Menning

Beint flug til Sikileyjar

Heimsferðir bjóða nú beint leiguflug til Sikileyjar í lok september. Á Sikiley er að finna áhugaverða blöndu af öllu því sem ferðamenn helst óska sér, einstaka náttúrufegurð, ótrúlegar fornminjar, fallegar byggingar og söfn ásamt áhugaverðri matarmenningu og blómlegu mannlífi. Hitastigið er notalegt í september og hentar bæði til sólbaða og fyrir þá sem vilja verja tímanum til að skoða eyjuna. Flogið er til Palermo þar sem dvalið er í þrjár nætur, en þá er haldið til austurstrandarinnar og dvalið á ferðamannastaðnum Giardino Naxos í fjórar nætur. Til Íslands er flogið frá Catania-flugvelli á austurströndinni. Áhugaverðar kynnisferðir eru i boði með íslenskum fararstjórum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.