Neytendur

Bensínlítrinn hefur hækkað á ný

Lovísa Arnardóttir skrifar
Bensínið hefur ekki hækkað samkvæmt gasvaktinni á Costco og er því enn ódýrast þar.
Bensínið hefur ekki hækkað samkvæmt gasvaktinni á Costco og er því enn ódýrast þar. Vísir/Vilhelm

Bensín hefur almennt hækkað um 23 til 24 krónur lítrinn frá því í gær á dælu en á miðnætti rann út tímabundin heimild til að lækka virðisauka á bensín og dísil. Lítrinn af dísil hefur hækkað um 27 krónur. 

Á síðunni gasvaktin.is, sem sækir verð á eldsneyti hjá flestum olíufélögum, mátti eftir virðisaukaskattslækkunina sjá að verð hefði lækkað eftir virðisaukaskattsbreytinguna um 26 til 27 krónur lítrinn á bensíni og dísil um 30 til 32 krónur. Sú hækkun virðist nú hafa skilað sér til baka.

Samkvæmt síðunni er bensínið enn ódýrast hjá Costco, en þar þarf meðlimakort til að versla. Athygli vekur að hjá þeim hefur bensínlítrinn ekki hækkað frá því í gær, hann er enn skráður á 191,1 krónu eins og í gær.

Lítrinn var í gær annars ódýrastur hjá Orkunni á 201 krónu. Í dag er hann á 224,7 krónur. Hjá Atlantsolíu var hann í gær á 201,2 krónur en er nú á 224,8 krónur. Hjá ÓB var lítrinn í gær á 201,3 krónur en er nú á 224,9 krónur. Hjá N1 var lítrinn í gær víða á 202 krónur en er nú á um 225,6 krónur.

Verðið er annað ef skoðað er á landsbyggðinni. Til dæmis var lítrinn í gær á 216 krónur hjá Orkunni í Stykkishólmi og á 225,3 hjá ÓB á Ísafirði. Í dag er hann, til dæmis, á 242,5 hjá Orkunni í Reykjanesbæ og 252,3 hjá Olís í Borgarnesi.

27 krónu hækkun

Lítrinn af dísil er ódýrastur hjá Costco á 224,3 krónur og hefur ekki hækkað samkvæmt síðunni frá því í gær. Hann var svo ódýrastur í gær á 234,3 krónur hjá Orkunni en er nú á 267,1 krónu ódýrastur. Lítrinn var í gær á 234,4 hjá Atlantsolíu en er nú á 261,9 krónur og hefur þannig hækkað um 27,5 krónur.

Formaður Neytendasamtakanna ræddi hækkunina í kvöldfréttatíma Sýnar í gær þar sem hann sagði samtökin, ásamt fleirum, ætla að fylgjast með því að hækkunin yrði ekki meiri en sem nemur virðisaukanum. Viðtalið er hægt að horfa á að neðan.

Virðisaukaskatturinn var í maí lækkaður úr 24 prósentum í 11 prósent út sumarið eða til 31. ágúst samkvæmt tímabundinni heimild sem gefin var í lögum sem samþykkt voru á Alþingi í maí.

Samkeppniseftirlitinu var í kjölfarið falið að fylgjast með því að lækkunin skilaði sér að fullu til neytenda. Í umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins, sem gefið var út í byrjun júlí, kom fram að ekki væri hægt að fullyrða að virðisaukaskattslækkun eldsneytis hefði í öllum tilvikum skilað sér að fullu í endanlegu útsöluverði. Þar kom einnig fram að ýmsum spurningum væri enn ósvarað. Einhver olíufélög hækkuðu verðið dagana fyrir gildistöku skattalækkunarinnar.


Tengdar fréttir

„Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“

Formaður Neytendasamtakanna segist ætla að fylgjast grannt með hækkunum á bensínverði á morgun. Stjórnvöld eigi ekki „að pissa í skóinn“ heldur bjóða upp á varanlegar aðgerðir gegn verðbólgu.

Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir vaxtahækkun Seðlabankans vonbrigði. Hún viðurkennir að hækkanir opinberra gjalda hafi haft áhrif á verðbólgu en segir þær ekki óvenjumiklar í sögulegu samhengi. Hún vísar gagnrýni vegna fjölgunar opinberra starfsmanna til fyrirhugaðs aðhalds í ríkisfjármálum.

Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt

Olíuverð hækkaði skarpt í morgun í skugga vaxandi spennu í Miðausturlöndum. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda hefur áhyggjur af þróuninni og höfðar til ábyrgðar olíufélaga. Íslenskir neytendur séu nú þegar að greiða óeðlilega hátt verð fyrir bensínlítrann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×