Menning

Norskir og danskir dagar

Norskir dagar á Seyðisfirði eru haldnir um helgina en dagarnir eru haldnir í tengslum við fæðingardag Ottos Wathne, föður Seyðisfjarðar. Áhersla verður á tengslin við Noreg ásamt kynningu á norskri menningu. Tónlistarfólk verður í Bláu kirkjunni og víðar. Sútunarkonur frá Noregi sýna skinn og sútun, familifest, markaður, kertafleyting, ball og margt fleira.

Héraðs-, bæjar- og uppskeruhátíðin Ormsteiti 2004 á Egilsstöðum verður sett á morgun, föstudaginn 13. ágúst. Þetta er ellefta árið sem Ormsteiti er haldið en hátíðin á sér engan líka þegar kemur að íslenskum bæjarhátíðum. Ormsteiti stendur yfir í tíu daga samfleytt 13.- 22. ágúst og verður eitthvað um að vera á hverjum degi vítt og breitt um Fljótsdalshérað. Sjá nánar á egilsstadir.is

Margt verður í boði á dönskum dögum í Stykkishólmi um helgina. Ratleikur verður haldinn á vegum Lions, lúðrasveit marserar um bæinn með skrúðgöngu, golfklúbburinn Mostri heldur opið gólfmót, danski sendiherrann verður á meðal gesta, bryggjuball verður haldið auk flugeldasýningar. Sjá nánar á stykkisholmur.is/danskir dagar.

Árleg hátíðahöld í Djúpuvík - Djúpavíkurdagar verða haldnir um helgina. Farið verður í ferð um gömlu síldarverksmiðjuna með leiðsögn og endað á sögusýningunni. Rakin verður saga verksmiðjunnar og leið síldarinnar í gegnum hana, seldar verða grillaðar pylsur og gos í garðinum við hótelið, leikir fyrir börnin, boðið verður upp á stuttar kajakasiglingar um víkina ef veður leyfir, kvöldvaka, varðeldur, dorgveiðikeppni, listaverkasýning og margt fleira.

Berjanótt verður haldin hátíðleg á Ólafsfirði um helgina. Berjanótt er sannkölluð tónlistarveisla og er tónlistin sem spiluð verður í klassískum anda. Hátíðin mun opna í Ólafsfjarðarkirkju með verkum Mozarts, Beethoven og Debussy. Nánar um hátíðina er hægt að finna á vef Ólafsfjarðarbæjar, olafsfjordur.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.