Heimsmarkmiðin

Hundruð milljóna kvenna eignast stærri fjölskyldur en þær hefðu kosið
Ákvörðunarrétturinn til þess að velja fjölda barna, hvenær þau fæðast og hversu langt líður á milli barneigna gæti styrkt efnahagslega og félagslega þróun í heiminum, segir í nýrri árlegri skýrslu Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA).

Tveir milljarðar jarðarbúa hafa enn ekki viðunandi aðgang að hreinu vatni
Um 29% íbúa heims hafa ekki aðgang að hreinu vatni, rúmlega tveir milljarðar jarðarbúa. Enn fleiri, eða 61% jarðarbúa, búa við ófullnægjandi salernisaðstöðu, eða 4,5 milljarðar manna. Skortur á hreinu vatni og viðunandi salernisaðstöðu er risavaxinn heilbrigðisvandi.

Sárafátækir færri en nokkru sinni fyrr í sögunni
Sameinuðu þjóðirnar hvetja framlagsríki til þess að auka samvinnu við sveitastjórnir í þróunarríkjum til þess að þær geti kynt undir hagvöxt og lyft milljónum íbúa upp úr fátækt. Í dag er alþjóðadagur baráttunnar um útrýmingu fátæktar.

Sárafátækir aldrei færri og aldrei fleiri nýtt hreina orku
Aldrei í sögunni hefur sárafátækt í heiminum mælst jafn lítil og síðasta ár. Flest bendir til þess að sárafátækir einskorðist í framtíðinni við einn heimshluta: sunnanverða Afríku.

Íbúar átakasvæða hafa ekki ráð á mat
WFP gefur í dag út öðru sinni svokallaða "Baunavísitölu“ um verð á einni máltíð í þróunarríkjum. Markmiðið er að draga upp fyrir neytendur í tekjuháum og iðnvæddum löndum mynd af því hversu stóran hluti daglauna þarf til þess að tryggja eina undirstöðumáltíð í fátækari ríkjum heims.

"Kynferðislegt ofbeldi er notað í átökum til að tortíma manneskjunni“
Staða mála í Sýrlandi, Jemen og Úkraínu, auk samstarfs Íslands og Rauða krossins, var til umræðu á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra og Yves Daccord framkvæmdastjóra Alþjóðaráðs Rauða krossins.

Samstarfssjóður við atvinnulífið um Heimsmarkmiðin settur á laggirnar
Utanríkisráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að nýjum reglum um styrkveitingar ráðuneytisins úr Samstarfssjóði við atvinnulífið um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Alþjóðabankinn hvetur til aukinnar fjárfestingar í menntun og heilsu
Mikilvægi mannauðs, nýsköpunar og tækniframfara voru meginstef á nýafstöðnum ársfundi Alþjóðabankans sem fram fór á Balí, Indónesíu.

Ákvörðun stjórnvalda um móttöku flóttafólks á næsta ári
Ríkisstjórnin tók í dag ákvörðun um móttöku allt að 75 flóttamanna á næsta ári, að stærstun hluta Sýrlendingum sem staddir eru í Líbanon en einnig hinsegin flóttamönnum og fjölskyldum þeirra sem nú eru í Kenía.

Mannauður og ný tækni umfjöllunarefni á ársfundum Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Ársfundir Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins standa nú yfir á Balí í Indónesíu. Eitt megin fundarefnið í ár er umfjöllun um það hvernig nýta megi mannauð og nýja tækni til framþróunar.

Ríki heims verða að binda enda á mismunun í garð stúlkna
„Ríki heims verða að grípa til árangursríkra aðgerða til að binda enda á mismunun og kynbundið ofbeldi í garð stúlka,“ segir í yfirlýsingu mannréttindasérfræðinga Sameinuðu þjóðanna, Alþjóðlegur dagur stúlkubarnsins í dag, 11. október.

Þrjú hundruð sóttu um hæli hér á landi fyrri helming ársins
Allt síðasta ár voru hælisleitendur á Íslandi rúmlega eitt þúsund. Tölfræðiskýrsla UNHCR fyrir Norður-Evrópu veitir upplýsingar um flóttafólk, hælisleitendur og ríkisfangslausa einstaklinga í þessum heimshluta.

Á bilinu 10-20% ungmenna í heiminum glíma við einhvers konar geðræna erfiðleika
"Hægt er að koma í veg fyrir eða lækna margs konar geðræna kvilla, sérstaklega ef fylgst er með andlegri heilsu frá blautu barnsbeini,“ segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.

„Friðarverðlaunin sigur fyrir allar konur sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi“
Denis Mukwege læknir frá Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og Nadia Murad úr minnihlutahópi Jasída í Írak hlutu friðarverðlaun Nóbels í ár. Þau eru bæði þekkt fyrir baráttu gegn kynferðisofbeldi í stríði.

Fertugasti árgangur Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna útskrifaður
Tuttugu og fjórir nemendur útskrifuðust úr Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi í liðinni viku, níu konur og fimmtán karlar, frá fjórtán löndum. Þetta er í fertugasta sinn sem skólinn útskrifar nemendur.

Um fimmtán þúsund börn hjálparþurfi í Palu að mati SOS Barnaþorpanna
SOS Barnaþorpin í Indónesíu hafa sent hóp sérfræðinga til borgarinnar Palu þar sem áætlað er að um fimmtán þúsund börn séu á vergangi og hjálparþurfi eftir flóðbylgjuna sem skall á borginni í lok september.

Kópavogsbær verði barnvænt sveitarfélag UNICEF
Kópavogsbær ætlar að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og stefnir að því að hljóta viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag UNICEF á Íslandi.

Rauði krossinn í viðbragðsstöðu vegna hamfaranna í Indónesíu
Að minnsta kosti 1200 eru látnir í Indónesíu eftir jarðskjálfta og tsunami flóðbylgju í kjölfarið, a.m.k. 800 eru slasaðir og meira en 160.000 hafa misst heimili sín. Rauði krossinn á svæðinu er í kapphlaupi við tímann.

Nýtt borðspil um Heimsmarkmiðin
Nýtt ókeypis borðspil um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna er nú komið á netið á íslensku. Nú er hægt að kynna sér markmiðin og fræða börn um sjálfbæra þróun á meðan spilað er skemmtilegt borðspil.

Kynjajafnrétti lykill að sjálfbærri þróun
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í nýliðinni viku. Mannréttindamál, sjálfbær þróun og stríð í Sýrlandi og Jemen voru á meðal þess sem ráðherra fjallaði um í ræðu sinni.

Mannréttindaráð SÞ: Hvatt til að ásökunum um þjóðarmorð verði vísað til dómstóla
39. fundarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf lauk í vikunni sem leið. Ísland tók þátt sem aðildarríki ráðsins í fyrsta skipti eftir að hafa verið kosið í ráðið í sérstökum aukakosningum í New York í sumar.

Aldrei séð skattpeningum mínum jafn vel varið
Elíza Gígja Ómarsdóttir, fimmtán ára reykvísk stúlka, speglar eigin tilveru við aðstæður tveggja unglingsstelpna í Úganda í heimildamynd sem unnið er að um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Fundur kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðabankanum
Fundur kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðabankanum var haldinn dagana 24. og 25. september í Reykjavík.

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hafið
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna var sett í dag í 73. sinn. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra var viðstaddur setningu þingsins.

Ebólufaraldur og vopnuð átök í Kongó kalla á stuðning frá Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi, með dyggum stuðningi utanríkisráðuneytisins, hefur ákveðið að senda tæpar 106 milljónir króna til mannúðarverkefna vegna ebólufaraldurs og vopnaðra átaka í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í Afríku.

Ísland í mannréttindaráðinu: Umbætur koma innan frá
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segist taka undir margt í gagnrýni Bandaríkjanna á mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna þótt Ísland hafi ákveðið að setjast í ráðið í þeirra stað.

Fjölmennasti hópurinn til þessa útskrifast hjá Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna
Á dögunum voru útskrifaðir 17 sérfræðingar, 10 konur og sjö karlar, eftir sex mánaða nám í Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Hópurinn er sá stærsti til þessa.

Meirihluti sýrlenskra flóttakvenna í Tyrklandi lifir langt undir fátæktarmörkum
Íris Björg Kristjánsdóttir, sérfræðingur á sviði mannréttinda, lét gera úttekt á stöðu flóttakvenna frá Sýrlandi í Tyrklandi svo hægt væri að mæta þörfum þeirra. Íris starfar hjá UN Women í Tyrklandi á vegum Utanríkisráðuneytisins.

Fyrsti veitingastaður í eigu flóttamanna í Eistlandi opnar í Tallinn
Nermiin er flóttamaður frá Sýrlandi. Hún opnaði nýverið veitingastaðinn Ali Baba í Tallinn í Eistlandi og sérhæfir sig í sýrlenskri og miðausturlenskri matargerð. Frásögn af vef Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Alþjóðabankinn: Sárafátækir hafa aldrei verið færri
Einn af hverjum tíu jarðarbúum býr við sárafátækt og hafa aldrei verið færri, samkvæmt nýjustu tölum Alþjóðabankans. Sárafátækum fækkar áfram en hægar en síðustu ár.