Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú færð kjörið tækifæri til að sýna væntumþykju þína í verki í dag. Einnig mætirðu góðvild frá öðrum og færð hjálp sem þú þarfnast.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Það er spenna í loftinu og það má lítið út af bera til að allt fari í bál og brand. Þegar uppi er staðið og málin skoðuð kemstu að því að um var að ræða storm í vatnsglasi.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Deilur í fjölskyldunni hafa mikil áhrif á þig. Deilurnar eru þó ekki eins alvarlegar og á horfðist og í kvöld verður allt fallið í ljúfa löð.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Áhersla verður á framtíðarplön en ekki það sem er nálægt í tíma. Ef þú hefur breytingar í huga er gott að skipuleggja þær.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú ert vinsæll um þessar mundir og kunningjar þínir og samstarfsmenn leita gjarnan til þín. Gættu þess samt sem áður að hafa tíma fyrir sjálfan þig.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Gættu vel að hvað þú segir, það gæti verið rekið ofan í þig síðar á neyðarlegan hátt. Eitthvað reynir verulega á þolinmæði þína.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Fréttir sem þér berast verða eins og krydd í tilveruna. Gættu þess þó að láta þær ekki trufla þig við skyldustörf þín. Ekki er víst að áætlun standist.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Náinn vinur þarf á þér að halda og þú getur hjálpað honum að leysa ákveðið vandamál ef þú aðeins sýnir honum athygli. Kvöldið verður rólegt.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú hefur mjög mikið að gera og hefur minni tíma fyrir sjálfan þig en þú hefur haft. Hafðu gætur á buddunni. Þú færð uppörvandi fréttir af vini þínum.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú gerðir réttast í því að vera viðbúinn breytingum og vera sveigjanlegur og opinn fyrir nýjum tækifærum. Óvænt þróun verður þér til góðs.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Fremur viðburðalítill dagur en þó berast þér góðar fréttir af gömlum vini. Leggðu þig fram um að halda friðinn á heimilinu.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú verður fyrir einhverri truflun í dag og hún raskar deginum aðeins. Það er aðeins tímabundið og þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Ef þú hyggur á breytingar í lífi þínu skaltu endilega drífa í þeim núna. Þú ert fullur orku og til í að leggja hart að þér.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þú átt góðan dag í vændum bæði heima og í vinnunni. Þú lýkur verkefni sem þú hefur verið að vinna að lengi og er því ástæða til að gera sér glaðan dag.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Núna er góður tími til að sýna öðrum hvað þú raunverulega getur, sérstaklega í vinnunni. Heimilislífið verður gott í dag.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Gættu þess að láta ekki yfirgangssama manneskju snúa á þig. Þú hefur átt í töluverðri baráttu undanfarið og verður að standa fast á þínu.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Einhver hefur mikil áhrif á þig þessa dagana og þú lætur viðkomandi ráðskast allt of mikið með þig. Ekki gera neitt gegn vilja þínum.

Menning