Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. september 2026 08:18 Herdís Storgaard ræddi málin í Bítinu. Bylgjan Forstöðumaður Miðstöðvar slysavarna barna segir það algengt að leita þurfi með börn á bráðamóttöku eftir að þau hafi innbyrt nikótínpúða. Börn allt að níu ára prófi að stinga slíku upp í sig. „
Það eru náttúrulega þetta sem er gegnumgangandi, það eru eitranirnar,“ segir Herdís Storgaard, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Miðstöðvar slysavarna barna, í Bítinu á Bylgjunni. Stór bylgja hafi komið fyrir nokkrum árum þar sem fjöldi barna lagðist inn á sjúkrahús eftir að hafa komist í nikótínpúða. Í frétt Rúv frá 2023 segir að á þeim tíma hafi þrjú til fjögur börn á viku leitað á bráðamóttöku barna vegna nikótíneitrunar. Greint var frá því á Vísi það sama ár að leikskólabarn hefði fundið nikótínpúðadús á útisvæði leikskóla og boðið vini sínum á leikskólanum upp á „tyggjó“. Árið 2020 sendi eitrunarmiðstöð Landspítala frá sér tilkynningu og hvatti fólk að geyma nikótínpúða þar sem börn ná ekki til. „Fólk áttar sig ekki á því að þessi litli saklausi púði inniheldur gígantískt magn af nikótíni og öðrum efnum,“ segir Herdís. „Það sem vakti líka athygli, sem er svolítið óvanalegt vegna þess að eitranirnar tengjast mest yngstu börnunum okkar, var að þarna voru líka krakkar, sjö, átta, níu ára að fikta.“ Til að mynda hafi börnin séð foreldra sína nota púðana og viljað prófa eitthvað sem foreldrarnir gerðu. „Á sínum tíma þá var ég alltaf að tala um við fólk að henda ekki sígarettustubbunum út um allt því þegar að búið er að reykja og barn setur hann í munninn þá fær það eitrun,“ segir Herdís. Nú í dag séu það frekar nikótínpúðarnir. „Þetta er algjör martröð fyrir starfsmenn á leikskólum ef að einhver hefur verið að hanga á lóðinni um kvöldið. Af því að þetta sparkast inn í mölina og svo eru litlu börnin öll þarna niðri við jörðina og taka þetta og setja í munninn á sér.“
Nikótínpúðar Leikskólar Börn og uppeldi Bítið Bylgjan Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira