Sport

Golf: Landsliðið hóf leik í morgun

Karlalandsliðið í golfi hóf leik í morgun á Evrópumóti áhugamanna í golfi en leikið er á á Hillside-strandvellinum í Southport á Englandi. Örn Ævar Hjartarson, Heiðar Davíð Bragason, Magnús Lárusson, Ottó Sigurðsson, Sigmundur Einar Másson og Stefán Már Stefánsson skipa liðið. Tuttugu þjóðir taka þátt í keppninni. Íslenska liðið er sem stendur í þrettánda sæti en spilaður er höggleikur í dag og á morgun. Átta efstu þjóðirnar komast í a-úrslit en 9.-16. sæti í b-úrslit



Fleiri fréttir

Sjá meira


×