Neytendur

Löggan bankaði upp á á skír­dag

Sífleiri versla áfengi hjá netverslunum á Akureyri eftir að ÁTVR færði vínbúð bæjarins úr miðbænum á Norðurtorg í Þorpinu. Á skírdag lokaði lögreglan öllum afhendingarstöðum áfengis í bænum og kallar eigandi netverslunar eftir skýrari lagaramma. 

Neytendur

„Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“

Neytendasamtökin vöktu athygli á erfiðri stöðu fyrir viðgerðarþjónustu hér á landi í ályktun í gær. Þau segja þjónustuna í hættu og kalla eftir því að stjórnvöld felli niður virðisaukaskatt á viðgerðum. 

Neytendur

Boða lækkanir í Bónus og Hag­kaupum með nýju sam­starfi

Hagar eru komnir í innkaupasasamstarf við danska smásölufyrirtækið Salling Group, sem er stærsti aðilinn á dagvörumarkaði í Danmörku. Samstarfið með Salling Group býður upp á fjölda tækifæra og gerir Högum kleift að bjóða landsmönnum upp á lægra verð, aukið vöruúrval, og enn betri gæði en fyrr í verslunum félagsins, að því er fullyrt í tilkynningu frá félaginu.

Neytendur

Skatta­lækkanir vinni bein­línis gegn Seðla­bankanum

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að margt komi til greina til að draga úr verðbólgu, en ekki skattalækkanir; þær „vinni beinlínis gegn Seðlabankanum“. Hann telur að ríkið geti ekki eitt og sér lækkað verðbólgu í landinu. „Þjóðarsátt væri góð,“ segir hann.

Neytendur

Ekki hægt að fá bíla­stæði án bókunar

Frá og með deginum í dag og fram yfir páska verður aðeins hægt að leggja bílum í almennum stæðum, á P3, við Keflavíkurflugvöll ef búið er að bóka stæði fyrir fram. Ekki er hægt að aka inn á bílastæðið nema bókun sé til staðar. 

Neytendur

Inn­kalla hafra­graut vegna mögu­legs að­skota­hlutar

Karl K Karlsson ehf innkallar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) Moma hafragraut. Í tilkynningu segir að ástæða innköllunar sé grunur um að aðskotahlutur geti fundist í vörunni.

Neytendur

Bankarnir byrjaðir að hækka vexti

Arion banki og Íslandsbanki hafa boðað vaxtabreytingar í kjölfar nýlegrar vaxtahækkunar Seðlabankans. Íbúðalánavextir hækka um allt 0,25 prósentustig og innlánsvextir um 0,35. Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði meginvexti bankans um 0,25 prósentur á miðvikudag og standa þeir í 7,50%.

Neytendur

Ó­vænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum

Jón Jóhannsson, eigandi ísgerðarinnar Skúbb, segir það nokkuð óvæntar fréttir að mjólk og rjómi séu ekki meðal helstu innihaldsefna í rjómaís frá Emmessís og mjúkís frá Kjörís. Hann segir yfirleitt ekki fleiri en fimm innihaldsefni í ísnum sem hann framleiðir og að það sé alltaf mjólk í grunninn.

Neytendur

Fram­leiðslu­stöðvunin högg fyrir fyrir­tækið og við­skipta­vini

Framleiðsluvélin sem notuð er til að búa til hafravörur Veru Örnudóttur bilaði nýlega og ekki verður hægt að framleiða meira af veganskyrinu eða öðrum hafravörum fyrr en í fyrsta lagi í maí. Arna María Hálfdánardóttir, markaðsstjóri fyrirtækisins, segir það högg og vont fyrir bæði fyrirtækið og viðskiptavini.

Neytendur

„Það er auka­at­riði í þessu hvað ég var lengi þarna“

Fyrirtækið Green Parking segir rangfærslur hafa komið fram í umfjöllun um ökumann sem rukkaður var um vangreiðslugjald þegar hann lagði bíl við Domino‘s í Nóatúni í Reykjavík. Ekki sé rétt að fólk þurfi að vera með app í síma til að geta lagt þar frítt í 45 mínútur.

Neytendur

„Heims­markaðs­verð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð”

Helgi Vilhjálmsson, forstjóri Góu, segir að þegar horft sé til verðs í verslunum megi sjá að fleiri þættir ráði verðlagningu en aðeins heimsmarkaðsverð á kakói verði á súkkulaði. Heimsmarkaðsverð á kakói hrundi í síðasta mánuði og Helgi segir fyrirtækið tilbúið að taka hluta af sveiflum á sig.

Neytendur

Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði

Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavíkur, á ekki von á því að breyting innviðaráðherra á stöðvarskyldu leigubílstjóra verði til þess að bílstjórar og farþegar upplifi meira öryggi. Akstur með mæli skapi mikið óöryggi meðal beggja og lagabreyting um stöðvarskyldu breyti því ekki.

Neytendur

Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó

Neytendastofa hefur nú til skoðunar tíu ábendingar vegna ofrukkunar fargjalda hjá Strætó. Notendur Android-síma hafa lent í því að vera rukkaðir um fargjald þó svo að þeir séu með áskriftarkort í símanum. Jóhannes Rúnar Svavarsson framkvæmdastjóri Strætó segir einhverja tugi hafa tilkynnt slíka rukkun til Strætó og þær hafi allar verið endurgreiddar.

Neytendur

Sönnuðu ekki full­yrðingar um lækninga­mátt og fá háa sekt

ST. Import ehf., sem rekur vefverslunina Snjalltæki.store, hefur verið sektað um tvær milljónir króna fyrir fjölda brota á ýmsum lögum um neytendavernd, meðal annars vegna fullyrðinga um meintan lækningamátt ýmissa vara. Vörurnar voru meðal annars sagðar geta komið í veg fyrir hárlos, losað fólk við appelsínuhúð og linað verki.

Neytendur

Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi aug­lýsinga

Neytendastofa hefur sektað Norðursiglingu ehf. um eina og hálfa milljón króna fyrir að auglýsa umhverfisvænar hvalaskoðanir með óskýrum hætti. Fullyrðingar um umhverfisáhrif fyrirtækisins þyrftu að vera sannreynanlegar. Norðursiglingum hefur verið bannað að nota fullyrðingar um umhverfisvænar, hljóðlausar og kolefnislausar hvalaskoðunarferðir.

Neytendur