Innlent
65 66 67 68 69 70 71 72 73 … 334 ›
Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Vinna hófst við Hringveginn við Jökulsá í Lóni sem fór í sundur vegna mikilla vatnavaxta um klukkan sex í morgun. Vegurinn fór í sundur á um fimmtíu metra bili. Innlent 27.9.2025 09:28
Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ Lögregluþjónar virðast hafa haft í nógu að snúast í nótt og að miklu leyti vegna ölvunar í miðbænum. Alls voru 79 mál skráð í kerfi lögreglu frá klukkan fimm í gær og til fimm í morgun og gistu tíu í fangaklefa í nótt. Innlent 27.9.2025 07:45
„Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Auður Axelsdóttir, framkvæmdastýra Hugarafls, segir niðurstöður nýrrar Gallup könnunar á þjónustu Hugarafls sýna að þjónusta þeirra og nálgun virkar. Samkvæmt niðurstöðunum líður miklum meirihluta mjög illa við komu til þeirra en líðan batna verulega eftir það. Auður segir mikla þörf á að fjölga starfsfólki og vonar að þessar niðurstöður aðstoði við það. Stjórnvöld þurfi betur að styðja við úrræði sem starfi utan kerfis. Innlent 27.9.2025 07:02
Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Árvakur hf. og Sýn hf. hafa bæði skilað inn umsögn til Alþingis og lagst gegn frumvarpi menningar-, háskóla og nýsköpunarráðherra um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Með frumvarpinu er lagt til að hámarkshlutfall fjárveitinga til verkefna lækki úr 25 prósentum niður í 22 prósent, og myndi það þýða að styrkir til fjölmiðla á vegum Sýnar og Árvakurs myndu lækka. Innlent 27.9.2025 00:03
Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir að Íslendingar búi vel að því að eiga öflugt almannavarnakerfi, sem geti tekið á hvers kyns vá sem ber að höndum. Viðbragðsaðilar séu vakandi yfir öryggi á flugvellinum og hafi áður nýtt sér dróna. Innlent 26.9.2025 22:08
Jónína vill taka við af Ásmundi Einari Jónína Brynjólfsdóttir hefur tilkynnt um framboð sitt til embættis ritara Framsóknarflokksins. Ásmundur Einar Daðason lét af embættinu í dag, en kosið verður um nýjan ritara á miðstjórnarfundi flokksins 18. október. Innlent 26.9.2025 20:16
„Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Íbúi á stúdentagörðum háskólans segist vilja finna fyrir öryggi en ekki ógn eftir ítrekuð innbrot undanfarið. Óboðnir gestir gerðu sig meðal annars heimakomna í kjallara hússins þar sem þeir gerðu þarfir sínar á gólfið. Innlent 26.9.2025 19:27
Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Gerður Sigtryggsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Þingeyjarsveitar. Fyrrverandi sveitarstjóri, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, hefur þegar lokið störfum og Gerður tekin við. Innlent 26.9.2025 18:53
Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Þungir dómar voru kveðnir upp í Gufunesmálinu svokallaða í dag. Við gerum upp málið í kvöldfréttum og ræðum við verjendur sem sögðu daginn þungann fyrir alla sem að því koma. Innlent 26.9.2025 18:01
Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Verjandi Matthíasar Björns Erlingssonar sem var dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir manndráp í Gufunesmálinu svokallaða segir dómara í málinu ekki taka mið af þeim augljósu hagsmunum sem Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson hafi af því að fegra eigin hlut og sverta þátt Matthíasar. Innlent 26.9.2025 16:32
Anna ljósa fallin frá Anna Eðvaldsdóttir, betur þekkt sem Anna ljósa, er látin 66 ára að aldri eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Hún var ein þekktasta ljósmóðir landsins, starfaði við fagið í tæpa þrjá áratugi og gaf út bækur með góðum ráðum fyrir verðandi og nýbakaða foreldra. Innlent 26.9.2025 15:23
Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Ásmundur Einar Daðason, ritari Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra, hefur látið af embætti ritara Framsóknar. Hann segir skilið við stjórnmálin og snýr sér að öðrum verkefnum. Innlent 26.9.2025 15:02
Bætir þrepi við greiðsluþátttökukerfið Heilbrigðisráðherra hyggst gera breytingar á kerfi fyrir greiðsluþátttöku sjúkratryggðra um næstu áramót. Breytingarnar, sem eiga að spara Sjúkratryggingum Íslands fjögur hundruð milljónir króna á ári, felast í að bæta þrepi við greiðsluþátttökukerfið. Innlent 26.9.2025 14:44
„Ég bý ekki einu sinni í Reykjavík“ Katrín Júlíusdóttir fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar og rithöfundur segir af og frá að hún íhugi framboð í komandi sveitarstjórnarkosningum. Framboðstankur hennar sé tómur og hugur hennar sé við glæpasagnaskrif. Innlent 26.9.2025 14:38
Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Nítján ára og sautján ára táningsstúlkur hafa verið dæmdar í tólf mánaða fangelsi fyrir tilraun til að flytja inn Oxycontin. Þær voru gripnar með tuttugu þúsund töflur, sem merktar voru sem Oxycontin, á Keflavíkurflugvelli en töflurnar innihéldu allt annað efni. Það efni er hættulegt en var ekki að finna á lista yfir efni sem bönnuð eru hér á landi. Því voru þær sýknaðar af innflutningnum en sakfelldar fyrir tilraun til innflutnings. Efninu hefur nú verið bætt á bannlista. Innlent 26.9.2025 14:36
Ekki liðnir níu dagar þegar það var aftur brotist inn Ekki hafa liðið níu dagar frá byrjun skólaársins án þess að brotist hafi verið inn í Gamla Garð, stúdentaíbúðir við Háskóla Íslands. Íbúarnir settu upp skilti þar sem taldir eru dagarnir síðan síðast var brotist inn en það er aftur komið niður í núll. Innbrotsþjófarnir létu til skarar skríða í gærkvöldi. Innlent 26.9.2025 13:19
Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson voru dæmdir í sautján ára fangelsi og Matthías Björn Erlingssyni í fjórtán ára fangelsi fyrir að verða Hjörleifi Hauki Guðmundssyni að bana í Gufunesmálinu svokallaða. „Það eru ekki alltaf jólin,“ sagði Stefán skömmu eftir dómsuppsögu. Innlent 26.9.2025 12:17
Dómsuppkvaðning í Gufunesmálinu og óveður í aðsigi Í hádegisfréttum fjöllum við um dóma sem féllu nú fyrir hádegið í Gufunesmálinu svokallaða. Innlent 26.9.2025 11:42
Meirihluti íbúa ánægður með flutning stórtónleika á sunnudag Meirihluta þeirra sem tóku þátt í könnun um bæjarhátíðina Í túninu heima á vef Mosfellsbæjar töldu það góða breytingu að færa stórtónleika frá laugardagskvöldi yfir á sunnudagseftirmiðdegi. Alls töldu 64 prósent breytinguna mjög eða frekar góða og 27 prósent breytinguna frekar eða mjög slæma. Innlent 26.9.2025 11:37
Annar fulltrúa Framsóknar hættur í bæjarstjórn Kópavogs Bæjarstjórn Kópavogs féllst á beiðni Sigrúnar Huldu Jónsdóttur, bæjarfulltrúa Framsóknar, um varanlega lausn frá störfum út kjörtímabilið á fundi sínum á þriðjudag. Hún hefur starfað sem deildarstjóri leikskóladeildar Kópavogsbæjar undanfarin misseri. Innlent 26.9.2025 11:27
Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Mikið magn fíkniefnis greindist í blóði ungs ökumanns sem lést í árekstri tveggja fólksbifreiða á hringveginum við Hraunsnef í Borgarfirði í júní í fyrra. Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur fíkniefnaneyslu ökumannsins meginorsök slyssins. Innlent 26.9.2025 11:08
Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson voru dæmdir í sautján ára fangelsi og Matthías Björn Erlingssyni í fjórtán ára fangelsi fyrir að verða Hjörleifi Hauki Guðmundssyni að bana í Gufunesmálinu svokallaða. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands. Ekkju hins látna voru dæmdar ellefu milljónir króna í bætur og syni hans sex milljónir. Innlent 26.9.2025 11:02
Ekki búin að ákveða hvort þjóðaröryggisráð verði kallað saman Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún hyggist kalla saman þjóðaröryggisráð. Drónar hafa flogið ítrekað yfir flugvelli Danmerkur undanfarna daga. Innlent 26.9.2025 11:01
„Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Gífurlega mikið vatn er í Jökulsá í Lóni, eftir mikla rigningu á svæðinu, og hefur hringvegurinn farið í sundur vestur. Íbúi á svæðinu segist aldrei hafa séð eins mikið vatn í Jökulsá. Innlent 26.9.2025 10:03
Grindavíkurgersemin Birna Óladóttir fallin frá Birna Óladóttir húsmóðir er látinn 84 ára gömul. Birna var mikill Grindvíkingur eftir að hafa flust þangað sautján ára og vakti athygli í fjölmiðlum á miklum umbrotatímum í bæjarfélaginu þegar jarðskjálftar dundu á Grindvíkingum í Reykjaneseldum hinum síðari. Innlent 26.9.2025 09:57
Kristrún í pallborði með Starmer, Carney og Albanese Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er nú stödd á ráðstefnunni Global Progress Action Summit í Lundúnum, þar sem hún tekur þátt í pallborði ásamt Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, og Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu. Innlent 26.9.2025 09:46
Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Hringvegurinn við Jökulsá í Lóni rétt austan við Höfn er farinn í sundur vegna vatnavaxta. Um fimmtíu mmetra rof er á veginum og er óljóst er hvenær hægt verður að ljúka viðgerð á skemmdinni. Innlent 26.9.2025 07:23
Hugmyndir kynntar um „miðstöð jaðaríþrótta“ í Toppstöðinni Hugmyndir um framtíð Toppstöðvarinnar voru lagðar fram á fundi menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar fyrr í mánuðinum en þar stendur til að opna „miðstöð útivistar og jaðaríþrótta“. Innlent 26.9.2025 06:51
Telja dagana frá síðasta innbroti Íbúar Gamla Garðs, stúdentaíbúða á vegum Háskóla Íslands, hafa sett upp skilti þar sem taldir eru dagarnir síðan að síðast var brotist inn í húsið. Óprúttnir aðilar höfðu gert sig heimakomna þar, ítrekað stolið mat íbúanna og haft uppi ógnandi hegðun. Innlent 26.9.2025 06:46
Rannsaka líkamsárás og fjárkúgun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál þar sem líkamsárás og fjárkúgun koma við sögu. Óskað var aðstoðar lögreglu vegna málsins í gærkvöldi eða nótt. Innlent 26.9.2025 06:22