Tíska og hönnun

Gerði góð kaup á Flórída

Auður Ólafsdóttir æfir hópfimleika með Stjörnunni og veldur það henni ansi miklum hausverk þegar hún er beðin um að draga fram uppáhaldsflíkina sína.

"Ég átti í miklum erfiðleikum með að finna eitthvað sem er algjörlega ómissandi í fataskápnum mínum en fann loksins pils sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég keypti það á Flórída fyrir tveimur árum síðan. Ég sá það í verslunarmiðstöð og gekk síðan heilan hring um miðstöðina áður en ég keypti það. Mér fannst ekki mjög praktískt að labba inn í fyrstu búðina í verslunarmiðstöðinni og kaupa eitthvað," segir Auður og hlær.

"Pilsið er svart með túrkísbláum blómum á og missítt. Það er í sparilegri kantinum þannig að ég nota það þegar ég fer eitthvað fínt út að skemmta mér," segir Auður sem var aldeilis framsýn þar sem túrkísblár er aðaltískuliturinn í sumar. "Já, ég hugsaði einmitt "þetta verður mjög fínt árið 2005"," segir Auður og hlær dátt af þessum praktísku pilsakaupum.

Uppáhaldspilsið hennar Auðar var mjög ódýrt og segir Auður verðlagið á Flórída vera ansi lágt. "Það er voðalega gott að kaupa föt þar. Annars kaupi ég mér bara föt þegar ég dett niður á eitthvað sem mér líkar vel við. Ef mig vantar eitthvað þá fer ég á stúfana að kaupa -- en ég er alls ekki alltaf að kaupa mér föt."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.