Siggi Chaplin allur Magnús Jochum Pálsson skrifar 15. október 2026 16:15 Sigurður Brynjólfsson var hluti af hafnfirsku bæjarlífi um áratugabil. Sigurður Brynjólfsson, betur þekktur sem Siggi Chaplin, lést á Landspítalanum 30. september, 78 ára að aldri. Sigurður var Gaflari, ötull og dyggur stuðningsmaður FH og ákveðinn fasti í hafnfirsku bæjarlífi.
Sigurður fæddist 19. mars 1948, sonur hjónanna Brynjólfs Brynjólfssonar vélstjóra og Jóhönnu Guðmundsdóttur og yngstur fimm bræðra. Sigurður var borinn til grafar frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 12. október síðastliðinn. Hann lætur eftir sig einn eldri bróður og frændfólk. Batt ekki bagga sína sömu hnútum og aðrir Ýmsir hafa minnst Sigurðar undanfarna daga, þar á meðal Margrét Lilja Vilmundardóttir, prestur í Fríkirkjunni í Hafnarfirði, sem ritar falleg minningarorð. „Það var skrítið og erfitt að kveðja elsku Sigurð Brynjólfsson, Sigga, hinstu kveðju en hann var mikill vinur okkar allra sem störfum í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Siggi var svo dýrmætur og fallegur fasti í okkar lífi. Alltaf einhvern veginn nálægur, það var svo notalegt að sjá hann ganga framhjá kirkjunni alla daga á leið sinni til eða frá heimili sínu,“ skrifar Margrét. „Það þurfti ekki meira til en bara eitt lítið innlit frá Sigga á skrifstofurnar okkar hér hinum megin við götuna og dagurinn varð betri. Stundum var hann bara rétt aðeins að reka inni nefið - athuga hvernig við hefðum það. Ekkert alltaf með orðum... enda komst ég að því að orð eru furðu óþörf, allavega stundum ofmetin. Það var ekki erfitt að sjá einlægnina, hlýjuna og glettnina sem fylgdi honum.“ Siggi og Milla prestur. „Aðra daga var það örstutt spjall á fallega rauða bekknum okkar hér fyrir neðan kirkjuna, sem hann einmitt vígði í október á síðasta ári með orðunum „áfram FH“ og „kirkjan okkar er í góðum höndum“. Mér þótti vænt um það,“ skrifar hún. „Ég held að það sé óhætt að segja það hér að kynni okkar við suma hafa meiri áhrif á okkur en við gerum okkur grein fyrir. Einstaka sinnum getur það komið fyrir – ef maður er heppin - að kynnast fólki sem gefur meira af sér en það tekur til sín. Og það oftast án þess að vera eitthvað sérstaklega að reyna. Siggi var ekkert að reyna. Það var engin tilgerð í honum. Hann var löngu búin að átta sig á því að það er bara best að vera maður sjálfur,“ skrifar Margrét. Hann hafi haft samfélagslegt mikilvægi. „Siggi var litríkur karakter sem fór ótroðnar slóðir og batt ekki bagga sína sömu hnútum og aðrir. Ég held að við getum öll verið sammála um það að lífið væri litlaust ef við værum öll eins - við þökkum fyrir alla liti lífsins, við þökkum fyrir Sigga og allt það fallega sem hann gaf okkur með lífi sínu. Megi góður Guð blessa minningu elsku Sigga,“ skrifar hún að lokum. Siggi með Einari presti. „Þannig mann er gott að hafa í sínu liði“ Annar sem minnist Sigurðar er Orri Þórðarson, FH-ingur og knattspyrnuþjálfari, sem rifjar upp þegar Sigurður setti upp gervihnattadisk í Kaplakrika. „Sigurður Brynjólfsson, Siggi Chaplin, er látinn. Frá því að ég man eftir mér var Siggi á öllum FH-leikjum og maður vissi fljótt hver þessi maður var með sitt síða dökka hár,“ skrifar Orri. Sigurður var með einkennandi svart skegg á árum áður. „Í níunni keypti Siggi gervihnattadisk og setti hann auðvitað upp í Kaplakrika. Þar með gafst okkur krökkunum tækifæri að horfa á fótbolta frá öðrum löndum; Seria A, La Liga og fleira. Siggi var líka mikill stuðningsmaður Brighton and the Howe Albion og stóð með því liði alla tíð þrátt fyrir misjafnt gengi. Þannig mann er gott að hafa í sínu liði. Hafðu þökk fyrir allt og allt kæri vinur.“ Siggi var FH-ingur.
Andlát Hafnarfjörður FH Mest lesið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ólétt 52 ára Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Fleiri fréttir Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Sjá meira