Fréttir
48 49 50 51 52 53 54 55 56 … 334 ›
Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Landsréttur hefur sýknað Persónuvernd af kröfu Íslenskrar erfðagreiningar sem varðaði vinnu fyrirtækisins þegar Covid-19 faraldurinn var nýkominn hingað til lands. Innlent 14.11.2024 20:55
Sextán flugferðum aflýst Sextán flugferðum frá Keflavíkurflugvelli sem voru á áætlun í fyrramálið hefur nú verið aflýst sökum veðurs. Búið er að gefa út gula og appelsínugula veðurviðvörun fyrir stóran hluta landsins á morgun. Innlent 14.11.2024 20:42
Konan er fundin Konan sem að lýst var eftir í dag hún Soffía Pétursdóttir, er fundin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi vestra. Innlent 14.11.2024 20:16
Þórður Snær afboðaði komu sína Þórður Snær Júlíusson, frambjóðandi Samfylkingarinnar og fyrrverandi ritstjóri Heimildarinnar, ætlaði að mæta í hlaðvarpið Ein pæling og taka upp þátt í fyrramálið en hann hefur nú afboðað komu sína. Innlent 14.11.2024 19:50
Hitamet féll Hitamet féll á Kvískerjum í Öræfum dag þegar hitinn mældist 23,8 gráður. Aldrei áður hefur mælst eins mikill hiti í nóvember á Íslandi. Þá hafa hátt í þrjátíu aurskriður fallið síðan á mánudag sem tengist þessum hlýindum. Innlent 14.11.2024 19:01
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Fjölmargir hafa tekið til máls í dag á samfélagsmiðlum til að fordæma umdeild skrif Þórðar Snæs Júlíussonar, frambjóðanda Samfylkingarinnar, eða taka upp hanskann fyrir hann. Heimspekingur segir ekki óeðlilegt að ræða þessi skrif og tekur fram að Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, taki áhættu með Þórð á lista. Innlent 14.11.2024 18:53
Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Sósíalistar mælast inni á þingi og flokkurinn fengi fjóra þingmenn samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Vinstri græn næðu ekki manni inn á þing. Fulltrúar flokkanna bregðast við könnuninni í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 14.11.2024 18:02
Málaferlin auki gildi verksins og hann sé hvergi af baki dottinn Listamaðurinn Odee Friðriksson segir að úrskurður dómara í Lundúnum um lögbann á notkun hans á ímynd Samherja hf. auki gildi listaverks hans. Þá segist hann vera að fara yfir næstu skref í málinu með lögmanni sínum. Innlent 14.11.2024 16:42
Bein útsending: Utanríkisstefna á umbrotatímum Kosningafundar um utanríkis- , öryggis og varnarmál fer fram í Auðarsal í Veröld, húsi Vigdísar milli klukkan 17:00 og 18:30 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi. Innlent 14.11.2024 16:31
Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu Yfirvöld í Suður-Afríku ætla ekki að aðstoða allt að fjögur þúsund menn sem sitja í ólöglegri námu í norðvesturhluta landsins. Umsátursástand hefur ríkt við námuna þar sem búið er að loka á aðgang þeirra sem í námunni eru að vatni og öðrum nauðsynjum. Erlent 14.11.2024 16:00
Refsing milduð í stóra skútumálinu Landsréttur hefur mildað fangelsisrefsingu Henrys Fleischer, 35 ára Dana, um eitt ár. Hann var upphaflega dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir aðkomu hans að skútumálinu svokallaða í fyrra. Innlent 14.11.2024 15:26
Sósíalistar færu ekki í stjórn sem ætlaði að selja Íslandsbanka Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík segir aukna skattheimtu af fjármagnstekjum og á þá efnamestu eiga að standa undir gjaldfrjálsum framhalds- og háskólum, gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu og upptöku styrkja í stað námslána. Innlent 14.11.2024 15:23
Hugmyndir Ingu séu aðför að kjörum alls vinnandi fólks Hugmyndir formanns Flokks fólksins um að sækja níutíu milljarða á ári með aukinni skattheimtu á innborganir í lífeyrissjóði hafa orðið til þess að Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífs sameina krafta sína. Það gera forseti ASÍ og formaður SA í aðsendri grein á Vísi. Algengara er að heyra forsvarsfólk samtakanna tveggja tala í kross til dæmis í tengslum við kjarasamninga. Innlent 14.11.2024 15:12
The Onion kaupir InfoWars Útgáfufélag ádeilumiðilsins The Onion keypti í morgun rekstrarfélag InfoWars, sem var áður í eigu Alex Jones. Kaupin voru gerð með stuðningi fjölskyldna barna sem dóu í Sandy Hook árásinni á árum áður en Jones skuldar þeim á annan milljarð dala. Erlent 14.11.2024 14:53
Hjúkrunarfræðingar hafa skrifað undir samning Félag hjúkrunarfræðinga skrifaði undir kjarasamning við íslenska ríkið í húsakynnum Ríkissáttasemjara upp úr klukkan 14 í dag. Innlent 14.11.2024 14:34
Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Arion banki mun á næstunni opna nýtt dagvistunarheimili sem ætlað fyrir starfsfólk bankans. Dagvistunin verður staðsett í næsta húsi við höfuðstöðvarnar í Borgartúni í Reykjavík, eða á jarðhæð í Borgartúni 21. Innlent 14.11.2024 14:05
Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Skýr mörk á milli hægri og vinstri Hart var tekist á í Pallborðinu í gær um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu, sem Gunnar Smári Egilsson og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, fulltrúar Sósíalistaflokksins og Vinstri grænna, sögðust harðlega á móti. Innlent 14.11.2024 14:03
Vill sýna þinginu hver ræður Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur á dögunum opinberað hverja hann ætlar að tilnefna í nokkur mikilvæg embætti í ríkisstjórn sinni. Þrjár af þessum tilnefningum eru umdeildari en aðrar og er Trump sagður mana þingmenn Repúblikanaflokksins í öldungadeildinni til að standa í vegi sér. Erlent 14.11.2024 13:33
Lýsa eftir konu með heilabilun Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur lýst eftir Soffíu Pétursdóttur. Hún er fædd árið 1941 og er með heilabilun en hún fór að heiman á Laugarbakka í Húnaþingi vestra í nótt eða í gærkvöldi. Innlent 14.11.2024 13:21
Samherji lagði listamanninn Odee Dómstóll í Lundunúm féllst í dag á allar kröfur Samherja hf., í máli sem félagið höfðaði á hendur listamanninum Odee Friðrikssyni vegna afsökunarbeiðni og vefsíðu sem hann setti upp í nafni Samherja. Innlent 14.11.2024 13:12
Myndband sýnir umfang skriðanna í Eyrarhlíð Vegagerðin hefur birt myndband sem sýnir vel umfang þeirra aurskriða sem féllu yfir veginn um Eyrarhlíð, milli Ísafjarðar og Hnífsdals á þriðjudag. Þar má einnig sjá starfsfólk Vegagerðarinnar við vinnu að hreinsa veginn. Innlent 14.11.2024 12:57
Fimm sveitarstjórnarfulltrúar í Strandabyggð beðist lausnar Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti í gær þrjár beiðnir sveitarstjórnarfulltrúa um lausn frá störfum. Áður höfðu tveir fulltrúar beðist lausnar. Innlent 14.11.2024 12:44
Sósíalistar mælast inni og Vinstri græn í lífshættu Ekki mælist marktækur munur á fylgi Samfylkingarinnar og Viðreisnar í nýrri könnun Maskínu. Sósíalistar bæta við sig tveimur prósentustigum og Miðflokkurinn tapar rúmlega tveimur. Prófessor í stjórmálafræði segir Viðreisn bæði njóta fylgis sem komi frá Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki. Þá séu Vinstri græn í raunverulegri lífshættu. Innlent 14.11.2024 11:59
Þinglok strax eftir helgina Birgir Ármannsson forseti Alþingis segir stefnt að þinglokum á mánudaginn en annasamir dagar eru fram undan. Innlent 14.11.2024 11:49
Glæný Maskínukönnun kynnt í hádegisfréttum Í hádegisfréttum Bylgjunnar segjum við frá glóðvolgri könnun um fylgi flokkanna en nú styttist óðum í kosningar. Innlent 14.11.2024 11:23
Viðvaranirnar sumar orðnar appelsínugular Veðurstofan hefur gefið út appelsínugular viðvaranir á Norðurlandi estra, Austurlandi og Suðausturlandi vegna norðvestan stórhríðar sem mun skella landið á morgun. Áður var búið að gefa út gular viðvaranir á landinu öllu vegna óveðursins, en gular viðvaranir verða áfram í gildi í öðrum landshlutum. Veður 14.11.2024 11:21
Sammála um níkótínpúðana en ekki áfengissöluna Allir þeir flokkar sem svöruðu spurningum fornvarnarsamtaka um nikótínpúða og áfengissölu sögðust vilja stemma stigu við notkun barna og unglinga á nikótínpúðum. Innlent 14.11.2024 10:08
Sprengdi sig upp fyrir utan hæstarétt Brasilíu Karlmaður sem reyndi að komast inn í hús hæstaréttar í höfuðborg Brasilíu sprengdi sig í loft upp fyrir utan bygginguna í gærkvöldi. Aðeins fimm dagar eru þar til að leiðtogar G20-ríkjanna koma saman í Ríó de Janeiro. Erlent 14.11.2024 10:05
Um 800 milljónir manna í heiminum með sykursýki Fjöldi þeirra sem eru með sykursýki hefur tvöfaldast á síðustu 30 árum og telur nú um 800 milljónir manna. Fjórtán prósent af fullorðnum er nú með sykursýki, samanborið við sjö prósent árið 1990. Erlent 14.11.2024 09:15
Áfram séreign inn á lánin og ekkert kílómetragjald í bili Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar leggur til að heimild til skattfrjálsrar ráðstöfunar á viðbótargjaldi til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól lána verði framlengd út árið 2025. Í stað kílómetragjalds sem ekki verði komið á um áramótin verði önnur gjöld hækkuð um 2,5 prósent. Innlent 14.11.2024 08:56