Beðið eftir jólunum 18. nóvember 2004 00:01
Í Garðheimum er biðin langa hafin eftir jólunum og fjöldi góðra og girnilegra jólavara stendur til boða. Þar má nefna sérlega skemmtilega rokkandi jólasveina, engla eða snjókarla sem dilla sér við jólalögin og fást nú með 50% afslætti á meðan birgðir endast. Jólaseríur fást í miklu úrvali og er 50% afsláttur af völdum seríum. Jólastjörnur eru ómissandi prýði í jólaundirbúningnum á flestum heimilum og þá frekar tvær en ein enda fást tvær jólastjörnur á 950 krónur. Að auki eru fallegar kertaskreytingar í miklu úrvali. Þeir sem kjósa að leggja persónulega hönd á jólakortin til annars en bara að skrifa undir finna í Garðheimum efni til fjölbreyttrar kortagerðar og þar er einnig að finna sérlega skemmtilegt skreytingaefni. Svo nú er bara að koma sér í jólagírinn, bretta upp ermarnar og byrja að undirbúa jólin. Viðskiptavinir sem eiga erindi í Garðheima um helgina geta svo gætt sér á ilmandi kaffi og vöfflum.
Jól Mest lesið Prófaði að grilla hamborgarhrygg Jól Yljandi jólaglöggskaffi Jólin Himneskir jólasöngvar við tindrandi kertaljós í kirkju Jól Óvíst hvort Hlyngerðið verði lýst Jól Ó, hve dýrðleg er að sjá Jól Þrettándagleði víða á höfuðborgarsvæðinu í dag Jól Jóladagatal Vísis: Fermingin hans Bjarka Jólin Kalkúnninn hennar Elsu Jól Brekkur til að renna sér í Jólin Hátíð í bæ Jól