BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Jakob Bjarnar skrifar 19. október 2026 12:32 Stjórn BDSM fordæmir harðlega niðurstöðu meirihluta Landsréttar sem birtist í nýlegum sýknudómi. vísir/egill BDSM á Íslandi lýsir yfir þungum áhyggjum og fordæmir harðlega niðurstöðu meirihluta Landsréttar í nýbirtum sýknudómi þar sem maður var sýknaður af nauðgun með vísan til samþykkis brotaþola fyrir harkalegu kynlífi.
Sýknudómur sem Vísir greindi frá í síðustu viku hefur verið harðlega gagnrýndur bæði af Stígamótum sem og ýmsum sem hafa viljað fjalla um hann á samfélagsmiðlum. Karlmaður var sýknaður í Landsrétti en hann hafði áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hafni því að BDSM sé notað sem skálkaskjól Þar var hann fundinn sekur fyrir að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án samþykkis hennar. Tveir af þremur dómurum töldu ekki nægilega sannað að maðurinn hefði haft þann ásetning sem þurfi til sakfellingar fyrir nauðgun. Maðurinn hefur áður verið dæmdur fyrir nauðgun. Konan hlaut samkvæmt ákæru meðal annars rifbeinsbrot, yfirborðsáverka á höfði, eymsli í kjálka, tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind, heyrnartap og rifbrot. Dómurinn ætlar að reynast umdeildur og hefur stjórn BDSM nú tekið undir gagnrýniraddir og segir það forkastanlegt og hættulegt ef hugtök og reynsluheimur BDSM séu misnotuð fyrir dómstólum eða af gerendum til þess að réttlæta alvarlegt ofbeldi, beinbrot og líkamstjón. Þetta gerir BDSM á Íslandi í yfirlýsingu á Facebook. Þar er því alfarið hafnað að BDSM sé notað sem skjól fyrir ofbeldi eða að hugmyndir um samþykki séu túlkaðar þannig að ábyrgðin sé færð yfir á brotaþola. Standi ávallt með þolendum kynbundins ofbeldis „Samþykki þarf að vera frjálst og byggjast á skilningi á því sem samið er um, það afmarkast af þeim athöfnum og mörkum sem þátttakendur hafa samþykkt og samþykki má draga til baka hvenær sem er,“ segir í yfirlýsingunni. Þá lýsa BDSM á Íslandi yfir fullum stuðningi við gagnrýni Stígamóta á þennan dóm. „Við deilum þeirri skoðun að það séu skelfileg skilaboð út í samfélagið ef dómstólar landsins líti svo á að svo lengi sem BDSM-orðið sé nefnt, megi fólk afsala sér réttindum til lífs og heilsu.“ BDSM á Íslandi tekur fram að þau standi ávallt með þolendum kynferðislegs og kynbundins ofbeldis.
Kynbundið ofbeldi Dómsmál Kynferðisofbeldi Dómstólar Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Fleiri fréttir Viðreisn heldur starfsheimildum en framlagið fylgir Jóni BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Sjá meira