Menning

Ókeypis prufutími í andlitsmeðferð

Snyrtisetrið, húðfegrunarstofa í Domus Medica, býður upp á ókeypis prufutíma í andlitsmeðferð sem er nýjung á Íslandi. Meðferðin, sem stjórnað er af tölvuforriti, felst í því að skynjurum er rennt eftir andlitinu á lágtíðni sem örvar frumurnar og hjálpar þeim að hreinsa úrgang. Húðin þéttist og sléttist og áferðin verður unglegri. Í prufutímanum er unnið með andlitið og hálsinn en boðið er upp á meðferðina fyrir allan líkamann. Árangur af tíu tíma meðferð varir í tvö til þrjú ár. Meðferðin er algerlega náttúruleg og með fylgja krem sem bæta árangurinn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.