Innlent
9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 334 ›
Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Karlmaðurinn sem ákærður er fyrir hlutdeild í meintu umsáturseinelti Írisar Helgu Jónatansdóttur biðst nú afsökunar á aðkomu sinni að málinu. Hann neitar þó enn sök. Innlent 19.5.2026 13:29
Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti Flokks fólksins í Reykjavík, segir niðurstöðu kosninganna vonbrigði. Hann sé samt sem áður þakklátur fyrir það traust sem honum var sýnt til að leiða flokkinn. Innlent 19.5.2026 12:53
Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál Vegagerðin hefur boðið út eftirlit og ráðgjöf með smíði nýrrar Þjórsárbrúar og gerð Búðafossvegar. Samningur um eftirlitið sem og fyrirhugað verkútboð eru þó háð því að búið verði að útkljá kærumál, sem árum saman hafa tafið bæði Hvammsvirkjun og Þjórsárbrúna. Innlent 19.5.2026 12:37
„Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að beiting rafvarnarvopns við aðstæður sem uppi voru við handtöku í Keflavík í gær sé varasöm og fullyrðir að engin réttarspjöll verði þó vitni að atvikinu hafi verið gert að eyða myndbandi af handtökunni. Innlent 19.5.2026 12:29
Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Karlmaður sem ákærður er fyrir hlutdeild í meintu umsáturseinelti Írisar Helgu Jónatansdóttir neitar sök. Innlent 19.5.2026 12:02
Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Eldur kviknaði í litlum skúr við einbýlishúsi í Bjarmalandi í Fossvogi í Reykjavík laust fyrir klukkan 11:30. Eldurinn hefur þegar verið slökktur en slökkvilið er að störfum við að tryggja að hann hafi ekki læst sér í þak hússins. Innlent 19.5.2026 11:49
Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna Í hádegisfréttum fjöllum við um handtöku sem framkvæmd var í Reykjanesbæ í gær þar sem lögreglumenn beittu rafbyssu á mann sem hafði hellt yfir sig bensíni. Innlent 19.5.2026 11:44
„Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Hildur Dís og Hjalti eru bæði með meltingarsjúkdóm sem getur valdið því að þau þurfa að fara á salernið með stuttum fyrirvara. Bæði greindust þau nokkuð ung en afleiðingar sjúkdómanna eru ólíkar. Hjalti er til dæmis bestur á einföldu mataræði en bæði segja þau streitu og álag verulegan áhrifavald. Innlent 19.5.2026 10:12
Enn varað við umferðartöfum sökum framkvæmda á Hringvegi Vegagerðin varar við því að í dag frá klukkan níu og fram til klukkan átta í kvöld verður unnið að vegaframkvæmdum á um 900 metra kafla á Hringveginum austan við hringtorgið í Hveragerði. Innlent 19.5.2026 07:17
Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Aðeins rúmu prósentustigi skeikaði að meðaltali á skoðanakönnunum og úrslitum í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík. Stærðfræðingur segir kannanirnar hafa verið sögulega nákvæmar í ár. Innlent 19.5.2026 07:03
Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Kona sem var starfsmaður á leikskóla hefur verið ákærð fyrir líkamsárásir og brot gegn barnaverndarlögum en hún er sögð hafa slegið son sinn og dreng á leikskólanum í andlitið. Innlent 19.5.2026 06:20
Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir allt stefna í nýtt eldgos á Sundhnúksgígaröðinni. Margir aðrir möguleikar séu þó í stöðunni, eins og að annað eldstöðvakerfi taki við, þar á meðal Krýsuvíkurkerfið. Innlent 18.5.2026 22:10
Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð hafa ákveðið að hefja formlegar meirihlutaviðræður um áframhaldandi samstarf flokkanna á komandi kjörtímabili. Flokkarnir töpuðu báðir verulegu fylgi milli kosninga, en meirihlutinn hélt samt velli. Innlent 18.5.2026 21:33
„Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segist aðallega velta fyrir sér meirihlutasamstarfi með Miðflokki annars vegar eða Viðreisn og Framsókn hins vegar. Hún hefur rætt við alla kjörna oddvita í dag en kveðst ekki hafa tekið ákvörðun. Nú ætli hún að tala við sitt fólk um stöðuna sem upp er komin. Innlent 18.5.2026 19:51
Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Ökumaðurinn sem lögreglan stöðvaði för í gærkvöld var mældur á allt að 200 kílómetra hraða á klukkustund. Lögreglan stöðvaði för hans með því að kasta út naglamottu. För ökumannsins lauk þegar hann ók aftan á aðra bifreið á afrein að Breiðholtsbraut. Tvennt var í bílnum sem hann ók á og voru þau flutt á sjúkrahús með minniháttar áverka. Pilturinn var einnig fluttur á sjúkrahús með minniháttar áverka og bíður nú lögregla eftir að geta yfirheyrt hann. Innlent 18.5.2026 19:14
Hildur í beinni um þreifingar dagsins Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og ótvíræður sigurvegari kosninganna í borginni, fundaði í dag með oddvitum allra flokka sem náðu inn manni í borgarstjórn. Við ræðum við Hildi í beinni í kvöldfréttum og heyrum allt um fundarhöld dagsins. Þá mætir stjórnmálafræðingurinn Gunnar Sigurðarson í myndver og fer yfir kostina sem eru í stöðunni og bláu bylgjuna sem reið yfir landið á laugardag. Innlent 18.5.2026 18:07
Lögreglu hafi stafað hætta af manninum Yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurnesjum segir lögreglumenn hafa tekið upplýsta ákvörðun þegar þeir ákváðu að beita rafvarnarvopni gegn manni sem þakinn var íkveikivökva í morgun. Þá hafi manni verið gert að eyða myndefni af atvikinu í þágu hagsmuna þess sem beittur var rafvopninu, enda hafi hann verið án fata. Innlent 18.5.2026 16:59
„Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins og frambjóðandi í Reykjavíkurborg, segir í pistli að örðugt gæti reynst fyrir Hildi Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðismanna, að ganga til meirihlutasamstarfs við Miðflokkinn í ljósi þess hvernig þau Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir létu í aðdraganda kosninga. Innlent 18.5.2026 16:10
Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Lögregla varar við því að erlendir netsvikarar noti talgervil, sem breytir íslenskum texta í tal, til að blekkja fólk í gegnum síma og svíkja af því fé. Innlent 18.5.2026 15:53
Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar og oddviti Hafnarfjarðar, hefur ákveðið að stíga til hliðar og hætta í pólitík. Hann gerir því skóna að nýr varaformaður flokksins verði valinn á næstunni á flokksráðsfundi. Innlent 18.5.2026 14:46
Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar HMS stefnir á að birta álit sitt á umhverfismati vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar. Vegna umræðu um tafir sem orðið hafa á umhverfismati Sundabrautar vill HMS árétta að tímarammi umhverfismatsins er á forræði framkvæmdaraðila. Framvinda málsins ræðst af því hvenær hann leggur fram gögn til yfirferðar HMS. Innlent 18.5.2026 14:40
Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Maður sem varð vitni að afskiptum lögreglu af manni við Keflavíkurkirkjugarð í morgun, sem endaði með því að kviknaði í manninum, segir beitingu lögreglu á rafvarnarvopni fáránlega, þar sem maðurinn hafi verið búinn að hella á sig íkveikivökva. Þá hafi lögregla neytt hann til að eyða myndskeiði af atvikinu með hótunum um handtöku. Innlent 18.5.2026 14:39
Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur boðað til opins fundar í dag til að fjalla um stöðu samgangna til Vestmannaeyja og nauðsyn ferjuáætlunar. Eyjólfur Árnason innviðaráðherra verður gestur fundarins, sem hefst klukkan 15. Innlent 18.5.2026 14:31
Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ljóst að Samfylkingin þarf að byggja upp traust á ný í Reykjavík. Samfylkingin hafi hlotið næstmest fylgi á landsvísu og flokkurinn hafi fjölgað fulltrúum í sveitarstjórnum. Það sé samt sem áður alvarlegt að fjöldi jafnaðarmanna hafi kosið aðra flokka. Innlent 18.5.2026 13:01
Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Guðmundur Oddgeirsson vegfarandi segist nú hafa verið fastur í bílalest á Þjóðvegi 1 í 45 mínútur. Hann er búinn að missa af tíma hjá lækni en hann er að koma í borgina frá Þorlákshöfn. Hann er ósáttur. Innlent 18.5.2026 12:08
„Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Rútubílstjóri sem varð vitni að ofsaakstri á Reykjanesbraut í gærkvöldi segir bílinn hafa verið á svakalegri ferð. Sá hann þegar lögregla hóf eftirför en henni lauk við Breiðholtsbraut með árekstri þar sem tveir bílar enduðu utan vegar. Innlent 18.5.2026 12:08
Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Meirihlutaviðræður eru hafnar á þó nokkrum stöðum, meðal annars á Akureyri og í Skagafirði, þar sem útlit er fyrir að Framsóknarflokkurinn verði ekki í meirihluta í fyrsta sinn um árabil. Oddviti Framsóknar segir tíðindin koma sér í opna skjöldu. Innlent 18.5.2026 12:02
Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp Oddviti Sjálfstæðisflokksins mun í dag funda með oddvitum allra framboða sem náðu fulltrúa inn í borgarstjórn. Prófessor í stjórnmálafræði segir Hildi Björnsdóttur með öll tromp á hendi og standa frammi fyrir pólitísku vali um meirihluta í íhalds- eða frjálslyndisátt. Innlent 18.5.2026 12:02
„Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Ökumaðurinn sem lögregla eltist við á ofsahraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi er piltur undir tvítugu. Innlent 18.5.2026 11:46
Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Í hádegisfréttum verður rætt við prófessor í stjórnmálafræði um stöðuna í Reykjavík eftir borgarstjórnarkosningarnar um helgina. Innlent 18.5.2026 11:39