Innlent
101 102 103 104 105 106 107 108 109 … 334 ›
Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru „Það er bara svo sem sama, mest lítið að frétta,” segir vakthafandi náttúrrvársérfræðingur sem líkt og fleiri á von á því að gos geti hafist hvað úr hverju á Reykjanesskaga. Innlent 14.8.2024 22:27
Gaukarnir gista og fá snyrtingu Kona sem fékk sér páfagauk fyrir ári rekur nú fuglahótel þar sem gestir geta líka fengið gogg- og klóasnyrtingu. Sumir fuglar hafa verið það ánægðir með dvölina að þeir urðu eftir. Hótelstýran segir fuglaeigendur himinlifandi með þennan nýja valmöguleika. Innlent 14.8.2024 21:31
Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Um tíu björgunarsveitir eru á leið að Kerlingarfjöllum eftir að hjálparboð barst frá göngumanni sem fór út af gönguslóða í svartaþoku. Óljóst er hvort um sé að ræða einn eða tvo einstaklinga. Innlent 14.8.2024 21:07
Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Lögreglustjórinn á Suðurnesjum mælir eindregið gegn því að fólk dvelji í Grindavík nú þegar búist er við að gos hefjist á hverri stundu. Óásættanleg hætta er talin fyrir hendi í hluta bæjarins en dvalið hefur verið í um 24 húsum síðustu nætur og dæmi um að barnafólk sé í Grindavík. Innlent 14.8.2024 19:23
Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Formaður Vinstri grænna kallar eftir því að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra leggi fram stefnumörkun um vindorkumál á haustþingi. Hann telur að gera þurfi breytingar á tillögum sem lagðar voru fram á síðasta þingi. Tryggja þurfi að auðlindin haldist í höndum þjóðarinnar. Innlent 14.8.2024 19:00
Bótagreiðslur til Íslendinga almennt hærri Tilfærslur ríkisins til fólks með erlent ríkisfang eru að meðaltali lægri en til fólks með íslenskt ríkisfang. Innlent 14.8.2024 17:06
Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum 138 konur biðu þess um síðustu áramót að komast að í brjóstaminnkunaraðgerð á Landspítalanum og ein á sjúkrahúsinu á Akureyri. Gerð er krafa um BMI-stuðul innan við 27 til að komast í aðgerð. Innlent 14.8.2024 16:11
Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Sigurgeir Svanbergsson synti í gær frá Flateyri til Holtsstrandar og sló hraðamet í sundinu sem hann vill kalla Drengjasund. Sigurgeir stundar sjósund til að berskjalda sig fyrir því sem honum þykir óþægilegt. Hann segir hafi geta verið hættulegt og skelfilegt en það jafnist ekkert á við tilfinninguna að skríða upp hinum megin. Innlent 14.8.2024 16:00
Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Tíu slösuðust í jafnmörgum umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Ökumanni og notanda rafhlaupahjóls greinir á um hvort árekstur hafi orðið í Nóatúni. Innlent 14.8.2024 15:42
Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Íslensk kona á fertugsaldri sætir ákæru fyrir peningaþvætti eftir að hafa verið stöðvuð með jafnvirði rúmlega þrettán milljóna króna í reiðufé á Keflavíkurflugvelli. Innlent 14.8.2024 15:30
Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Samningur er í höfn milli Landsvirkjunar og íslenska ríkisins um lands- og vindorkuréttindi vegna Búrfellslundar. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur samningur er gerður en Búrfellslundur liggur innan þjóðlendu. Gildistími samningsins er 35 ár með möguleika á framlengingu um 15 ár. Innlent 14.8.2024 15:07
Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Á laugardaginn kemur verður einn sérkennilegasti og líklega tímabundnasti grafreitur Íslandssögunnar reistur á Seltjarnarnesi. Á hátíðlegri athöfn verður jöklagrafreiturinn vígður en þar verður legsteinum jökla, horfinna og þeirra sem eru við það að hverfa, komið fyrir og verða þeir úr ís. Innlent 14.8.2024 14:27
Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar eyddi breskri sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli fyrir viku síðan. Brynjar Karl Óttarsson, grunnskólakennari á Akureyri og umsjónarmaður síðunnar Grenndargralsins, var viðstaddur eyðinguna og segir allt hafa gengið vel. Innlent 14.8.2024 13:31
Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Tónlistarmaðurinn Halldór Bragason lést þegar eldur kom upp á heimili hans við Amtmannsstíg í Reykjavík í gær. Halldór, betur þekktur sem Dóri, var meðal lykilmanna í blústónlistarsenunni hér á landi. Innlent 14.8.2024 13:05
Enginn vindmyllugarður án bættra vega Mikil innviðauppbygging þarf að fara fram ef áætlanir um uppbyggingu vindorkuvers í Dalabyggð eiga að ganga eftir. Verkið mun kosta minnst 40 milljarða og talið er að það muni taka minnst fimmtán ár fyrir verkið til að borga sig. Innlent 14.8.2024 13:01
Orsök veikindanna enn á huldu Tugir hafa veikst af iðrasýkingu vegna mögulegrar E.coli- mengunar á Rjúpnavöllum á Rangárvöllum. Nokkrir hafa þurft að leggjast inn. Settur sóttvarnarlæknir segir enn ekki búið staðfesta að uppruni veikindanna sé mengað neysluvatn Innlent 14.8.2024 12:46
Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson hefur verið dæmdur til að greiða 420 þúsund krónur í sekt fyrir að aka án ökuleyfis og undir áhrifum. Þetta er í annað sinn sem Gísli Pálmi er gripinn við akstur undir áhrifum á hálfu ári. Innlent 14.8.2024 12:30
Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Reglugerð ráðherra, um að merkja beri salerni eftir aðstöðu fremur en kynjum, hefur tekið gildi. Um stórt skref er að ræða að sögn varaforseta Trans Ísland. Innlent 14.8.2024 12:17
Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Hann var glæsilegur fagurbrúni refurinn sem sást á hlaupum yfir nýlegt hraun við Sundhnúkagígaröðina í gær. Hann var með nýveidda bráð í kjaftinum. Innlent 14.8.2024 12:09
Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Í hádegisfréttum verður fjallað um áform um vindorkugarð í Dölunum en fjölmennur fundur um málið var haldinn í Búðardal í gærkvöldi. Innlent 14.8.2024 11:38
Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Fyrr í sumar lenti Gústaf Björnsson í því að óprúttinn aðili með tösku með merkjum fyrirtækisins Wolt stal af honum gaskúti. Atvikið náðist á dyramyndavél en þar sést hvernig sendillinn læðist að grillinu við inngang hússins, laumar gaskútnum ofan í sendlapokann merktan Wolt og hraðar sér síðan í bílinn þar sem félagi hans bíður hans. Innlent 14.8.2024 11:18
Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir sveitarfélögin á áhrifasvæði fyrirhugaðs vindmyllugarðs í Búrfellslundi verða fyrir umtalsverðu fjárhagslegu tjóni af framkvæmdunum og segir ákvörðun munu verða tekna um hvort kæra eigi útgáfu Orkustofnunar á virkjanaleyfi á næstu sveitarstjórnarfundum. Innlent 14.8.2024 10:19
Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Heilsugæslan skipuleggur nú sýnatökur vegna mögulegar mengunar af völdum e. coli í neysluvatni á Rjúpnavöllum á Rangárvöllum. Í tilkynningu frá sóttvarnalækni segir að e. coli hafi verið staðfest, í litlu magni, í vatnssýnum frá Rangárvöllum. Innlent 14.8.2024 10:13
Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Embætti ríkislögreglustjóra greiddi 47 milljónir króna fyrir 175 hjálma sem keyptir voru fyrir sérsveitina og aðra lögreglumenn fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins í fyrra. Innlent 14.8.2024 08:59
Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum Heildarakstur í þjóðvegakerfinu á Íslandi nærri tvöfaldaðist á tímabilinu 2002 til 2023. Heildarakstur í þjóðvegakerfinu utan héraðsvega árið 2023 er áætlaður um 3.181 milljón ekinna kílómetra en var árið 2002 áætlaður um 1.781 milljón ekinna kílómetra. Innlent 14.8.2024 08:36
„Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, gagnrýnir áform um vindorkuver við Búrfell og segir mikilvægt að áætlanir um vindorkuver fari ekki fram úr regluverkinu. Innlent 14.8.2024 07:30
Þakklát fyrir þrjósku hundsins Margrét Víkingsdóttir var sofandi í íbúð sinni við Amtmannsstíg 6 þegar eldur kviknaði á neðri hæðinni. Hún slapp vel frá eldsvoðanum en sér á eftir nágranna sínum á sjötugsaldri sem lést í brunanum. Hún varð fyrst vör við eldinn eftir að hundurinn hennar vakti hana í morgunsárið. Innlent 14.8.2024 00:06
Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Eigendur Fjölskyldulands gætu þurft að loka náist ekki að snúa erfiðum rekstri við. Eigandinn segir þjónustuna afar mikilvæga, ekki síst fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að ná að aðlagast íslensku samfélagi. Innlent 13.8.2024 23:13
„Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Kvikumagnið undir Svartsengi er orðið meira en fyrir síðasta eldgos og gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast. Töluvert hefur verið um skjálfta á svæðinu í dag og telja þeir nú hátt í hundrað á sólarhring. Náttúruvársérfræðingur segir að gos gæti í raun byrjað hvenær sem er en líka teygst fram í september. Innlent 13.8.2024 21:25
Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Lögreglufulltrúi segir Sverri Þór Gunnarsson, betur þekktan sem Svedda tönn, hafa rætt um fíkniefnaviðskipti við notanda sem lögregla telur ljóst að sé Pétur Jökull Jónasson. Pétur Jökull sætir ákæru fyrir aðild að stóra kókaínmálinu sem kom upp sumarið 2022. Lögreglufulltrúinn kafaði ofan í samskipti Sverris Þórs á Signal. Innlent 13.8.2024 21:00