Innlent
207 208 209 210 211 212 213 214 215 … 334 ›
Fannst hennar tími vera kominn Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, segir að henni hafi fundist hennar tími kominn í íslenskum stjórnmálum. Hún vill enn gera gagn til góðs og telur sig geta gert það í embætti forseta. Innlent 23.4.2024 21:30
Sakar ríkisstjórnina um að ætla að afhenda fiskeldinu firðina til eilífðar Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar segir engan frið verða um frumvarp Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra um lagareldi. Hann segir ótímabundinn rekstrarleyfi til fiskeldis fara í þveröfuga átt við Noreg og að ákvæði í frumvarpinu veiti erlendum hagsmunaaðilum rétt á að braska með heimildir. Innlent 23.4.2024 21:13
Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Samfylkingin nýtur mesta fylgis flokka á Alþingi og er marktækur munur á fylgi hennar og Sjálfstæðisflokksins fjórtánda mánuðinn í röð, samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Miðflokkurinn er að festa sig í sessi sem þriðji stærsti flokkurinn. Innlent 23.4.2024 19:51
Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Breiðhyltingur segir farir sínar ekki sléttar af framkvæmdum við Breiðholtsbraut. Síðustu mánuði hefur gönguleið hennar í vinnuna smám saman þrefaldast vegna framkvæmdanna. Hún segir málið hreinlega eins og í bíómynd. Innlent 23.4.2024 19:30
Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur móður sem grunuð er um að hafa orðið syni sínum að bana í Kópavogi. Hún hefur setið í gæsluvarðhaldið vegna málsins síðan í lok janúar. Innlent 23.4.2024 18:27
Stórfjölgun ofbeldisbrota, firðir í hættu og hönnunarstuldur Tilkynningum um alvarleg ofbeldisbrot til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað um áttatíu og fimm prósent á síðustu tíu árum á sama tíma og lögreglumönnum hefur fækkað um fjörutíu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við lögreglustjóra sem kallar eftir breytingum. Innlent 23.4.2024 18:01
„Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“ Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, gefur lítið fyrir ummæli Einars Þorsteinssonar borgarstjóra. Í dag lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins 1600 vettlinga á gólf Ráðhússins sem þau sögðu svipað marga og börn sem bíði eftir leikskólaplássi í borginni. Innlent 23.4.2024 17:56
Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og utanríkisráðherra fer ófögrum orðum um orðræðu Jóns Gnarr um framboð Katrínar Jakobsdóttur til forseta. Jóni hefur verið tíðrætt um að honum finnist óvenjulegt að sitjandi forsætisráðherra skuli bjóða sig fram og hefur kallað framboð hennar „steikt og absúrd.“ Innlent 23.4.2024 17:35
Staðfesta gæsluvarðhald tveggja sakborninga Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Suðurland um að úrskurða tvo karlmenn í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á andláti sem varð í Kiðjabergi um helgina. Innlent 23.4.2024 16:57
Óbreytt frumvarp þýði útrýmingu villta laxins Aðalfundur Landsambands veiðifélaga lýsir yfir miklum áhyggjum af efni frumvarps um lagareldi, sem Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir nýr matvælaráðherra, mælir nú fyrir á þingi. En þar er tekist á af hörku um málið. Innlent 23.4.2024 16:47
Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Bíl var ekið á húsnæði Útlendingastofnunnar í dag. Slökkviliðið var kallað út vegna málsins, vegna vatnsleka, en svo virðist sem lögn hafi rofnað við áreksturinn. Innlent 23.4.2024 16:36
Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Húsfélag fjölbýlishúss nokkurs hefur verið gert afturreka með kröfu sína um að einum íbúa hússins, sem er rafvirkjameistari, yrði bannað að nota einkatengil til hleðslu á bifreið hans í bílakjallara hússins. Húsfélagið krafðist þess einnig að því yrði eftir atvikum heimilt að klippa á tengilinn héldi eigandinn notkun hans áfram. Innlent 23.4.2024 15:56
Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Einar Þorsteinsson borgarstjóri gefur ekki mikið fyrir mótmæli borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í ráðhúsinu í dag. Þar lögðu borgarfulltrúar flokksins 1.600 vettlinga sem þau sögðu svipað marga og þau börn sem bíði eftir leikskólaplássi í borginni. Innlent 23.4.2024 15:55
Enn kröftugt gos úr einum gíg Enn gýs úr einum gíg skammt austan við Sundhnúk. Frá 5. apríl hefur aðeins gosið úr einum gíg í eldgosinu sem hófst þann 16. mars síðastliðinn. Myndatökumaðurinn Björn Steinbekk var á vettvangi í vikunni og myndaði gosið. Innlent 23.4.2024 15:46
Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Sýnileg gosmóða frá eldgosinu á Reykjanesi liggur yfir Suðvesturlandi. Mælt er gegn því að börn sofi úti og að viðkvæmir reynir á sig utandyra þegar móðan er sýnileg jafnvel þó að mengun mælist ekki yfir mörkum á loftgæðamælum. Innlent 23.4.2024 15:24
Velkomin í Verbúðina II Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir nýr matvælaráðherra mælti fyrir frumvarpi sínu um lagareldi nú rétt í þessu. Það nær til sjókvíaeldis, landeldis, hafeldis og þörungaræktar. Fyrir liggur að málið er gríðarlega eldfimt. Innlent 23.4.2024 15:11
Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Halla Hrund Logadóttir mælist með sextán prósent fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Í fyrri Þjóðarpúlsi mældist hún aðeins með fjögur prósent fylgi. Katrín Jakobsdóttir mælist með mest fylgi og bætir lítillega við sig, fer úr 30 í 31 prósent. Innlent 23.4.2024 14:07
Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag Þrír karlmenn hafa verið ákærðir vegna skotárásar sem átti sér stað á aðfangadag, 24 desember, í fyrra. Einn þeirra er grunaður um að hafa framið sjálfa árásina og er ákærður fyrir tilraun til manndráps, húsbrot, hættubrot og vopnalagabrot. Hinir tveir eru ákærðir fyrir hlutdeild í brotunum. Innlent 23.4.2024 13:45
Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins kom í dag 1.600 barnavettlingum fyrir í Tjarnasal ráðhússins. Svipaður fjölda barna bíði nú eftir leikskólaplássi. Oddviti flokksins, Hildur Björnsdóttir, segir uppátækið ekki síst til þess að minna borgarstjóra á leikskólavandann. Innlent 23.4.2024 13:20
Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Fyrirætlanir Heidelberg sem tengjast stórfelldum efnisflutningum til Þýskalands í gegnum Þorlákshöfn er enn komið á dagskrá. Og ekki seinna vænna enda verður íbúakosning um málið samhliða forsetakosningum. Innlent 23.4.2024 13:00
Aðstoðarrektor í Bandaríkjunum verður rektor Háskólans á Akureyri Háskólaráðherra hefur skipað Áslaugu Ásgeirsdóttur rektor Háskólans á Akureyri. Áslaug, sem var ein fimm umsækjenda um stöðuna, hefur verið aðstoðarrektor háskóla í Maine í Bandaríkjunum undanfarin fimm ár. Innlent 23.4.2024 12:51
Bjarni vill taka daginn snemma Ákveðið hefur verið að reglulegir þriðjudagsfundir ríkisstjórnar skulu hefjast fyrr um morguninn en verið hefur síðustu ár. Fundirnir hefjast nú 8:15, en í forsætisráðherratíð Katrínar Jakobsdóttur var þumalputtareglan sú að þriðjudagsfundirnir hæfust klukkan 9:30. Innlent 23.4.2024 12:41
Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, Halla Tómasdóttir athafnakona og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona verða gestir Pallborðsins í dag, sem hefst klukkan 15. Innlent 23.4.2024 12:34
Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að fara fram á það í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag að Davíð Viðarsson, áður Quang Le, sæti áfram gæsluvarðhaldi. Hann hefur verið í varðhaldi í sjö vikur ásamt barnsmóður sinni og bróður. Innlent 23.4.2024 12:24
Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Fyrrverandi formaður og framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands fer hörðum orðum um úttekt endurskoðunarfyrirtækis á reikningum félagsins í stjórnartíð hans. Hann furðar sig meðal annars á ávirðingum fyrir að hafa ekki fengið leyfi fyrir vínarbrauðskaupum fyrir eldri félagsmenn. Innlent 23.4.2024 12:04
Tvö manndráp á skömmum tíma Í hádegisfréttum fjöllum við um rannsókn lögreglu á meintu manndrápi í fjölbýlishúsi á Akureyri í gær. Lögregla hefur að mestu lokið vettnvangsrannsókn. Innlent 23.4.2024 11:35
„Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Tæknideild lögreglu hefur að mestu lokið vettvangsrannsókn vegna manndráps í fjölbýlishúsi á Akureyri í gær. Karlmaður var síðdegis úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um að hafa banað konu. Tæknideild er enn að störfum vegna manndráps í Kiðjabergi um helgina. Innlent 23.4.2024 11:30
Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingar, segir enga óeiningu í Samfylkingunni. Það sé eðlilegt að það séu skoðanaskipti í stórum flokki. Hann segir Samfylkinguna tilbúna í ríkisstjórnarsamstarf og Sjálfstæðisflokkinn þurfa hvíld. Það yrði þeirra alsíðasti kostur í samstarf. Innlent 23.4.2024 10:40
Réðst á barn sem gerði dyraat Karlmaður hefur hlotið þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að ráðast að ungum dreng. Innlent 23.4.2024 10:30
Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Karlmaður sem grunaður er um að hafa banað konu sinni í leiguíbúð þeirra í fjölbýlishúsi við Kjarnagötu í Naustahverfinu á Akureyri er á sjötugsaldri. Hann var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna í Héraðsdómi Norðurlands eystra í miðbæ Akureyrar seinni partinn í gær. Innlent 23.4.2024 10:20