Erlent
218 219 220 221 222 223 224 225 226 … 334 ›
Fjórir látnir og 28 er saknað eftir snjóflóð í Himalaya-fjöllunum Að minnsta kosti fjórir létust í snjóflóði í Himalaya-fjöllunum í gær og er 28 manns enn saknað. Fólkið var í þjálfun í indverska hluta fjallanna þegar snjóflóðið féll. Erlent 5.10.2022 06:41
Segjast hafa fundið pyntingaklefa Rússa Lögreglan í Úkraínu segist hafa fundið pyntingaklefa í þorpinu Pisky-Radkivski í Kharkív-héraði. Þar að auki hafi fundist kassi með gulltönnum sem taldar eru hafa verið dregnar úr fórnarlömbum. Erlent 4.10.2022 23:45
Trump biður Hæstarétt um að skerast í leyniskjalaleikinn Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, báðu Hæstarétt Bandaríkjanna um að láta gerðardómara fara yfir aragrúa leyniskjala sem Trump hafði með sér úr Hvíta húsinu. Trump hefur áður haldið því fram að hann hafi haft vald til þess að aflétta leynd af skjölunum með því einu að hugsa um það. Erlent 4.10.2022 22:00
Tíu þúsund kílómetra hali eftir áreksturinn við geimfarið Um tíu þúsund kílómetra langur hali af braki gengur nú aftur úr smástirni sem bandarískt geimfar skall á í síðasta mánuði. Vísindamenn búast við því að halinn lengist og þynnist enn meira út þar til hann verður ekki lengur greinanlegur. Erlent 4.10.2022 21:08
Mannskaði í snjóflóði í Himalajafjöllum Að minnsta kosti fjórir fjallgöngumenn eru látnir og fjölda er saknað eftir að gönguhópur lenti í snjóflóði í Himalajafjöllum á Indlandi. Hluti hópsins er talinn fastur í jökulsprungu. Erlent 4.10.2022 19:41
Bandaríkjaforseti setur tugi milljarða í hernaðaraðstoð Joe Biden Bandaríkjaforseti hyggst setja aukinn kraft í hernaðaraðstoð. Bandaríkjamenn hyggist útvega Úkraínumönnum hergögn að andvirði 625 milljóna bandaríkjadala en þar á meðal eru HIMARS-eldflaugakerfi, skriðdrekar og stórskotaliðstæki. Erlent 4.10.2022 18:49
Neitar því að hafa borgað þungunarrof kærustu Herschel Walker, frambjóðandi Repúblikanaflokksins til annars öldungadeildarþingsætis Georgíu-ríkis, þvertekur fyrir það að hafa greitt fyrir þungunarrof fyrrverandi kærustu sinnar árið 2009. Því hefur verið haldið fram í fjölmiðlum vestanhafs en Walker segist mikill andstæðingur þess að konur eigi rétt á þungunarrofi. Erlent 4.10.2022 16:32
Talinn hafa svívirt lík rúmlega hundrað kvenna og stúlkna David Fuller, breskur rafvirki sem dæmdur var í lífstíðarfangelsi í fyrra fyrir að myrða tvær konur árið 1987 og hefur játað að hafa svívirt 78 lík, hefur verið ákærður fyrir sextán brot til viðbótar. Erlent 4.10.2022 14:50
Skammast sín ekki fyrir að skipta um skoðun Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, segist ekki skammast sín fyrir að hafa dregið umdeilda tekjuskattslækkun til baka en hún hafi tekið ákvörðunina mjög fljótlega þar sem skattalækkunin hafi verið að draga athygli frá öðrum aðgerðum ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Hún sætir nú gagnrýni úr öllum áttum, þar á meðal innan raða eigin flokks. Erlent 4.10.2022 13:55
Úkraínuforseti segir æ fleiri Rússa leggja á flótta Úkraínuforseti segir að hersveitir hans sæki fram í suðri og austri og frelsi æ stærri svæði undan Rússum. Á sama tíma leggi fleiri rússneskir hermenn á flótta. Forseti Frakklands vill mynda pólitískt bandalag lýðræðisríkja í Evrópu og segir að það geti tekið Úkraínu nokkur ár eða áratugi að gerast meðlimir að Evrópusambandinu. Erlent 4.10.2022 13:14
Rússar á undanhaldi í suðri Úkraínskir hermenn virðast sækja hratt fram gegn Rússum í suðurhluta Úkraínu. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að komið verði fram við Úkraínumenn sem búa í byggðum sem búið er að frelsa frá Rússum af sanngirni. Erlent 4.10.2022 13:13
Boðaði ekki til þingkosninga Danska þingið var sett í morgun eftir sumarhlé en fyrirfram bjuggust margir við að forsætisráðherrann Mette Frederiksen myndi nýta tækifærið í stefnuræðu sinni og boða til þingkosninga. Ekkert varð þó úr því. Erlent 4.10.2022 12:32
Hljóta Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á sviði skammtafræði Eðlisfræðingarnir Alain Aspect frá Frakklandi, John F. Clauser frá Bandaríkjunum og Anton Zeilinger frá Austurríki hljóta Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í ár fyrir rannsóknir sínar á sviði skammtafræði. Erlent 4.10.2022 09:56
Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Sænska vísindaakademían mun í dag tilkynna um hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í ár. Erlent 4.10.2022 09:16
Krefur CNN um 68 milljarða vegna meintra ærumeiðinga Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur höfðað mál á hendur fjölmiðlarisanum CNN. Sakar hann sjónvarpsstöðina um að hafa vegið að æru sinni og fer fram á 475 milljónir dala í skaðabætur, jafnvirði 68 milljarða króna. Erlent 4.10.2022 08:42
Rannsaka lottóið í Filippseyjum eftir að 433 unnu Leiðtogi minnihlutans á filippseyska þinginu hefur kallað eftir því að dráttur lottósins þar í landi verði skoðaður eftir 433 manns unnu stærsta vinninginn. Allar tölurnar sem dregnar voru margfeldi af níu en líkurnar á svo mörgum sigurvegurum eru stjarnfræðilegar. Erlent 4.10.2022 08:08
Telja raðmorðingja vera á ferðinni í Kaliforníu Lögreglan í borginni Stockton í Kaliforníu-ríki í Bandaríkjunum telur að raðmorðingi gæti verið á ferðinni í borginnu. Fimm manns hafa verið skotnir til bana síðustu þrjá mánuði en lögreglan telur að öll málin tengist. Erlent 4.10.2022 07:12
Skutu eldflaug í átt að Japan Norður-Kóreumenn skutu í gærkvöldi eldflaug sem flaug yfir Japan. Íbúar Japan fengu skilaboð um að koma sér í skjól vegna eldflaugarinnar en að lokum lenti flaugin í Kyrrahafinu. Talið er að Norður-Kóreumenn hafi með þessu viljað fanga athygli Japana og Bandaríkjamanna. Erlent 4.10.2022 06:48
Úkraínuher sækir fram í suðri og austri Varnir Rússa í Kherson-héraði í sunnanverðri Úkraínu voru brotnar á bak aftur í dag á sama tíma og Úkraínuher sótti fram í austanverðu landinu sem Rússar segjast hafa innlimað. Birgðaflutningaleiðum fyrir rússneska hermenn er sagt ógnað með gagnsókninni. Erlent 3.10.2022 23:55
Skellir skuldinni á Bandaríkin og Ísrael Æjatolla Khamenei, æðsti leiðtogi Írans, kenndi Bandaríkjunum og Ísrael um mótmæli á götum landsins í fyrstu opinberu ummælum sínum um óróann í dag. Mótmælin brutust út eftir að ung kona lést í haldi siðgæðislögreglunnar. Erlent 3.10.2022 20:54
Sendiherra segir Musk að fara norður og niður Úkraínski sendiherrann í Þýskalandi vandaði Elon Musk, auðkýfingnum sem hefur haslað sér völl sem nettröll, ekki kveðjurnar eftir að sá síðarnefndi viðraði hugmynd um forsendur friðar á milli Rússlands og Úkraínu. Bað sendiherrann Musk um að fara norður og niður. Erlent 3.10.2022 17:48
Harmar viðbrögð sonarins og fjölskyldu hans Margrét Þórhildur Danadrottning segist harma viðbrögð sonar síns, Jóakim prins, við ákvörðun hennar að svipta börn hans konungslegum titlum. Það hafi þó verið löngu kominn tími til að endurskoða hverjir beri titlana og þær skyldur sem þeim fylgja. Hún bindur vonir við að fjölskyldan fái frið til að vinna úr sínum málum. Erlent 3.10.2022 16:56
Strauk úr stofufangelsi og sögð á flótta með 11 ára dóttur Rússnesk yfirvöld hafa lýst eftir Marinu Ovsyannikovu, fyrrverandi ritstjóra, eftir að hún slapp úr stofufangelsi. Hún er nú sögð vera á flótta ásamt 11 ára dóttur sinni. Erlent 3.10.2022 15:52
Fellibylurinn gæti reynst tryggingafélögum Flórída dýr Meira en 80 manns eru sögð látin eftir að fellibylurinn Ian gekk yfir Flórída og Norður- og Suður-Karólínu. Búist er við því að viðgerðir og uppbygging ásamt aðstoð vegna fellibylsins muni kosta tugi milljarða Bandaríkjadala. Þar að auki muni fellibylurinn kosta tryggingafélögin augun úr. Erlent 3.10.2022 14:32
Leiðtogi Téténa sendir fjórtán til sextán ára syni sína til Úkraínu Ramzan Kadyrov, leiðtogi Téténa, hyggst senda þrjá syni sína til Úkraínu til að berjast með rússneskum hersveitum en synir hans eru fjórtán, fimmtán og sextán ára. Hann hefur lýst yfir óánægju með frammistöðu rússneskra hersveita upp á síðkastið og kallað eftir róttækari aðgerðum. Erlent 3.10.2022 14:04
Segja gas hætt að leka úr Nord Stream leiðslunum Rússneska orkufyrirtækið Gazprom segir að þrýstingur í Nord Stream leiðslunum í Eystrasaltinu sé kominn í jafnvægi eftir að leki kom upp í síðustu viku. Verið sé að vinna í að takmarka skaðleg áhrif á umhverfið en gas sé hætt að leka úr leiðslunum. Erlent 3.10.2022 11:01
Bolsonaro og Lula mætast í annarri umferð Önnur umferð fer fram í forsetakosningunum í Brasilíu þar sem enginn frambjóðandi fékk fimmtíu prósent atkvæða í kosningunum í gær. Forseti Brasilíu reyndist njóta meiri stuðnings en kannanir gerðu ráð fyrir en andstæðingi hans, fyrrverandi forseta Brasilíu, var spáð talsvert betra gengi. Erlent 3.10.2022 10:26
Hlýtur Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á genamengi útdauðra manntegunda Sænski erfðafræðingurinn Svante Pääbo hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífefnafræði og læknisfræði í ár fyrir rannsóknir sínar á erfðamengi útdauðra manntegunda og þróun mannsins. Erlent 3.10.2022 09:38
Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði. Erlent 3.10.2022 09:01
Petreaus segir bandamenn myndu þurrka Rússa út í Úkraínu David Petreaus, fyrrverandi yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA og fjögurra stjörnu hershöfðingi, segir að Bandaríkin og bandamenn þeirra innan Atlantshafsbandalagsins myndu grípa til afgerandi aðgerða ef Rússar notuðu kjarnorkuvopn í Úkraínu. Erlent 3.10.2022 07:53
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent