Játaði að hafa banað hermanni 27. maí 2005 00:01
Scott Ramsey játaði fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag að hafa orðið 33 ára dönskum hermanni að bana á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík í nóvember í fyrra. Málið var þingfest í héraðsdómi í dag. Scott Ramsey er ákærður fyrir stórfellda líkamsárás með því að hafa aðfaranótt 13. nóvember í fyrra á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík slegið danska hermanninn Flemming Tholstrup í hálsinn hægra megin með þeim afleiðingum að slagæðin rifnaði sem leiddi til heilablæðingar sem dró hann til dauða. Ramsey er skoskur og hefur verið búsettur hérlendis, en hann lék meðal annars knattspyrnu með Grindavík og KR. Hann játaði sök við þingfestingu málsins fyrir héraðsdómi og á hann yfir höfði sér allt að 16 ára fangelsi. Bótakröfur á hendur honum nema tæpum þremur milljónum króna en krafist er tveggja milljóna króna í miskabætur og tæprar milljónar í skaðabætur vegna greiðslu útfararkostnaðar. Ramsey neitaði ekki bótakröfunum heldur fól verjanda sínum að tjá sig um þær við meðferð málsins. Aðalmeðferð fer fram 22. september í haust.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Erlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent „Ekkert nema gott að segja fyrir gróðurinn og sálarlíf landsmanna“ Veður Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Fleiri fréttir Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Óvíst hvar börnin lenda í haust Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Sjá meira