Sport

Björn lék á 69 höggum

Daninn Thomas Björn er með fjögurra högga forystu á Opna evrópska mótinu í golfi. Björn lék þriðja hringinn í gær á 69 höggum en leikið er á Írlandi á sama velli og næsta Ryder-keppni verður haldin á næsta ári. Frakkinn Raphael Jaquelin og Englendingurinn Jonathan Lomas eru jafnir í öðru sæti á fjórum höggum undir pari fyrir lokahringinn í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×