Sport

Þrír nýliðar í hópnum hjá Viggó

Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik hefur valið landsliðshópinn sem tekur þátt í æfingamótinu í Póllandi síðar í þessum mánuði. Liðið fer fyrst í æfingabúðir til Magdeburg og leikur þvínæst við Pólverja, Dani og Norðmenn. Markverðir eru Gísli Guðmundsson ÍR, Birkir Ívar Guðmundsson Haukum og Hreiðar Guðmundsson KA. Aðrir leikmenn eru Vignir Svavarsson Skjern, Sigfús Sigurðsson Magdeburg, Markús Máni Michaelsson Dusseldorf, Guðjón Valur Sigurðsson Gummersbach, Snorri Steinn Guðjónsson Minden, Ólafur Stefánsson Ciudad Real, Einar Hólmgeirsson Grosswallstadt, Þórir Ólafsson Lubecke, Alexander Petersons Grosswallstadt, Jailesky Garcia Göppingen, Róbert Gunnarsson Gummersback, Ernir Arnarsson Aftureldingu og Sigurður Eggertsson Val. Athygli vekur að Ásgeir Örn Hallgrímsson og Arnór Atlason eru ekki í hópnum, en þeir Ernir Arnarsson. Gísli Guðmundsson og Sigurður Eggertsson eru allir nýliðar í hópnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×