Sport

Jim Furyk vann Western mótið

Bandaríkjamaðurinn Jim Furyk sigraði á Western-mótinu í golfi sem lauk í Lemont í Illinois í gærkvöldi.  Furyk tókst að verjast áhlaupi Tiger Woods sem varð annar, tveimur höggum á eftir.  Um síðustu helgi hafði Furyk þriggja högga forystu þegar 5 holur voru eftir en honum tókst í gærkvöldi að halda forystunni og sigra á sínu fyrsta móti í tvö ár.  Árið 2003 sigraði hann á Buick mótinu.  Tiger Woods, sem þrisvar hefur sigrað á þessu móti, byrjaði illa en lék í gær á 5 höggum undir pari.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×