Viðskipti erlent
166 167 168 169 170 171 172 173 174 … 334 ›
Meðstofnandi Facebook losar sig við hlutabréf Dustin Moskovitz, meðstofnandi Facebook og fyrrverandi herbergisfélagi Mark Zuckerberg, seldi í dag 450 þúsund bréf í samskiptamiðlinum. Moskovitz fékk 8.7 milljónir dollara í sinn hlut fyrir bréfin eða það sem nemur tæplega 1.1 milljarði íslenskra króna. Viðskipti erlent 30.8.2012 16:18
Antony Jenkins ráðinn forstjóri Barclays Antony Jenkins hefur verið ráðinn nýr forstjóri breska bankans Barclays. Bob Daimond, fyrrum forstjóri bankans, sagði starfi sínu lausu eftir að bankinn viðurkenndi stórfelld lögbrot sem snéru að fölsun vaxtaálags á skuldir bankans. Bankinn greiddi 290 milljónir punda, tæplega 56 milljarða króna, í sekt til breska fjármálaeftirlitsins vegna málsins. Viðskipti erlent 30.8.2012 13:45
Sony reynir á ný við spjaldtölvumarkaðinn Tækniráðstefnan IFA í Berlín stendur nú sem hæst. Raftækjaframleiðandinn Sony kynnti í gær nýja vörulínu en þar á meðal er vatnsheld spjaldtölva og þrír spánýir snjallsímar. Viðskipti erlent 30.8.2012 11:57
Samsung gefur ekkert eftir - kynnir nýja vörulínu Suður-Kóreski raftækjaframleiðandinn Samsung kynnti nýjustu vörulínu sína á IFA tækniráðstefnunni í Berlín í gær. Enginn uppgjafartónn er í Samsung, þrátt fyrir slæma niðurstöðu í dómsmáli gegn Apple á dögunum. Viðskipti erlent 30.8.2012 11:02
Obama einblínir á samskiptamiðla - heimsótti Reddit Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sat óvænt fyrir svörum á vefsíðunni Reddit í gær. Nokkur þúsund spurninga bárust frá notendum síðunnar en forsetinn sá sér ekki annað fært en að svara aðeins tíu af þeim. Viðskipti erlent 30.8.2012 10:36
Stefnir í mesta hagnað bandarískra bænda í sögunni Allt útlit er fyrir að hreinn hagnaður hjá bandariskum bændum í ár verði sá mesti í sögunni. Og það þrátt fyrir uppskerubrest í nokkrum ríkjum landsins vegna mikilla þurrka í vor og sumar. Viðskipti erlent 30.8.2012 06:34
Eyjafjallajökull? - Google skilur nú íslensku Íslensku hefur nú verið bætt við raddleit tæknirisans Google. Háskólinn í Reykjavík og Máltæknisetur hafa unnið að verkefninu síðustu ár og það í samstarfi við Google. Notendur geta nú nýtt sér þessa þjónustu. Trausti Kristjánsson, athafnarmaður og starfsmaður Google, segir tæknina bjóða upp á margskonar möguleika. Viðskipti erlent 29.8.2012 13:36
Lögbannskrafa á hendur Samsung tekin fyrir í desember Krafa Apple, um að nokkrir snjallsímar raftækjafyrirtækisins Samsung verði teknir af markaði í Bandaríkjunum, verður tekin fyrir af dómstólum í desember á þessu ári. Upphaflega var áætlað að krafan yrði tekin fyrir í næsta mánuði. Viðskipti erlent 29.8.2012 12:30
Velgengni Amazon nær nýjum hæðum Vefverslunarrisinn Amazon tilkynnti fyrr í vikunni að rafbækur sem einskorðaðar eru við Kindle-lesbrettið hafa verið keyptar, halað niður og lánað rúmlega hundrað milljón sinnum. Rétt rúmlega 180 þúsund rafbækur eru á bókaskrá Amazon. Viðskipti erlent 29.8.2012 11:31
Repúblikanar skoða gullfót undir dalinn Repúblikanaflokkurinn, annar af stóru flokkunum tveimur í Bandaríkjunum, hyggst kalla eftir því í stefnuskrá sinni fyrir forsetakosningarnar í haust að stofnuð verði nefnd til að skoða tengingu Bandaríkjadals við gullfót. Viðskipti erlent 29.8.2012 09:00
Samkomulag um sparnaðaraðgerðir í Grikklandi Grísku stjórnarflokkarnir hafa náð samkomulagi um víðtækar sparnaðaraðgerðir í ríkisfjármálum landsins en þessar aðgerðir eru skilyrði þess að landið fái áframhaldandi neyðaraðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu. Viðskipti erlent 29.8.2012 06:56
Sögufræg Íslendingakrá í Kaupmannahöfn berst í bökkum Hin sögufræga krá Hviids Vinstue við Kongens Nytorv í Kaupmannahöfn berst nú í bökkum og framtíð hennar er óljós. Viðskipti erlent 28.8.2012 10:36
Slagurinn harðnar - Apple krefst lögbanns á Samsung síma Fjarskipta- og hugbúnaðarrisinn Apple hefur krafist lögbanns á sölu á Samsung símum, en krafan var lögð fram í Kaliforníu, þar sem höfuðstöðvar Apple eru, seinni partinn í gær. Krafan byggir á niðurstöðu dómstóla í Bandaríkjunum um að Samsung hafi brotið gegn Apple með því að nýta sér höfundarréttarvarinn hugbúnað fyrirtækisins. Var Samsung gert að greiða einn milljarða dala, jafnvirði um 120 milljarða króna, í sekt vegna málsins. Viðskipti erlent 28.8.2012 09:35
Verkfall boðað sem lamar starfsemi Lufthansa Allar líkur eru á að starfsemi þýska flugfélagsins Lufthansa, sem er það stærsta í Evrópu, muni lamast á næstunni þar sem verkfall um 19.000 flugliða er framundan hjá félaginu. Viðskipti erlent 28.8.2012 09:31
Fjölmiðlageirinn að breytast hratt Tækniframfarir hafa opnað fyrir nýja möguleika á miðlun efnis með ýmsum hætti. Sérstaklega er það ör útbreiðsla snjallsíma og spjaldtölva sem er að valda miklum breytingum. Viðskipti erlent 28.8.2012 08:58
Forsvarsmenn Samsung ætla að grípa til varna Forsvarsmenn tæknirisans Samsung ætla að grípa til varna og gera "allt sem hægt er til þess að verja fyrirtækið“, að því er segir í minnisblaði sem stjórn Samsung sendi starfsmönnum fyrirtækisins fyrr í dag. Viðskipti erlent 27.8.2012 14:07
Allt fellur með Norðmönnum - finna enn meira af olíu Norska olíufyrirtækið Statoil, þar sem norska ríkið á tæplega 70 prósent eignarhlut, staðfesti í morgun að félagið hefði fundið vinnanlega olíu á svokölluðu Geitungen-svæði, sem er nærri Johan Sverdrup-svæðinu í Norðursjó. Viðskipti erlent 27.8.2012 10:27
Aukinn áhugi á Surface eftir sigur Apple Talið er að niðurstaðan í dómsmáli Apple gegn suður-kóreska raftækjaframleiðandanum Samsung muni greiða veginn fyrir Microsoft. Tæknirisinn hefur brátt inngöngu sína inn á spjaldtölvumarkaðinn. Viðskipti erlent 27.8.2012 10:26
Hlutabréf í Samsung falla í verði Hlutabréf í suður-kóreska fyrirtækinu Samsung, sem sektað var um einn milljarð dala, liðlega 120 milljarða króna, fyrir að nýta sér höfundarréttarvarinn hugbúnað Apple í Galaxy-símum fyrirtækisins, féllu um sjö prósent í fyrstu viðskiptum þegar markaðir opnuðu í Asíu í morgun. Viðskipti erlent 27.8.2012 09:09
Nýjar höfuðstöðvar Facebook slá öllu við Facebook heldur áfram að vaxa, en í þetta sinn eru það híbýli fyrirtækisins sem stækka. Nýverið tilkynnti fyrirtækið að stjörnu-arkitektinn Frank Gehry myndi hanna nýjar höfuðstöðvar Facebook ætlaðar fyrir 3.400 starfsmenn. Viðskipti erlent 26.8.2012 00:01
Samsung ætlar að áfrýja Samsung mun áfrýja dómnum frá því í gær þar sem fyrirtækið var dæmt til að greiða tölvurisanum Apple einn milljarð bandaríkjadala, eða 120 milljarða íslenskra króna, í skaðabætur fyrir að hafa rænt hugmyndum af fyrirtækinu. Viðskipti erlent 25.8.2012 18:35
Samsung þarf að borga Apple 120 milljarða Raftækjarisinn Samsung var í gærkvöldi dæmdur af bandarískum dómsstól til þess að borga tölvurisanum Apple einn milljarð bandaríkjadala, eða sem nemur 120 milljörðum íslenskra króna í skaðabætur fyrir að brot á hugverkarétti. Viðskipti erlent 25.8.2012 10:30
Kaup Facebook á Instagram staðfest Alríkisráð viðskiptamála í Bandaríkjunum hefur samþykkt kaup Facebook á smáforritinu Instagram. Tilkynnt var um kaupin fyrir rúmlega fjórum mánuðum og var kaupverðið metið á einn milljarð dala. Nú er hins vegar ljóst að upphæðin er mun minni eða 747 milljónir dollara, eða það sem nemur 89 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti erlent 23.8.2012 13:30
Færeyingar ætla sér umskipunarhöfnina Færeyskir ráðamenn vinna nú ötullega að því að gera Færeyjar að umskipunarhöfn vegna siglinga um Norðurpólinn og er búist við að málið verði rætt við kínverska sendiherrann í Danmörku, sem nú er í heimsókn í Færeyjum. Lögmaður Færeyja, Kaj Leo Johannesen, fjallaði sérstaklega um málið í ræðu á Ólafsvökunni, þjóðhátíð Færeyinga, í síðasta mánuði, og kom þar glöggt fram að hann sér fram á mikil tækifæri fyrir Færeyjar þegar siglingaleiðin opnast yfir Norðurpólinn. Viðskipti erlent 23.8.2012 12:15
Ferðamannaiðnaður á Spáni í blóma Ferðamannaiðnaðurinn blómstrar á Spáni en aldrei hafa jafn margir ferðamenn sótt landið heim og í síðasta mánuði. Mesta aukningin er meðal þýskra ferðamanna. Ferðamannaheimsóknum fjölgar um 4,4% milli ára en alls komu 7,7 milljónir ferðamanna til Spánar í júlí. Ferðamannaiðnaðurinn er ein mikilvægasta atvinnugreinin í landinu, en 10% af vergri landsframleiðslu kemur frá greininni. Viðskipti erlent 22.8.2012 14:04
Egyptaland fer fram á lán frá AGS Mohamed Mursi, forseti Egyptalands, hefur beðið Alþjóða gjaldeyrissjóðinn um aðstoð. Forstjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins greindi frá þessu að loknum fundi með forsetanum í Kaíró í dag. Viðskipti erlent 22.8.2012 13:59
Royal Bank of Scotland líka til rannsóknar Bandarísk yfirvöld rannsaka nú hvort Royal Bank of Scotland hafi brotið viðskiptabann gegn Íran. Viðskipti erlent 22.8.2012 09:36
Finnar í sóknarhug Þrátt fyrir erfiðleika í Evrópu hafa Finnar náð að halda lánshæfismati sínu í góðu, en ríkissjóður landsins hefur enn AAA-lánshæfiseinkunn frá stærstu lánshæfismatsfyrirtækjum landsins. Það er þó ekki þar með sagt að allt gangi vel, eða sé auðvelt. Viðskipti erlent 22.8.2012 08:30
Vilja fá lengri frest til að greiða skuldir Antonis Samaras, forsætisráðherra Grikklands, segir nauðsynlegt að gríska ríkið fái lengri tíma til að vinna sig út úr efnahagsþrengingum. Lánadrottnar eigi að gefa þeim lengri frest til að greiða skuldir sínar. Í dag mun forsætisráðherran funda með Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar og forseta Efnahags- og myndbandalags Evrópu, þar sem rætt verður um skuldavanda landsins. Grikkjum ber að skera niður ríkisútgjöld um 11,5 milljarða evra á næstu tveimur árum, að því er fram kemur á vef BBC. Viðskipti erlent 22.8.2012 07:05
Tekjur Best Buy falla saman - keppinautar á netinu að vaxa Gengi hlutabréfa í raftækjaverslunarrisanum Best Buy féll um 9 prósent í dag eftir að uppgjör félagsins fyrir annan fjórðung þessa árs var birt, en það sýndi tekjuminnkun frá fyrra ári um 12 milljónir dala, eða sem nemur um 1,4 milljörðum króna. Viðskipti erlent 21.8.2012 14:35