Frændinn sem braut á henni gengur enn laus Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 18. október 2026 09:00 Sigríður Sæunn Óskarsdóttir hefur undanfarin ár barist fyrir því að móðurbróðir hennar afpláni fangelsisdóm sem hann hlaut fyrir kynferðisbrot gegn henni á barns og unglingsárum. Vísir/Bjarni Þór „Ég er reið. Ég er sár. Og ég er búin að fá nóg af því að þolendur þurfi sífellt að berjast á meðan gerendur virðast geta haldið áfram með líf sitt. Þetta snýst ekki bara um mig. Þetta snýst um öll þau börn sem hafa verið svipt öryggi sínu, sakleysi og æsku,“ segir Sigríður Sæunn Óskarsdóttir.
Árið 2022 hlaut móðurbróðir Sigríðar fimm ára fangelsisdóm í Landsrétti fyrir að hafa beitt hana kynferðislegu ofbeldi, en brotin stóðu yfir í ellefu ár. Fjórum árum síðar hefur hann enn ekki afplánað dóminn og virðist una hag sínum vel í Svíþjóð. Sigríður og móðir hennar hafa ítrekað óskað eftir upplýsingum um stöðu málsins en hafa að sögn Sigríðar hvergi fengið fullnægjandi svör. „En þar lauk baráttunni ekki“ Sigríður ólst upp í Vestmannaeyjum þar sem móðurbróðir hennar var búsettur um árabil. Hann var náinn fjölskyldumeðlimur og mikill samgangur var milli heimilanna. Fram kemur í dómi Landsréttar að maðurinn braut ítrekað gegn Sigríði á árunum 2005 til 2014, frá því að hún var þriggja ára þar til hún var fjórtán ára. Brotin áttu sér meðal annars stað á heimili hennar, heimili mannsins og hjá ömmu hennar og afa. „Það tók mig ómældan styrk og hugrekki að stíga fram, segja frá og berjast fyrir réttlæti. Í fimm ár þurfti ég að ganga í gegnum dómskerfið. Fimm ár af bið, óvissu, sársauka og því að þurfa að rifja upp aftur og aftur það sem ég hefði aldrei átt að þurfa að upplifa,“ segir Sigríður í opinni færslu sem hún birti á Facebook á dögunum. Árið 2017 greindi Sigríður fjölskyldu sinni frá kynferðisofbeldinu. Hún hafði áður reynt að segja vinkonum sínum frá ofbeldinu, meðal annars árið 2015, en þá ekki treyst sér til að greina frá öllum málavöxtum. Nokkurra ára rannsókn Faðir hennar tilkynnti lögreglu um brotin þann 15. júní sama ár og í kjölfarið hófst rannsókn sem átti eftir að standa yfir í nokkur ár. Sigríður kveðst þakklát fyrir þann stuðning sem hún hefur fengið frá fjölskyldu sinni eftir að hún sagði frá. Flestir í fjölskyldunni hafi staðið með henni og margir slitið samskiptum við móðurbróður hennar eftir að málið kom upp. Það hafi þó verið mikið áfall fyrir fjölskylduna þegar málið kom upp, sérstaklega móður hennar sem hafði verið náin bróður sínum. „Þetta var auðvitað þvílíkt áfall fyrir mömmu líka. Hún náttúrulega hringdi í hann þegar ég sagði henni frá þessu. Hann sagði við hana: „Hún er bara að ljúga, hún er bara að ljúga, Inna.“ En mamma hefði aldrei tekið hans orð fram yfir mín. Hún er minn helsti stuðningur, hún er kletturinn minn í þessu öllu.“ Sigríður sagði fjölskyldu sinni frá ofbeldinu árið 2017 og hófst þá löng og erfið vegferð í gegnum réttarkerfið. Það tók tæp fimm ár frá kæru þar til endanleg niðurstaða fékkst í málinu.Vísir/Bjarni Þór Rannsókninni lauk með útgáfu ákæru í september árið 2020 og málið fór fyrir Héraðsdóm Suðurlands. Fjölmörg vitni komu fyrir dóminn og lýstu meðal annars breytingum á hegðun Sigríðar og líðan á unglingsárunum. Þá lágu fyrir vottorð sálfræðinga sem höfðu sinnt henni vegna afleiðinga ofbeldisins. Maðurinn neitaði sök en dómurinn taldi sannað að hann hefði gerst sekur um þau brot sem honum voru gefin að sök. Þann 29. apríl 2021 féll síðan dómur yfir manninum en þá voru liðin tæp fjögur ár frá því að málið var tilkynnt lögreglu. „Hann var dæmdur í sex ára fangelsi. En þar lauk baráttunni ekki. Hann áfrýjaði dómnum og þá fór enn eitt árið í endalausa bið og óvissu,“ segir Sigríður. Fór úr landi skömmu eftir að hún sagði frá Þegar Sigríður greindi frá kynferðisofbeldinu árið 2017 var móðurbróðir hennar enn búsettur í Vestmannaeyjum. Hann fór að hennar sögn úr landi um tveimur vikum síðar og settist að lokum að í Svíþjóð. „Hann sagði vinnuveitanda sínum að hann ætlaði í vikufrí en fór fyrst til Filippseyja, þaðan sem eiginkona hans er.“ Sigríður telur að brottför mannsins af landinu hafi tengst því að ásakanirnar voru komnar fram. Hann mætti ekki til landsins þegar málið var tekið fyrir í héraðsdómi og í Landsrétti, heldur gaf skýrslu í gegnum fjarfundarbúnað með hljóði og mynd. Samkvæmt upplýsingum úr Þjóðskrá, sem raktar eru í dómnum, hafði hann verið með skráð lögheimili í Svíþjóð frá 27. september 2018. Hann hafði því flutt lögheimili sitt þangað áður en ákæra var gefin út og málið fór fyrir dómstóla. Sigríður telur að aðstæður vegna heimsfaraldurs kórónuveiru hafi auðveldað manninum að taka þátt í réttarhöldunum án þess að þurfa að ferðast til Íslands. Hún er jafnframt sannfærð um að hann hefði ekki viljað snúa aftur til Vestmannaeyja eftir að málið komst upp. Refsingin milduð Þann 8. apríl árið 2022 staðfesti Landsréttur sakfellinguna yfir manninum en mildaði refsinguna úr sex árum í fimm. Sú niðurstaða olli Sigríði vonbrigðum. Í dómi Landsréttar kemur fram að framburður Sigríðar hafi verið metinn mjög trúverðugur og fengið stoð í ýmsum óbeinum sönnunargögnum, einkum framburði vitna og gögnum frá sálfræðingum. Að sama skapi voru atriði í framburði mannsins sem drógu úr trúverðugleika hans. Taldi rétturinn hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hefði gerst sekur um þá háttsemi sem hann var ákærður fyrir. Við ákvörðun refsingarinnar leit Landsréttur meðal annars til þess að óvissa væri um nákvæman fjölda brotanna, að sakfellingin tæki til skemmra tímabils en ákæran og að maðurinn hefði ekki áður hlotið refsingu. Þá var tekið tillit til óútskýrðra tafa á rannsókn málsins sem honum yrði ekki kennt um. Landsréttur lagði jafnframt áherslu á alvarleika brotanna; þau hefðu verið gróf, ítrekuð og framin á löngu tímabili, auk þess sem maðurinn hefði haft algjöra yfirburðastöðu gagnvart Sigríði. Brotin hefðu átt sér stað á heimili þar sem hún átti að geta fundið öryggi og skjól og valdið henni miklu tjóni. „Það var talað um að þetta eina ár, sem leið þarna á milli, hefði tekið svo mikið á hann og verið honum svo erfitt,“ segir Sigríður en hún upplifði lækkun refsingarinnar sem mikið óréttlæti og hefur sérstaklega setið í henni að tekið hafi verið tillit til rannsóknartafa við refsiákvörðunina. Auk fangelsisdómsins var maðurinn dæmdur til að greiða henni 2,5 milljónir króna í miskabætur ásamt vöxtum. Sigríður gagnrýnir harðlega að brotaþolar þurfi sjálfir að hafa frumkvæði að því að afla upplýsinga um afplánun dæmdra brotamanna. Hún telur óásættanlegt að yfirvöld veiti ekki skýrar upplýsingar um stöðu málsins.Vísir/Bjarni Þór „Svo bíðum við bara“ Eftir að Landsréttur kvað upp dóminn tók við nýtt tímabil hjá Sigríði. Réttarhöldunum var lokið og nú beið hún þess að fá upplýsingar um hvenær maðurinn myndi hefja afplánun. Þegar hún leitaði til lögmanns síns hafi henni í meginatriðum verið sagt að bíða; ekki lægi fyrir hvenær maðurinn yrði boðaður til afplánunar eða hvernig staðið yrði að fullnustu dómsins þar sem hann væri búsettur erlendis. „Svo bíðum við bara og bíðum og bíðum áfram.“ Hún og móðir hennar hafi haldið áfram að leita upplýsinga eftir því sem tíminn leið. Þær hafi meðal annars sent fyrirspurnir til Fangelsismálastofnunar og leitað aðstoðar lögmanns Sigríðar, sem hafi einnig reynt að komast að því hvað væri að gerast með afplánunina. Að sögn Sigríðar hafi lögmaðurinn ekki fengið nein afgerandi svör og ætlað að hafa samband ef eitthvað nýtt kæmi fram. Sigríður kveðst ekki skilja hvers vegna búseta mannsins í Svíþjóð virðist gera fullnustu dómsins svo flókna. Löndin eigi samstarf um afhendingu dæmdra manna og því eigi að hennar mati að vera hægt að finna lausn á málinu. Þannig að ég skil ekki alveg hvað málið er. Hún og móðir hennar hafi síðast sent fyrirspurnir til Fangelsismálastofnunar í júní síðastliðnum. Þær hafi báðar sent erindi á svipuðum tíma en engin svör fengið. Í upphafi hafi þær stundum fengið þau svör frá lögreglu og lögmanni að engar upplýsingar lægju fyrir um afplánunina. Samskiptin við aðra aðila hafi hins vegar verið mun erfiðari. „Þar er bara eina svarið: „Við vitum þetta ekki.“ Þegar við förum til lögreglunnar eða til lögfræðingsins fáum við einhver svör. En þegar við förum eitthvað lengra þá erum við bara hunsaðar. Það var bara þarna í byrjun sem við fengum þessi „við vitum það ekki“ svör. En síðastliðin ár höfum við ekki einu sinni fengið viðbrögð.“ Þessi samskipti urðu að lokum til þess að Sigríður ákvað að vekja opinbera athygli á málinu. Hún segir að hún hafi lengi velt þeim möguleika fyrir sér en vonað að hægt yrði að fá skýringar eftir öðrum leiðum. „Og eins og þetta sé ekki nógu mikið óréttlæti þá höfum bæði ég og mamma mín reynt að fá svör, reynt að fá einhverjar skýringar á því hvernig dæmdur kynferðisbrotamaður getur gengið laus árum saman án þess að afplána fangelsisdóm sinn. Og hvað höfum við fengið til baka? Ekkert. Ekki einu sinni svar. Hvernig getur það verið ásættanlegt?“ Barðist við ópíóíðafíkn í þrjú ár Kynferðisofbeldið hefur haft langvarandi áhrif á líf Sigríðar. Þegar hún var á unglingsaldri fór andlegri líðan hennar að hraka og átti hún meðal annars við kvíða, depurð og svefnerfiðleika að stríða. Skólagangan varð einnig erfiðari og samkvæmt gögnum sem lögð voru fram við dómsmeðferðina versnaði bæði námsárangur hennar og skólasókn verulega. Í sálfræðivottorðum sem lögð voru fram í málinu kom fram að Sigríður hefði greinst með áfallastreituröskun sem rakin var til kynferðisofbeldisins. Hún hafði glímt við endurteknar minningar um brotin, martraðir og mikla vanlíðan. Þá hafði hún þurft að leita sér læknisaðstoðar vegna kvíða og depurðar og verið á þunglyndislyfjum um árabil. Áhrifin hafa fylgt henni fram á fullorðinsárin. „Ég er enn þá að vinna úr þessu,“ segir Sigríður þegar talið berst að afleiðingum ofbeldisins. Hún glímdi að eigin sögn við ópíóíðafíkn í tæp þrjú ár en er nú á batavegi. Í dag er hún gift og þau hjónin eiga von á sínu fyrsta barni, lítilli stelpu, í lok ársins. Hún er einnig komin aftur í nám og horfir til framtíðar með öðrum hætti en áður. Meðgangan hefur orðið henni hvatning til að halda áfram að vinna úr því sem hún hefur gengið í gegnum. „Ég er komin með meiri vilja til að halda áfram og vinna í mínu máli.“ Með áhyggjur af öðrum börnum Óvissan um afplánunina hefur jafnframt haft áhrif á Sigríði. Hún hefur áhyggjur af því að maðurinn sé enn frjáls ferða sinna þrátt fyrir sakfellinguna og að fólk í Svíþjóð viti ekki endilega af brotaferli hans á Íslandi. Að hennar sögn á maðurinn fimm börn og hefur eignast tvö þeirra eftir að hann flutti frá Íslandi. Hún óttast að önnur börn geti komið inn á heimili hans án þess að foreldrar þeirra viti af fangelsisdómnum. „Það er eiginlega bara hræðilegt. Ekki nóg með það að ég hafi þurft að standa í skýrslutökum, endalausum skýrslutökum í sex ár, þá fæ ég aldrei þessa „lokun“ á málið af því að hann er ennþá laus. Og ég er alltaf að hugsa hvað hann er að gera með öðrum börnum. Það á náttúrulega ekkert barn að þurfa að lenda í þessu.“ Sigríður leggur áherslu á að barátta hennar snúist ekki eingöngu um hennar eigin reynslu heldur einnig um réttindi annarra brotaþola. Hún vill að dómar vegna kynferðisbrota hafi raunverulegar afleiðingar og að þolendur þurfi ekki að berjast árum saman fyrir því að þeim sé framfylgt.Vísir/Bjarni Þór Ætlar ekki sætta sig við þögnina Sigríður hafði lengi velt því fyrir sér hvort hún ætti að fjalla opinberlega um málið. Í Vestmannaeyjum þekkist fólk og hún vissi að Facebook-færsla um svo persónulega reynslu myndi vekja athygli. Hún hafði ekki viljað láta kynferðisofbeldið skilgreina sig gagnvart öðrum en eftir áralanga bið taldi hún mikilvægt að láta í sér heyra. Hún telur ekki eðlilegt að brotaþolar þurfi sjálfir að ganga á eftir upplýsingum um fullnustu dóma árum saman eftir að niðurstaða dómstólanna liggur fyrir. Eftir margra ára rannsókn, réttarhöld og baráttu við afleiðingar kynferðisofbeldisins vill hún geta treyst því að fangelsisdómurinn hafi raunverulegar afleiðingar. Í lok Facebook-færslunnar eru skilaboð hennar skýr. „Ég er ekki að biðja um neina sérstaka meðferð. Ég er að biðja um að fangelsisdómi sé framfylgt. Að einhver axli ábyrgð. Að einhver svari okkur. Þögnin er ekki svar. Og hún er svo sannarlega ekki réttlæti.“ Vísir hefur sent fyrirspurn til Fangelsismálastofnunar, ríkissaksóknara og lögreglu vegna málsins og óskað eftir upplýsingum um fullnustu dómsins. Svör höfðu ekki borist þegar þetta var skrifað en greint verður frá stöðu málsins þegar svör berast. Ekki liggur því fyrir hvort íslensk yfirvöld hafi óskað eftir afhendingu mannsins frá Svíþjóð, hvort sænsk yfirvöld hafi fjallað um slíka beiðni eða hvort önnur úrræði til fullnustu refsingarinnar hafi verið skoðuð.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Vestmannaeyjar Mest lesið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fleiri fréttir „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Sjá meira