Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Eiður Þór Árnason skrifar 4. september 2026 22:31 Mál Lindsay Clancy hefur vakið heimsathygli. Ap/The Patriot Ledge/Greg Derr Dómari hefur ómerkt réttarhöldin yfir Lindsay Clancy eftir að kviðdómi tókst ekki að komast að einróma niðurstöðu eftir margra daga tilraunir. Hún er sökuð um að myrða þrjú börn sín. Ógilding málsins tafðist í dag eftir að verjandi Clancy fór fram á að hann fengi að áfrýja niðurstöðunni til áfrýjunardómstóls.
Fékk hann klukkustund til að leita til dómstólsins áður en dómarinn í málinu kvaddi formlega upp niðurstöðu sína. Réttarhöldin hafa vakið gríðarlega athygli síðustu vikur og beint sjónum að andlegri heilsu mæðra eftir barnsburð. Hin 36 ára gamla Clancy frá Massachusetts starfaði áður sem hjúkrunarfræðingur á fæðingardeild og hefur aldrei neitað því að hafa drepið börnin. Verjandi hennar hefur sagt að hún þjáist af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna. Kviðdómur hafði rætt málið í sjö daga þegar réttarhöldin voru ógild í dag. Málið er því enn óleyst og virtist ákvörðunin ekki hafa komið neinum í réttarsalnum á óvart, að sögn AP-fréttaveitunnar. Hvorki Clancy né fjölskylda hennar hafi sýnt nein áberandi viðbrögð þegar dómarinn tilkynnti að réttarhöldunum væri lokið án niðurstöðu. Réttarhöldin komust í uppnám í gær Í gær steig formaður kviðdómsins fram og sagði að einn í tólf manna hópnum færi ekki eftir skipunum dómarans hvað varðar leiðbeiningar um sönnunarbyrði og hugtakið „hafið yfir skynsamlegan vafa“ (e. beyond reasonable doubt). Fyrr í dag gaf dómarinn William Sullivan kviðdómendum eitt tækifæri í viðbót til að komast að sameiginlegri niðurstöðu um sekt Clancy eða sakleysi. Það skilaði ekki árangri. Formaður kviðdómsins sendi skilaboð til Sullivans í dag sem í stóð: „Það er með þungum hug sem við greinum frá því að okkur hefur ekki tekist að ná einróma niðurstöðu og teljum okkur ekki geta gert það.“ Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Fleiri fréttir Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent