskí undanfarna daga. Myndin er frá fundi forsetanna tveggja í Hvíta húsinu í febrúar 2025. EPA/JIM LO SCALZO

Bandaríkjaforseti segir að vilji Úkraínuforseta til að binda enda á stríðið milli Úkraínu og Rússlands sé enginn og að lög um refsiaðgerðir og viðskiptaþvinganir gegn Rússum gætu hrakið þá frá samningaborðinu.

Á föstudaginn undirritaði Donald Trump Bandaríkjaforseti forsetatilskipun um að fresta gildistöku umfangsmikilla nýrra refsiaðgerða og viðskiptaþvingana gegn rússnesku efnahagslífi. Sjálfur hafði hann undirritað lögin í síðasta mánuði en ákvað hann að fresta gildistökunni tveimur dögum áður en frestur til að hrinda þeim í framkvæmd rann út samkvæmt lögunum sjálfum. 

Í færslu á Truth Social sem birt var í kvöld segir Trump að undirritun laganna gæti hrakið Rússa frá samningaborðinu. Sjálfur vinni hann að því að koma á friði milli ríkjanna tveggja.

„Ákvörðun mín varðandi Rússland er mjög einföld. Ég er að semja um frið í stríðinu milli Rússlands og Úkraínu og vil ekki gera neitt sem gæti, á heimskulegan hátt, hrakið Rússland frá samningaborðinu. Mikill árangur er að nást og það á meðal annars við um yfirstandandi samningaviðræður um gísla! Að undirrita þetta skjal á þessum tímapunkti myndi gera einmitt það, og ég get undirritað það síðar, eða hvenær sem ég vil!,“ skrifar Trump. 

Löggjöfin var kennd við Lindsey Graham, öldungadeildarþingmann frá Suður-Karólínu sem lést í sumar, og átti að herða aðgerðir gegn fjármagnsflæði sem stendur undir stríðsrekstri Rússa gegn Úkraínu. Markmiðið með aðgerðunum var að svipta Vladimír Pútín forseta Rússlands þeim fjármunum sem Moskva þarf til að halda áfram stríðinu í Úkraínu.

Árásir Selenskí valdi verulegum skaða á heimsvísu 

Trump sakar Vólódímír Selenskí um að beina spjótum sínum að dísilhreinsunarstöðvum í Rússlandi, vitandi að árásirnar valdi verulegum skaða á olíumarkaði heimsins. 

„Að lokum notar Selenskí dísilhreinsunarstöðvar í Rússlandi sem skotmörk, vitandi að þessar árásir skaða alvarlega dísilmarkaði heimsins, þar á meðal í Bandaríkjunum. Bændur, búgarðseigendur og fyrirtæki af ýmsum toga líða mjög fyrir þetta, en Rússland sendir engu að síður milljónir tunna af dísilolíu út í heim á lágu verði.“

Trump vakti athygli í síðustu viku þegar hann tilkynnti að samkomulag hefði náðst milli Bandaríkjamanna og Rússa um útflutning á hundruðum þúsunda tonna af dísilolíu í því skyni að lækka orkuverð á heimsvísu. Hann hefur ítrekað haldið því fram að það sé Úkraínumönnum að kenna að eldsneytisverð sé hátt en ekki vegna stríðs hans gegn Íran og meðfylgjandi takmarkana á flæði olíu og olíuafurða frá Mið-Austurlöndum. 

Steve Rosenberg, blaðamaður BBC sem staddur er í Rússlandi, fer meðal annars yfir umræðuna í rússneskum fjölmiðlum í myndbandi sem má sjá hér að neðan. 

„Hefði getað gert betri samning fyrir tveimur árum“

Trump segir Selenskí ekki vilja semja um frið og binda enda á stríðið. Undanfarið hefur Trump í auknum mæli gagnrýnt Selenskí opinberlega og kennt honum um að hafa ekki náð samkomulagi við Pútín.

„Zelenskyy er alveg sama, og satt að segja, með öllum þeim peningum sem Evrópa er alræmd fyrir að gefa honum og sem Svikuli Joe Biden gaf honum áður, vill hann ekki binda enda á þetta stríð og vildi það líklega aldrei. Hann hefði getað gert betri samning fyrir tveimur árum en hann getur nú.

Land hans er í rúst, stór hluti lands hans er tapaður, höf hans og sjór eru horfin, og karlkyns íbúar hans eru fáir, særðir og/eða látnir. ÉG VIL AÐ ÞESSU STRÍÐI LJÚKI!,“ skrifar Bandaríkjaforseti. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×