Frægir í fjöri yfir framtíðinni Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 17. september 2026 13:32 Halldór Laxness Halldórsson, Hilmar Guðjónsson og Bergur Ebbi Benediktsson voru í góðum gír á fyrirlestraröðinni Stóra breytingin. Víðir Björnsson Það var líf og fjör í Grósku í gærmorgun þegar alls konar fólk úr ólíkum áttum samfélagsins kom saman í morgunbolla og ýmsar skemmtilegar hugleiðingar um framtíðina yfir morgunbollanum. Bergur Ebbi fór meðal annars á kostum og vinur hans, uppistandarinn Dóri DNA, lét sig ekki vanta.
Um var að ræða fyrsta fyrirlestur vetrarins hjá Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, Stóra breytingin, þar sem fjallað var um breytingar og framtíðina. Spurningarnar voru meðal annars: Hvaða breytingar eru í vændum og hvernig getum við undirbúið okkur sem best fyrir það sem tekur við? Christian Bason, Ph.D, sérfræðingur, rithöfundur og fyrirlesari sem er þekktur fyrir frumkvöðlastarf á sviði nýsköpunar og hönnunar, steig á stokk og sömuleiðis Bergur Ebbi Benediktsson, framtíðarfræðingur og rithöfundur, sem hefur um árabil fjallað um áhrif tæknibreytinga, tíðaranda og breyttra samfélagsgilda á líf okkar og sjálfsmynd. Í kjölfarið hófust umræður um framtíðina sem Christian og Bergur Ebbi tóku þátt í ásamt Selmu Rut Þorsteinsdóttur, yfirsköpunarstjóra hjá auglýsingastofunni Pipar og formanni Sambands íslenskra auglýsingastofa, og Halldóru Vífilsdóttur, arkitekt og framkvæmdastjóra Nordic Office of Architecture. Bergur Finnbogason, sköpunarstjóri hjá Fenris Creation, leiddi umræðurnar. Christian Bason er danskur stjórnmálafræðingur og hönnunarhugsuður sem er þekktur fyrir frumkvöðlastarf í nýsköpun og hönnun innan opinbera geirans og í atvinnulífi, fyrst sem stjórnandi MindLab og síðar forstjóri Danish Design Center. Hann hefur um árabil starfað á alþjóðavettvangi við hönnun, nýsköpun, leiðtogastarf og umbreytingar í samfélaginu. Í dag er Bason meðstofnandi Transition Collective auk þess að vera vinsæll fyrirlesari og ráðgjafi um sjálfbærar umbreytingar, leiðtogahæfni og opinbera nýsköpun. Hann er höfundur og meðhöfundur fjölmargra bóka og er með doktorsgráðu frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Hér má sjá vel valdar myndir frá morgungleðinni: Nafnarnir Bergur Finnbogason og Bergur Ebbi í stuði.Víðir Björnsson Hrafnkell Ásólfur Proppé og Borghildur Sturludóttir. Víðir Björnsson Þura Stína Kristleifsdóttir og Þór Sigfússon.Víðir Björnsson Steinunn Þórhallsdóttir, Sigrún Erla Sigurðardóttir og Kolbrún Vaka Helgadóttir.Víðir Björnsson Stefanía Sigfúsdóttir og Pétur Geir myndlistarmaður.Víðir Björnsson Halla Helgadóttir, Gunnþórunn Jónsdóttir og Helga Vigdís Árnadóttir.Víðir Björnsson Kristrún Heiða Hauksdóttir og Arnhildur Pálmadóttir.Víðir Björnsson Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúr, opnar fyrirlesturinn.Víðir Björnsson Kolbrún Vaka Helgadóttir, Hilmar Guðjónsson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson.Víðir Björnsson Rán Flygenring og Gunnar Vilhjálmsson.Víðir Björnsson Helga Guðrún Vilmundardóttir og Þórhildur Helga Hallgrímsdóttir.Víðir Björnsson Erla Grétarsdóttir og Íris Jónsdóttir.Víðir Björnsson Bækur Bergs Ebba sem fjalla um hans vangaveltur um framtíðina.Víðir Björnsson Bergur Ebbi fór á kostum með sínu erindi.Víðir Björnsson Matthías Ásgeirsson og Hrafnkell Ásólfur Proppé.Víðir Björnsson Gestir fylgdust einbeittir með fyrirlestrum.Víðir Björnsson Emilía Borgþórsdóttir og Ingólfur Freyr Guðmundsson.Víðir Björnsson Gunnar Vilhjálmsson og Bergur Finnbogason.Víðir Björnsson Halldóra Vífilsdóttir og Selma Rut Þorsteinsdóttir.Víðir Björnsson Nils Wiberg.Víðir Björnsson Christian Bason flytur erindi fyrir gesti.Víðir Björnsson
Samkvæmislífið Nýsköpun Menning Arkitektúr Tíska og hönnun Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Fleiri fréttir Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira