Sport

Bayern jafnaði í lokin

Toppliðin í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, Bayern Munchen og Schalke gerðu bæði jafntefli í leikjum sínum í dag. Bayern slapp þó með skrekkinn og heldur toppsætinu naumlega eftir 2-2 jafntefli við Stuttgart þar sem Guerrero jafnaði metin á 89. mínútu eftir að Stuttgart hafði leitt leikinn. Stuttgart hefði með sigri komist á toppinn en liðið situr þess í stað í 3. sæti og þremur stigum á eftir toppliðunum tveimur. Schalke er jafnt Bayern á toppnum með 34 stig en lakari markatölu en liðið gerði 1-1 jafntefli við Freiburg. Þórður Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Bochum sem er í þriðja neðsta sæti eftir tap á heimavelli fyrir Hamburg, 1-2. Úrslit dagsins í Þýskalandi Bayern Munchen 2 - 2 Stuttgart Bochum 1 - 2 Hamburger SV Hannover 0 - 1 Hertha Berlin Hansa Rostock 1 - 1 Borussia Dortmund Mainz 0 - 1 Nurnberg Schalke 1 - 1 Freiburg Werder Bremen 1 - 1 Kaiserslautern



Fleiri fréttir

Sjá meira


×