Níðingar í framboð 19. júlí 2006 07:15 Marthijn Uittenbogaard Formaður Flokks bræðralags, frelsis og fjölbreytni.
Hollenskur dómstóll neitaði á mánudag að banna stjórnmálaflokk barnaníðinga, sem berst fyrir því að kynlífsaldur verði lækkaður niður í tólf ár úr sextán árum. Dómarinn sagði það vera rétt kjósenda að dæma um lögmæti stjórnmálaflokka. Ad van den Berg, 62 ára gjaldkeri flokksins, sagðist ekki hissa á úrskurðinum. Við erum ekki að gera neitt ólöglegt, svo það er engin ástæða til að stöðva okkur. Van den Berg var dæmdur árið 1987 fyrir kynferðisofbeldi gegn ellefu ára dreng, en slapp með sekt og skilorðsbundinn dóm. Hann var hrakinn burt frá hjólhýsagarðinum þar sem hann bjó þegar í ljós kom að hann var í flokknum. Ritari flokksins, sem er 28 ára, var rekinn úr háskóla, þar sem hann lærði uppeldisfræði, þegar þáttur hans í málinu kom í ljós. Flokkurinn, sem kallast Flokkur bræðralags, frelsis og fjölbreytni, inniheldur einungis þrjá meðlimi sem vitað er um. Ólíklegt er talið að hann nái þingsæti, en til þess þyrfti hann um 60.000 atkvæði. Skoðanakannanir sýna að hann fengi færri en þúsund. Lögmaður andstæðinga flokksins segir flokkinn misnota málfrelsið og særa alla þá sem hafi orðið fyrir barðinu á kynferðislegu ofbeldi.
Erlent Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira