Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Samúel Karl Ólason skrifar 3. nóvember 2026 22:45 Kjósandi í Vermont í Bandaríkjunum. AP/Kristopher Radder, Brattleboro Reformer. Milljónir Bandaríkjamanna hafa greitt atkvæði í þingkosningum í dag, sem munu hafa mikil áhrif á síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti forseta. Líklegt er að Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni, ef marka má kannanir. Einnig eru líkur á því að þeir nái meirihluta í öldungadeildinni, fari allt á besta veg fyrir Demókrata.
Í Bandaríkjunum er mjög algengt að ráðandi fylking komi illa út úr kosningum á miðju kjörtímabili forseta. Víða eru þó vísbendingar um að Repúblikanar geti komið sérstaklega illa út úr þessum kosningum. Trump hefur mælst sögulega óvinsæll forseti. Sjá einnig: Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Kjósendur víðsvegar um Bandaríkin hafa í samtali við AP-fréttaveituna sagt að Trump hafi haft slæmi áhrif á hagkerfi Bandaríkjanna. Um tveir þriðju þeirra sögðu áhrifin slæm en einungis þrír af tíu sögðu forsetann hafa haft jákvæð áhrif. Flestir sem rætt var við sögðu að verðlag og spilling væru helstu málefnin sem þeir hefðu í huga fyrir kosningarnar. Aðstæður eru þó ekki góðar fyrir Demókrata, þar sem Repúblikanar breyttu kjördæmum þeim í hag víða um Bandaríkin, í ríkjum þar sem þeir stjórna, í aðdraganda kosninganna. Þeim tókst að hagnast töluvert meira á slíkum breytingum en Demókrötum tókst í kjördæmastríðunum svokölluðu í sumar og í haust. Verið er að kjósa um öll 435 þingsæti fulltrúadeildarinnar, 35 sæti í öldungadeildinni, embætti ríkisstjóra víða og önnur embætti. Þrettán af öldungadeildarsætunum 35 eru í höndum Demókrata og 22 í höndum Repúblikana. Í langflestum tilfellum þykja úrslitin nánast örugg en Demókratar telja sig eiga séns á að ná meirihluta í öldungadeildinni og er sú tilfinning studd af niðurstöðum kannana. Kortin líklega blá í fyrstu Fjölmiðlar vestanhafs segja að kjörsókn virðist ætla að vera töluverð að þessu sinni. Hún er iðulega minni í þingkosningum en í forsetakosningum. Fyrstu tölur eru frá Indiana og Kentucky, þar sem kjörstöðum er lokað klukkan ellefu að íslenskum tíma. Kjörstöðum í fleiri ríkjum er svo lokað á miðnætti og svo halda lokanirnar áfram í gegnum nóttina, vestur yfir Bandaríkin. Síðustu ríkin verða Alaska og Havaí en þar loka kjörstaðir klukkan sex í fyrramálið. ELECTION NIGHT, HOUR BY HOUR (ALL TIMES EASTERN): 6pm IN, KY 7pm GA, SC, VT, VA, most of FL and NH 7:30pm NC, OH, WV 8pm 21 states + DC 9pm AZ, IA, MN, NY, WI and more 10pm NV, MT, UT 11pm CA, OR, WA, ID 12am HI, AK https://t.co/A2Y2XJWwbe— Decision Desk HQ (@DecisionDeskHQ) November 3, 2026 Sérfræðingar hafa varað við því að fyrstu tölur í kjördæmum Bandaríkjanna muni líklega vera meira Demókrötum í vil en Repúblikönum. Það er vegna þess að kjósendur Demókrataflokksins eru líklegri til að kjósa utan kjörfundar en kjósendur Repúblikanaflokksins. Næturhrafnar geta fylgst með Steve Kornacki, talnasérfræðingi NBC News, fara yfir nýjustu tölurnar um leið og þær berast í nótt í spilaranum hér að neðan. Hann er með sérstaka útsendingu sem snýr eingöngu að umfjöllun hans um tölurnar. Talning mun að öllum líkindum taka nokkra daga og þá sérstaklega í ríkjum eins og Kaliforníu, Maine og Alaska. Úrslitin og það hverjir stjórna hvaða deild Bandaríkjaþings gæti ekki orðið ljóst strax. Í forsetakosningunum 2024 tók það átta daga að komast að niðurstöðu um meirihluta í fulltrúadeildinni. Þá var ljóst hver var í meirihluta í öldungadeildinni strax um nóttina eftir kjördag. Staðan var svipuð í þingkosningunum 2022 en þá tók einnig átta daga að sjá hvaða flokkur stjórnaði fulltrúadeildinni en það tók fjóra daga að fá úrslitin í öldungadeildinni. Vísir verður með allar helstu niðurstöður sem munu liggja fyrir eldsnemma í fyrramálið. Hér að neðan má fylgjast með umfjöllun AP-fréttaveitunnar um kosningarnar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira