

Nýjar tölur úr samantekt Landssambands Veiðifélaga á aflabrögðum í laxveiðiánum voru birtar í gær.
Það lá í loftinu að opnunin í Langá á Mýrum gæti orðið spennandi en ég held að engin hafi átt von á svona góðum degi.
Nú opnar hver laxveiðiáin á fætur annari og það styttist í að laxveiðin verði komin í fullan gír fljótlega eftir mánaðarmótin.
Brúará hefur ákveðið aðdráttarafl enda er hún ansi mögnuð með fossum og fallegum breiðum þar sem bleikjan hefur gott skjól.
Miðfjarðará hefur verið ein besta laxveiðiá landsins um árabil og fyrstu dagarnir í henni þetta sumarið sýna að hún ætlar sér stóra hluti í sumar.
Urriðaveiðin Í Þingvallavatni er stunduð mest frá vori og inní júní en það skýrist að mestu að því að fiskurinn fer á fáa staði og virðist liggja þar mestan part tímabilsins þangað til hann gengur upp í árnar sem í vatnið renna til að hrygna.
Það var mikil spenna í kringum opnunina á Laxá í Kjós enda er um mánuður síðan fyrstu laxarnir sáust í henni.
Silungsveiðin er í fullum gangi þessa dagana og frá vel flestum silungssvæðum berast góðar fréttir af aflabrögðum.
Þær laxveiðiár sem hafa opnað fyrir veiði á vesturlandi hafa farið vel af stað og sú var einnig raunin með Haffjarðará.
Arnarvatnsheiðin er skemmtilegt svæði að heimsækja með öllum sínum vötnum og fagurri fjallasýn en flestir koma nú á heiðina fyrst og fremst til að veiða.
Veiðisvæðið kennt við Árbót þekkja kannski ekki margir en þetta er engu að síður eitt af skemmtilegri veiðisvæðum á urriða og lax í Aðaldalnum.
Miðfjarðará hefur undanfarin ár verið ein af bestu laxveiðiám landsins og það eru þess vegna margir sem hafa verið að bíða eftir fréttum af veiði í opnun í gær.
Vikulegar veiðitölur frá Landssambandi Veiðifélaga voru settar á heimasíðu félagsins í gær og í sumar eru þær uppfærðar öll miðvikudagskvöld.
Stóra Laxá í Hreppum er ein af þessum ám sem á sinn fasta hóp veiðimanna sem heldur tryggð við hana alveg sama á hverju dynur.
Langá á Mýrum er líklega síðustu Borgarfjarðaránna til að opna en veiði hefst í henni þann 20. júní og það stefnir í spennandi opnun.
Það er ótrúlegt að sjá hvað veiðin er góð á stöng við Urriðafoss en tilraun sem Iceland Outfitters hafa verið að gera í samstarfi við landeigendur lofar aldeilis góðu.
Veiðivötn er líklega eitt vinsælasta silungsveiðisvæði landsins en þangað mætir mikill fjölda veiðimanna á hverju sumri til að veiða í einhverri fallegustu umgjörð sem nokkurt veiðisvæði getur fengið.
Það er óhætt að segja að Þverá og Kjarrá hafi opnað með glæsibrag en veiðin úr þeim báðum á hádegi í dag var komin yfir 80 laxa.
Nú berast fréttir úr þeim ám sem þegar hafa opnað fyrir veiðimönnum og það er óhætt að segja að þetta sumar fer afskaplega vel af stað og lofar mjög góðu um framhaldið.
Hin árlega hreinsun Elliðaánna fer fram á morgun þriðjudag, 13. júní og hefst verkefnið á því að viljugir félagsmenn í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur og aðrir velunnarar Elliðaánna mæta í veiðihúsið í Elliðaárdal klukkan 17.00 þennan dag.
Hlíðarvatn er eitt af vinsælustu bleikjuvötnum suðurlands og þangað sækja margir fyrstu reynsluna af vatnaveiði.
Eitt af því sem veiðimenn læra af reynslunni er sú staðreynd að silungur er og verður dyntóttur og það er eins gott að vera fljótur að sætta við það.
Þeir sem hafa veitt í Laxárdalnum vita sem er að stóri urriðinn þar er sýnd veiði en ekki gefinn og það eru til veiðimenn sem hafa veitt þarna í nokkur ár án þess að fá einn slíkan til að taka.
Það skýtur kannski skökku við að skjóta inn frétt um rjúpur svona þegar stangveiðitímabilið er að sigla inn í sína bestu tíð en þetta eru góðar fréttir af stofninum.
Langá á Mýrum er yfirleitt talin vera frekar mikil síðsumarsá og veiðimenn ekkert sérstaklega stressaðir þó það sjáist ekki margir laxar í henni fyrr en nær dregur seinni hluta júní.
SIlungssvæðin í Laxá í Aðaldal eru nokkur en tvö af þeim vinsælustu eru daglega kölluð Laxá í Mývatnssveit og Laxárdalur en sá seinni er þekktur fyrir væna urriða sem oft er erfitt að ná.
Veiðisvæðið sem er yfirleitt kennt við Jöklu fer yfirleitt að gefa fyrstu laxana sína um byrjun júlí en þangað til er engu að síður fín veiði á svæðinu.
Fyrstu fréttir af opnunardeginum í Blöndu lofa sannarlega góðu en dagana og vikuna fyrir opnun sáust laxar bæði í Damminum og á Breiðunni sem gaf til kynna að opnunin gæti orðið góð.
Veiði hefst í Elliðaánum 20. júní en þrátt fyrir að enn séu tvær vikur í að veiði hefjist eru fyrstu laxarnir þegar mættir í ánna.
Það er fátt eins skemmtilegt og að vera við vatn með það eina markmið að allir setji í fisk og helst að það veiðist nóg til að grilla um kvöldið.