Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Agnar Már Másson skrifar 1. nóvember 2026 20:40 Disney eru sagt hafa átt í góðu starfi við lögregluna í tengslum við málið. Vísir/EPA Sautján starfsmenn Disney World og Universal Studios eru meðal þeirra 281 sem grunaðir eru í umfangsmiklu lögreglumáli í Flórída í Bandaríkjunum er varðar mansal og kynferðisbrot gegn börnum.
Grady Judd lögreglustjóri í Polk-sýslu greindi frá því á blaðamannafundi í gær, samkvæmt umfjöllun CBS, að lögregluaðgerðin hefði staðið yfir í sjö daga. Lögreglumenn hefðu beint sjónum sínum að meintum kynferðisbrotamönnum sem ferðast til þess að hitta börn til að eiga í ólöglegu samræði við þau og stunda mansal. Hann sagði að 31 sakborningur hefði ferðast til sýslunnar til þess að eiga í samræði við barn. Judd tók fram að þrettán hinna grunuðu væru starfsmenn Disney World og fjórir væru starfsmenn Universal Studios. „Það er gríðarlega óhugnanlegt þegar við rekumst á viðbjóðslega barnaníðinga eins og þessa sem vilja ólmir stunda kynlíf með börnum. Það er þess vegna sem við ráðumst í slíkar leyniaðgerðir,“ sagði hann í yfirlýsingu. Hann tók fram að 32 hinna grunuðu í málinu væru óskráðir innflytjendur og þar af hefðu sextán þegar verið afhentir innflytjenda- og tollaeftirliti Bandaríkjanna, eða ICE. Þá hefðu 24 af hinum grunuðu tekið skotvopn með sér þegar þeir hyggðust hitta börn og níu hefðu verið á skilorði. Lögreglustjórinn tók fram að einn hinna grunuðu væri fótboltaþjálfari hjá Davenport Titans og þjálfaði þar börn á aldrinum 11 til 14 ára. Hann hafi talið sig vera á leiðinni að hitta 14 ára stelpu. Annar sakborningur hafi verið í virkri herþjónustu. Annar maður hafi verið fyrrverandi starfsmaður Disney þar sem hann klæddist búningi sem karakter úr Mikka Mús. Sá hafi einnig haft svokallað „bleyjublæti“. Lögreglumenn höfðu hendur í hári hans með tvo fulla bakpoka af bleyjum, að sögn lögreglustjórans. Jafnframt hafi annar starfsmaður Disney verið handtekinn þar sem hann taldi sig vera að 13 ára strák, sem reyndist vera (fullorðinn) rannsóknarlögreglumaður. Sá hafi geymt vinnufötin sín í bílnum sínum á meðan hann ætlaði að hitta hinn meinta dreng. Disney vann með lögregluyfirvöldum að málinu, að sögn Judd.
Disney Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sjá meira