Innlent
41 42 43 44 45 46 47 48 49 … 334 ›
Kynna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar Mennta og barnamálaráðuneytið kynnir niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar klukkan 14 til 16:30 í dag Hátíðarsal aðalbyggingar Háskóla Íslands. Hægt verður að horfa í streymi hér að neðan. Innlent 12.11.2024 13:33
Tvö vilja í Endurupptökudóm Berglind Svavarsdóttir lögmaður og Matthías G. Pálsson lögfræðingur hafa sótt um embætti dómanda við Endurupptökudóm. Innlent 12.11.2024 13:08
Kvarta til umboðsmanns Alþingis vegna blóðmerahalds Umboðsmanni Alþingis hefur borist kvörtun frá lögmanni dýraverndunarsamtaka vegna stjórnsýslu í tengslum við blóðmerahald á Íslandi. Lögmaðurinn segir að hér ríki algjört úrræðaleysi þegar upp koma mál sem varða illa meðferð á dýrum. Innlent 12.11.2024 12:54
Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Kristján Markús Sívarsson hefur verið dæmdur í sextán mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og vörslu og vopna og fíkniefna. Konunni sem varð fyrir árásinni voru dæmdar 800 þúsund krónur í miskabætur en hún hlaut höfuðkúpubrot og mar á heila. Innlent 12.11.2024 12:03
Ferðaðist frá Flateyri til Ísafjarðar til að fylla á vatnsflöskur Skrúfað verður fyrir vatnið á Flateyri eftir skriðuföll næturinnar og eru íbúar í Bolungarvík hvattir til að sjóða vatn fyrir neyslu þar sem það er drullugt. Þá liggur matarvinnsla niðri á svæðinu. Íbúi á Flateyri greip til þess ráðs að fylla á vatnsflöskur á Ísafirði vegna vatnsskorts.Töluverð skriðuhætta er enn á Vestfjörðum. Elísabet Inga. Innlent 12.11.2024 12:02
Skriðuföll á Vestfjörðum og lokað fyrir vatnið á Flateyri Skrúfað hefur verið fyrir vatnið á Flateyri eftir að skriða féll í vatnsból bæjarins. fjölmargar skriður ollu usla á svæðinu í nótt. Innlent 12.11.2024 11:40
Neysluvatnið í Bolungarvík drullugt og í ólagi Íbúar í Bolungarvík hafa verið hvattir til að sjóða vatn til neyslu eftir að skriður féllu á vatnsbólið í Hlíðardal. Vatnið í bænum er því ekki gott, drullugt og óhæft til drykkjar þar sem allar síur hafi stíflast. Innlent 12.11.2024 11:22
Vildi drepa soninn svo hann kæmist til himna Móðir sem dæmd var í átján ára fangelsi á dögunum fyrir að myrða sex ára son sinn og gera tilraun til að bana eldri syni sínum var þjökuð af alvarlegu þunglyndi en ekki geðveiki að mati dómkvaddra matsmanna. Hún tilkynnti lögreglu sjálf um andlát sonarins. Hinn sonurinn segir mömmu sína hafa spurt þegar hún reyndi að kæfa hann hvort hann vildi ekki deyja áður en hann næði tilteknum aldri því þá færi hann í „góða heiminn“. Innlent 12.11.2024 10:25
Loka fyrir vatnið á Flateyri eftir skriðu Lokað verður fyrir vatnið á Flateyri í dag á meðan hreinsun á vatnsbóli stendur yfir eftir skriðuföll næturinnar. Innlent 12.11.2024 10:24
Opna sundlaugina í Grindavík á ný Sundlaugin í Grindavík hefur verið opnuð á ný eftir að hafa verið lokuð síðasta rúma árið vegna eldsumbrota og lokunar bæjarins. Fyrsti dagur opnunarinnar var í gær. Innlent 12.11.2024 10:15
Þeim fækkar sem lesa og skrifa skilaboð við akstur Hlutfall fólks sem á það til að lesa skilaboð við akstur lækkar úr 40,1 prósent í 35,8 prósent á milli ára. Hlutfall þeirra sem á það til að skrifa skilaboð við akstur lækkar úr 31,8 prósent í 27,7 prósent. Innlent 12.11.2024 09:02
Varað við vatnavöxtum og skriðuföllum: Vegir lokuðust á Vestfjörðum Vegurinn í Ísafjarðardjúpi lokaðist í nótt eftir að áin Rjúkandi í Hestfirði flæddi yfir veginn. Einnig féll aurskriða yfir veginn í sama firði, með þeim afleiðingum að nokkrir ökumenn komust ekki leiða sinna. Innlent 12.11.2024 06:38
Fjórir handteknir í tengslum við rán Fjórir voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi eða nótt í tengslum við rán. Nokkrum var hins vegar sleppt eftir skamma stund en málið er í rannsókn. Innlent 12.11.2024 06:11
Sóttvarnaraðgerðir „aldeilis ekki“ meiri en í Svíþjóð Alma Möller, oddviti Samfylkingarinnar í Kraganum, segir það hafa verið nauðsynlegt að fletja kúrfuna í upphafi Covid-faraldurs. Ísland komi vel út í rannsóknum á umframdauðsföllum og sóttvarnaraðgerðir hafi verið síst meiri hérlendis en annars staðar. Innlent 11.11.2024 22:02
Bíll festist eftir aurskriðu við Dýrafjarðargöng Vegurinn að gangamunna Dýrafjarðarganga lokaður vegna aurskriðu. Einn bíll var á ferðinni og festist í aurnum, en ökumaður sem var einn í bílnum slasaðist ekki. Innlent 11.11.2024 21:31
Alræmdi túristahópurinn tók líka yfir pítsustað Hópur indverskra ferðamanna, sem fjallað hefur verið um að hafi valdið miklu fjaðrafoki með framferði sínu í Staðarskála í gær, var mættur á veitingastað í Reykjavík í gærkvöldi og olli ekki síður miklum usla. Innlent 11.11.2024 21:21
Hrafnar opna lokaðan póstkassa eins og ekkert sé Nokkrir hrafnar hafa gert sér að leik að opna póstkassa á sveitabæ í Árborg og tekið öll gluggaumslögin í kassanum og rifið þau niður eða farið með þau eitthvað í burtu. Þeir neita þó að borga reikningana í umslögunum. Innlent 11.11.2024 20:05
Fyrrverandi félagsmálaráðherra eigi eftir að svara í máli Yazans Dómsmálaráðherra segir að fyrrverandi félagsmálaráðherra hafi enn ekki svarað hvaða upplýsingar hann hafði sem kröfðust þess að stöðva ætti brottför fjölfatlaðs palestínsks drengs og fjölskyldu úr landi í haust. Hún er ósátt við niðurstöðu málsins. Innlent 11.11.2024 19:46
Hafi ekki sakað blaðamenn um hleranir: „Ég sagði það ekki og hef hvergi sagt það“ Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki rétt að hann hafi sakað blaðamenn um að standa í hlerunum sem beindust að syni hans, Gunnari Bergmann Jónssyni. Hann setur þó spurningamerki við vinnubrögð blaðamanna. Innlent 11.11.2024 19:45
„Gæsahúð, án gríns“ Ný sýning verður opnuð á laugardaginn, degi íslenskrar tungu, í Eddu, húsi íslenskunnar, en þar munu sum af verðmætustu handritum Íslendinga vera til sýnis. Fréttastofa fékk forskot á sæluna þegar að handritin voru flutt á milli húsa í dag. Innlent 11.11.2024 19:02
Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval Sonur Jóns Gunnarssonar á að hafa sagt á upptöku að faðir sinn hafi tekið sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í skiptum fyrir að komast í aðstöðu til að veita veiðileyfi til Hvals hf. Þá hafi hann sagt að utanríkisráðherra muni undirrita útgáfu leyfisins vegna hagsmunatengsla forsætisráðherra. Innlent 11.11.2024 18:16
Leynilegar upptökur og hrafnar sem tæta í sig reikninga fólks Ísraelskt njósnafyrirtæki sendi leynilegar upptökur á íslenska fjölmiðla. Jón Gunnarsson svarar fyrir málið í myndveri. Innlent 11.11.2024 18:11
Í gæsluvarðhald vegna alvarlegra ofbeldisbrota í Hafnarfirði Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í þágu rannsóknar á alvarlegum ofbeldisbrotum. Innlent 11.11.2024 17:12
Bauð leyniupptökur af spillingu í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis Leynileg upptaka sem virðist hafa verið grundvöllur umfjöllunar um aðstoðarmann forsætisráðherra og hvalveiðar var boðin fleirum en Heimildinni í síðustu viku. Boðin voru send í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis sem vann meðal annars fyrir Harvey Weinstein. Innlent 11.11.2024 16:54
Bein útsending: Tekist á um samgöngur í Norðvesturkjördæmi Oddvitar í Norðvesturkjördæmi koma saman á opnum fundi á Ísafirði í dag þar sem meðal annars verður rætt um samgönguinnviði og Vestfjarðarlínu. Innviðafélag Vestfjarða heldur fundinn þar sem farið verður yfir hvernig forsvarsmenn flokka bregðast við ákalli um stórátak í uppbyggingu samgönguinnviða. Innlent 11.11.2024 16:01
Hafa tilkynnt E. coli veikindin til Sjóvá Enn eru þrjú börn inniliggjandi á Barnaspítalanum vegna E. coli sýkingar á leikskólanum Mánagarði. Tvö eru á legudeild og eitt á gjörgæslu. Barnið er ekki í lífshættu að sögn Valtýs Stefánssonar Thors yfirlæknis á barnaspítala Hringsins. Sjóvá hafa borist tilkynningar og fyrirspurnir vegna veikindanna en Félagsstofnun stúdenta er bótaskyld vegna þeirra. Innlent 11.11.2024 15:57
Ók á sjö kindur og drap þær Sjö kindur drápust um helgina á Suðurlandi þegar var ekið á þær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir að frá því á föstudag hafi verið skráð um 150 mál hjá embættinu. Innlent 11.11.2024 15:07
Ekki púað á Snorra Ein mest lesna frétt fréttavefsins Mannlífs um þessar mundir er undir fyrirsögninni „Púað á Snorra“. Eitthvað er það málum blandið og við ritun og birtingu fréttarinnar gerði Reynir Traustason ritstjóri þau örmu mistök að upplýsa um heimildarmann sinn – í ógáti. Innlent 11.11.2024 14:51
„Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“ Snorri Másson oddviti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi Suður segir að hann „sundli við fúkyrðaflaumi“ Svandísar Svavarsdóttur í hlaðvarpinu Ein pæling fyrir helgi. Hann segir ásakanir Svandísar í hans garð lygi frá rótum. Innlent 11.11.2024 13:14
„Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Ritstjóri Heimildarinnar hefur vísað þungum ásökunum Jóns Gunnarssonar alfarið á bug. Hann sagði blaðamenn Heimildarinnar hafa staðið að því að tálbeita veiddi upplýsingar um hvalveiðar upp úr syni hans. Innlent 11.11.2024 12:20