Viðskipti erlent
178 179 180 181 182 183 184 185 186 … 334 ›
OECD spáir áfram erfiðleikum í Evrópu Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD, segir Evrópu geta lent í enn meiri vanda ef ekki verður gripið til nauðsynlegra aðgerða til þess að minnka opinberar skuldir þjóðríkja. Samkvæmt nýrri spá OECD, sem Wall Street Journal vitnar til í morgun, mun landsframleiðsla í Evrópu dragast saman um 0,1 prósent á þessu ári. Til þess að hún aukist þurfa ríkisstjórnir að grípa til víðtækra aðgerða, til þess að auka hagvöxt en fyrri spá stofnunarinnar gerði ráð fyrir hagvexti upp á 0,2 prósent. Viðskipti erlent 22.5.2012 11:02
Norðmenn ólíkir Bretum þegar kemur að framtíðarsjóðum Norðmenn njóta góðs af því að hugsa til framtíðar þegar kemur að olíuauði landsins, og aðskilja hann algjörlega frá opinberum sjóðum. Bretar hefðu getað lært mikið af framtíðarhugsjón Norðmanna, segir í myndbandsumfjöllun sem aðgengileg er á viðskiptavef Vísis, þar sem samanburður á stöðu Norðmanna og Breta, þegar kemur að sjóðum fyrir komandi kynslóðir, er til umfjöllunar. Viðskipti erlent 22.5.2012 08:47
Google Chrome er vinsælasti vafri veraldar Nýjustu netmælingar fyrirtækisins StatCounter gefa til kynna að Chrome, netvafri tæknirisans Google, sé nú vinsælasti vafri veraldar. Viðskipti erlent 21.5.2012 21:21
Hrun á markaðsvirði Facebook - allra augu á Morgan Stanley Augu fjárfesta í Bandaríkjunum beinast nú að Morgan Stanley, helsta viðskiptabanka Facebook, en markaðsvirði Facebook hefur verið í frjálsu falli í dag. "Skráningarverðið hefði átt að vera helmingurinn af því sem það var,“ segir Michael Pachter, greinandi hjá fyrirtækinu Wedbush Securites, í viðtali við Wall Street Journal. Viðskipti erlent 21.5.2012 20:30
Skemmtigarðastríð í uppsiglingu Mikið skemmtigarðastríð virðist í uppsiglingu milli Disney og Universal Studios. Í júní nk. mun Disney opna nýjan Cars-skemmtigarð í Kaliforníu sem kostar um 450 milljónir dala, eða sem nemur yfir 56,7 milljörðum króna. Forsvarsmenn Disney vonast til þess að ná að lokka fjölskyldufólk í garðinn í stórum stíl, en garðurinn verður glæsilegur í alla staði, þar sem Leiftur McQueen og félagar verða í aðalhlutverki. Disney fékk um 73 milljónir gesta í átta skemmtigarða á síðasta ári. Viðskipti erlent 21.5.2012 13:58
Yahoo selur hlut í Alibaba fyrir stórar upphæðir Bandaríski netrisinn hefur samþykkt að selja hluta af eignarhluta sínum í kínverska netfyrirtækinu Alibaba Group. Um gríðarlegar upphæðir er að ræða en Alibaba kaupir 20 prósenta hlut Yahoo á rúma sjö milljarða dollara, eða um 898 milljarða króna. Eftir viðskiptin mun Yahoo ennþá eiga 20 prósent í fyrirtækinu. Viðskipti erlent 21.5.2012 10:25
Danir auka þjónustu við BRIC-löndin Danska hagkerfið hefur í sívaxandi mæli snúið sér í það að þjónusta BRIC-löndin svokölluðu, Brasilíu, Rússland, Indland og Kína, þar sem vöxtur hefur verið gríðarlega mikill undanfarin ár, á sama tíma og erfiðleikar hafa verið miklir á alþjóðavettvangi. Viðskipti erlent 21.5.2012 08:52
Fjárfestar óttast áhlaup á evrópska banka Fjárfestar óttast áhlaup á evrópska banka, einkum þá sem eru með höfuðstöðvar í Suður-Evrópu, að því er greint er frá í helgarútgáfu Wall Street Journal. Þrátt fyrir að Seðlabanki Evrópu hafi lánað evrópskum bönkum ríflega þúsund milljarða evra, liðlega 166 þúsund milljarða króna, í lok síðasta árs og byrjun þessa árs, þá hefur áhyggjum fjárfesta ekki verið eytt. Lánin voru veitt á lægri vöxtum en bönkum bauðst á markaði, einkum til þess að þeir gætu endurfjármagnað skuldir ríkissjóða í Evrópu. Viðskipti erlent 20.5.2012 23:41
Kínverjar leyfa Google að kaupa Motorola Kínversk yfirvöld hafa loks gefið sitt lokasvar um að netrisanum Google sé heimilt að ljúka kaupum á farsímaframleiðandanum Motorola. Verðmiðinn er 12,5 milljarðar dala, eða sem nemur 1.587,6 milljörðum króna miðað við núverandi gengi. Kaupin voru endanlega heimiluð eftir að forsvarsmenn Google féllust á skilyrði kínverskra yfirvalda um að Android stýrikerfið standi öllum opið án kostnaðar næstu fimm árin, af því er New York Times greindi frá í dag. Viðskipti erlent 20.5.2012 14:00
Zuckerberg breytti hjúskaparstöðunni í "Giftur" Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, tilkynnti heiminum í gær að hann hefði gengið í það heilaga með því að breyta hjúskaparstöðu sinni á áðurnefndu sköpunarverki sínu Facebook. Viðskipti erlent 20.5.2012 09:54
Skuldastaða evruríkjanna aðalviðfangsefnið Búist er við því að skuldastaða evruríkjanna verði aðalviðfangsefni leiðtoga átta helstu iðnríkja, eða svokallaðra G8 ríkja, þegar þeir hittast nærri Washington í Bandaríkjunum í dag. Obama, forseti Bandaríkjanna, og Francois Hollande, nýr forseti Frakklands, munu kynna Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, áherslur sínar í efnahagsmálum. Þá er búist við því að rætt verði um mögulegt brotthvarf Grikklands úr evrusamstarfinu. Fundurinn hófst seint í gærkvöld, að því er fram kemur í fréttum BBC. Viðskipti erlent 19.5.2012 12:38
Facebook á NASDAQ - fyrstu viðskipti framar vonum Verð á hlutabréfum í samskiptamiðlinum Facebook hækkaði verulega eftir að fyrirtækið var formlega skráð á hlutbréfamarkað í dag. Viðskipti erlent 18.5.2012 16:00
Facebook skráð á markað Samskiptamiðillinn Facebook hefur nú formlega verið skráður á hlutabréfamarkað. Mark Zuckerberg, meðstofnandi og stjórnarformaður Facebook, opnaði NASDAQ markaðinn frá höfuðstöðvum síðunnar í Palo Alto í Kaliforníu klukkan 13:30 að íslenskum tíma. Viðskipti erlent 18.5.2012 14:18
Jamie Dimon kallaður fyrir þingnefnd Jamie Dimon, stjórnarformaður og forstjóri JP Morgan Chase, þarf að svara spurningum bandarískra þingamanna frammi fyrir þingnefnd vegna ótrúlegs taps bankans á viðskiptum með bandarísk fyrirtækjaskuldabréfe, í heild nam það ríflega tveimur milljörðum dala, jafnvirði yfir 250 milljarða króna. Greint er frá þessu á vef Wall Street Journal í dag. Viðskipti erlent 18.5.2012 14:17
Í beinni frá Wall Street - Facebook tekið til viðskipta Viðskipti með hluti í samskiptamiðlinum Facebook á NASDAQ markaðinum í Bandaríkjunum hefjast klukkan 13:15 í dag. Viðskipti erlent 18.5.2012 12:30
Galaxy S III: 9 milljón eintök seld í forpöntunum Samsung Galaxy S III, nýjasti snjallsími Samsung, virðist ætla að slá öll met en um 9 milljón eintök af honum hafa selst í forpöntunum. Galaxy snjallsímarnir eru vinsælustu vörur Samsung en fyrirtækið er nú þegar stærsti snjallsímaframleiðandi veraldar. Viðskipti erlent 18.5.2012 11:40
Facebook á markað - spenna á mörkuðum Mikill eftirvænting er meðal fjárfesta fyrir því þegar hlutir í Facebook verða teknir til viðskipta á skráðum markaði í Bandaríkjunum í dag. Á vef Wall Street Journal kemur fram að eftirvæntingin fyrir nýskráningu hafi ekki verið jafn mikil árum saman, en skráning Facebook er langsamlega stærsta skráning netfyrirtækisins í sögunni þegar horft til markaðsvirðis við skráningu. Félagið verður metið á um 104 milljarða dala, tæplega 13 þúsund milljarða, þegar það verður tekið til viðskipta, en það jafngildir um 38 dölum á hlut. Viðskipti erlent 18.5.2012 08:56
Moody's lækkar lánshæfi banka á Spáni Matsfyrirtækið Moody's lækkaði síðdegis í gær lánshæfiseinkunn sextán spænskra banka. Þetta er enn eitt áfallið sem dunið hefur á Spánverjum undanfarin misseri en efnahagskreppan í Evrópu hefur leikið þá sérstaklega grátt. Ákvörðun Moody's kemur í kjölfar þess að hlutabréfaverð í bankanum Bankia féll um fjórtán prósent á markaði í gær og hefur verðmæti bankans minnkað um helming á tæpum mánuði. Viðskipti erlent 18.5.2012 08:14
Facebook á markað á morgun Viðskipti með hlutabréf í Facebook munu hefjast á morgun. Sjaldan eða aldrei hefur verið beðið eftir nokkru hlutafjárútboði með eins mikilli eftirvæntingu. Búist er við því að eftirspurnin verði mikil og því mun verða seldur 25% stærri hlutur en áður hafði verið áformað að selja. Búist er við því að samkvæmt niðurstöðu útboðsins verði markaðsvirði fyrirtækisins 100 milljarðar dala, eða jafngildi 12600 milljarða íslenskra króna. Hins vegar hafa vaknað efasemdir um það hversu miklum hagnaði fyrirtækið getur skilað. Viðskipti erlent 17.5.2012 20:07
Titringur í Evrópu vegna efnahagsáfalls á Spáni Markaðir í Evrópu hafa allir verið á niðurleið í dag vegna frétta frá Spáni um að skuldabréfaútboð hafi mistekist hrapallega. Samkvæmt niðurstöðum útboðsins er lánsfjárkostnaður tvöfalt hærri en þegar ríkið gaf síðast út skuldabréf. Búist er við því að matsfyrirtækið Moodys muni lækka mat á 21 spænskum banka í kjölfar niðurstöðunnar. Staðan er svo viðkvæm að spænska ríkisstjórnin hefur þurft að gefa út yfirlýsingu um að bankakerfið hafi ekki orðið fyrir áhlaupi. Viðskipti erlent 17.5.2012 14:03
Frakkar munu ekki samþykkja áætlanir ESB að óbreyttu Nýr fjármálaráðherra Frakklands ítrekaði í sjónvarpsviðtali í gær að ný sósíalistastjórn Frakklands myndi ekki staðfesta fjárhagsáætlanir Evrópusambandsins óbreyttar. Ráðherrann, Pierre Moscovici, segir að áætlanirnar verði að miða að því að auka hagvöxt til að Frakkar geti staðfest hann. Fjárhagsáætlunin felur hins vegar aðallega í sér niðurskurð á fjárlögum aðildarríkja. Francois Hollande, nýkjörinn forseti Frakklands, lagði mikla áherslu á það í aðdraganda forsetakosninganna að niðurskurður myndi einn og sér ekki bæta efnahagsástandið á evrusvæðinu. Viðskipti erlent 17.5.2012 09:30
Diablo III loks lentur Tólf ára bið spilara lauk þegar dyr tölvuleikjaverslana víða um heim opnuðu í gærkvöld. Þúsundir spilara þustu þá inn og tryggðu sér eintak af einum eftirsóttasta tölvuleik allra tíma, Diablo III. Viðskipti erlent 15.5.2012 22:00
Áhlaup á gríska banka - 700 milljónir evra teknar út Almenningur í Grikklandi tók út 898 milljónir evra af reikningum grískra banka í gær samkvæmt upplýsingum sem forseti Grikklands, Karolos Papoulias, lét þingmenn hafa í dag og vitnað er til á vef Wall Street Journal í dag. Viðskipti erlent 15.5.2012 21:18
Amazon uppfærir Kindle vörulínuna Vefverslunin Amazon mun uppfæra spjaldtölvur sínar í sumar. Talið er að fyrirtækið muni kynna nýtt Kindle lesbretti sem og nýja og stærri Kindle Fire spjaldtölvu. Viðskipti erlent 15.5.2012 12:10
Facebook hækkar verð á hlutabréfum sínum Samskiptamiðillinn Facebook hefur hækkað áætlað verð á hlutabréfum sínum úr 28 til 35 dollurum í 34 til 38 dollara. Gangi hlutafjárútboðið að óskum mun virði fyrirtækisins fara yfir 100 milljarða dollara. Viðskipti erlent 15.5.2012 11:44
Moody's lækkar ítalska banka Matsfyrirtækið Moody's lækkaði í gærkvöldi lánshæfi 26 banka á Ítalíu á einu bretti. Þar á meðal eru stærstu bankar landsins, Unicredit og Intesa Sanpaolo. Samdráttur hefur verið á Ítalíu eins og víða annars staðar og ríkisstjórnin stendur í viðamiklum breytingum á opinbera geiranum. Bankarnir eru því sagðir mun viðkvæmari fyrir áföllum. Tíu af bönkunum 26 voru færðir í svokallaðan ruslflokk en stóru bankarnir tveir, fóru úr einkunninni A3 og niður í A2. Viðskipti erlent 15.5.2012 10:43
Krugman: Evruragnarrök hugsanlega framundan Paul Krugman, prófessor í hagfræði og Nóbelsverðlaunahafi árið 2008, spáir "evruragnarrökum“ á næstu mánuðum, ekki síst vegna óumflýjanlegs falls Grikklands með tilheyrandi hliðaráhrifum á nágrannaríkin Spán og Ítalíu. Hann spáir því að þetta gerist á næstu mánuðum, ekki árum. Viðskipti erlent 15.5.2012 08:59
Rauðar tölur lækkunar á mörkuðum Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum opnuðu með rauðum tölum lækkunar í dag en áhyggjur fjárfesta vegna pólitískrar óvissu í Suður-Evrópu, þar helst Grikklandi, hafa farið vaxandi undanfarin misseri. Þannig lækkaði Nasdaq-vísitalan í Bandaríkjunum um 0,53 prósent strax við opnun, og var lækkunin öðru fremur rakin til svartsýni á stöðu mála á mörkuðum í Evrópu. Viðskipti erlent 14.5.2012 16:38
The Avengers rýfur milljarð dollara múrinn Ofurhetjumyndin The Avengers er nú fjórða vinsælasta kvikmynd allra tíma en hún hefur halað inn rúmlega milljarði dollara á heimsvísu. Viðskipti erlent 14.5.2012 14:40
Apple hefur selt 370 þúsund iphone á dag í hálft ár Hugbúnaðar-, tölvu- og fjarskiptarisinn Apple hefur átt ótrúlegri velgengni að fagna undanfarna tvo ársfjórðunga, samkvæmt opinberum rekstrarupplýsingum sem fyrirtækið hefur skilað til kauphallarinnar í New York. Mestu munar um sölutekjur af iphone-símunum og ipad-spjaldtölvunum. Í rekstrartölum fyrir síðasta ársfjórðung ársins 2011, sem tekur til fjórtán vikna rekstrartímabils sem lauk um síðustu áramót, seldust 37 milljónir iphone-síma en á fyrsta ársfjórðungi þessa árs seldust 35 milljónir iphone-síma. Salan jafngildir því að 370 þúsund iphone-símar hafi selst á hverjum degi á þessu ríflega hálfs árs rekstrartímabili (196 dagar) í sögu fyrirtækisins. Viðskipti erlent 14.5.2012 14:19