Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Rakel Sveinsdóttir skrifar 17. október 2026 10:02 Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðstjóri Kosmos, hefur þá krúttlegu venju að hringja alltaf í mömmu sína á leiðinni í vinnuna. Fyrsta ástin var Johnny Depp en í Kringlunni missti hún eitt sinn andann af því að sjá átrúnaðargoðið Óla Stef. Vísir/Anton Brink Í fimmtán ár hefur Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri Kosmos, stefnt að því að fara í ræktina á morgnana. En snúsar frekar. Aðra hverja viku upplifir hún sig eins og vel undirmannaða í Home Alone-kvikmynd.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég er búin að vera á leiðinni að vera týpan sem mætir í ræktina á morgnana í svona fimmtán ár en það hefur ekki komist í rútínu ennþá. Ég vakna um klukkan sjö á morgnana og á það til að snooza eins oft og ég kemst upp með.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég lifi því nútímalífi að vera með börnin mín aðra hvora viku. Svo aðra vikuna snýst allt um skipulag og að koma heimilinu í gang án þess að allir verði of seinir. Það minnir mig stundum á byrjunaratriðið í Home Alone, þar sem hver einasti fjölskyldumeðlimur þarf sinn tíma og sína rútínu og ég er í þessu tilviki vel undirmönnuð. Þegar ég er svo ein þá er það fyrsta sem ég geri er að búa mér til kaffibolla og setja góða tónlist á fóninn. Rólegir morgnar eru minn uppáhaldstími til að núllstilla mig og fara yfir verkefni dagsins og svo klikkar það ekki að ég hringi alla morgna í mömmu á leiðinni í vinnuna.“ Hvaða leikari eða stjarna fékk þig til að missa andann á unglingsárunum? „Ég verð eiginlega að nefna fyrstu ástina mína sem var Johnny Depp í myndinni Cry Baby. Ég var vissulega ekki unglingur en ég held ég hafi verið um fimm ára gömul þegar ég uppgötvaði þessa mynd. Mamma segir að ég hafi horft á hana nánast daglega á tímabili. Þetta er á þessum tíma sem maður lét taka upp myndir á VHS-spólu og mig minnir að nágranninn minn hafi tekið hana upp fyrir mig sem var með áskrift að Stöð tvö. Annars var ég mikil handboltastelpa sem unglingur og ég held ég hafi einu sinni bókstaflega misst andann við að sjá Óla Stef í Kringlunni. Hann var auðvitað átrúnaðargoðið mitt þegar ég æfði með Val.“ Sigríður segir forgangsröðun skipta miklu máli fyrir hana í skipulagi því hún er ein þeirra sem helst vill að allt gerist í gær. Sigríður notar Asana mikið og gervigreindartól, skrifar niður punkta í Notes sem þó enginn annar en hún myndi skilja.Vísir/Anton Brink Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Ég fékk það skemmtilega verkefni í hendurnar að fá að vera partur af því að setja á laggirnar nýtt fjarskiptafélag sem heitir Kosmos og er í eigu Nova-klúbbsins. Við erum búin að vera á fullu að kynna vörumerkið fyrir Íslendingum, segja frá þjónustu og vöruframboði og hvað Kosmos stendur fyrir. Kosmos er fyrsta fjarskiptafélagið á Íslandi sem byggir þjónustu sína nánast alfarið á sjálfvirknivæðingu og gervigreind og nær því að bjóða farsímaáskrift og heimanet á betra verði en hefur verið á markaði. Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtileg vegferð og gaman að fá að vera partur af verkefni eins og þessu frá upphafi þar sem maður fær að sjá félagið vaxa og þroskast. Verkefnin fram undan eru að halda áfram að byggja upp góðan grunn og leyfa félaginu að vaxa á heilbrigðan hátt, hámarka þjónustuferla, bæta vöruframboð og ná góðri fótfestu á miklum samkeppnismarkaði.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Ég er almennt frekar ör og með hugmyndir sem koma á færibandi og því hef ég tilhneigingu til að vilja koma öllum hlutum í verk strax í gær. Þess vegna skiptir skýr forgangsröðun verkefna mig miklu máli. Ég er mikill talsmaður verkefnatólsins Asana og hefur það gert góða hluti í fjölþættri verkefnastýringu og vöruþróun þar sem margir aðilar koma að sama verkefninu. Fyrir mig persónulega þá er ég farin að tileinka mér helstu gervigreindartólin til stuðnings og skrifa mikið niður í Notes í tölvunni sem eru líklegast óskiljanlegir og samhengislausir punktar ef aðrir myndu lesa yfir þá.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Ég held það heyri til undantekninga ef ég er ekki komin upp í rúm fyrir klukkan hálfellefu. Ég er með smá þráhyggju fyrir að ná góðum svefni og reyni að nota öll helstu trikkin í bókinni til að hámarka svefngæði, til dæmis fæ ég mér alltaf magnesíumdrykk fyrir nóttina, var að fjárfesta í góðum myrkvunargardínum og gæti ekki lifað án dagsbirtulampa. Það besta sem ég veit er að fara í kvöldsund, taka góða saunu og fara beint heim upp í rúm.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, telur líklegt að hann sé í skemmtilegasta starfi í heimi. Sem þó er ekki hættulaust eins og góð saga frá Japan lýsir nokkuð vel. 10. október 2026 10:00 Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Brynja Guðjónsdóttir, forstöðukona þjónustu- og markaðsmála hjá Orkunni, er afrekskona í Ikea- og JYSK samsetningu. Brynja segir morgnana heima hjá sér hálfgerðan sirkus. Eða jafnvel morgunlottó. 3. október 2026 10:01 Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás, sér um hafragrautinn í þrautþjálfaðri fjölskyldurútínu á morgnana. Ef hann þyrfti að velja einn lit til að klæðast út ævina, væri það rauður. Enda vel skiljanlegt þegar það er útskýrt nánar. 26. september 2026 10:02 „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Guðríður Sigurðardóttir, ráðgjafi og einn eigenda Attentus, er snoozari þá morgna sem menntaskólalíf sonarins hefur þau áhrif að hún fer seint að sofa og spjallar frameftir. 19. september 2026 10:01 Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðar, verslunar- og menningarmiðstöðvar í Hafnarfirði, byrjar daginn á kaffibolla, fylgist með lífinu á höfninni og sinnir kisunni Múslí. 12. september 2026 10:03 Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Lokanir, lægðir og samviskubit Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Sjá meira
Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, telur líklegt að hann sé í skemmtilegasta starfi í heimi. Sem þó er ekki hættulaust eins og góð saga frá Japan lýsir nokkuð vel. 10. október 2026 10:00
Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Brynja Guðjónsdóttir, forstöðukona þjónustu- og markaðsmála hjá Orkunni, er afrekskona í Ikea- og JYSK samsetningu. Brynja segir morgnana heima hjá sér hálfgerðan sirkus. Eða jafnvel morgunlottó. 3. október 2026 10:01
Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás, sér um hafragrautinn í þrautþjálfaðri fjölskyldurútínu á morgnana. Ef hann þyrfti að velja einn lit til að klæðast út ævina, væri það rauður. Enda vel skiljanlegt þegar það er útskýrt nánar. 26. september 2026 10:02
„Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Guðríður Sigurðardóttir, ráðgjafi og einn eigenda Attentus, er snoozari þá morgna sem menntaskólalíf sonarins hefur þau áhrif að hún fer seint að sofa og spjallar frameftir. 19. september 2026 10:01
Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðar, verslunar- og menningarmiðstöðvar í Hafnarfirði, byrjar daginn á kaffibolla, fylgist með lífinu á höfninni og sinnir kisunni Múslí. 12. september 2026 10:03