Erlent

Ísrael var ekki gefið "grænt ljós" á árásir

Áframhaldandi árásir Ísraelskur hermaður ber sprengju að skriðdreka áður en sveit hans hélt inn í Líbanon í gær. Á sjöunda hundrað Líbanar hafa farist í átökunum undanfarnar rúmar tvær vikurnar og yfir fimmtíu Ísraelar.
Áframhaldandi árásir Ísraelskur hermaður ber sprengju að skriðdreka áður en sveit hans hélt inn í Líbanon í gær. Á sjöunda hundrað Líbanar hafa farist í átökunum undanfarnar rúmar tvær vikurnar og yfir fimmtíu Ísraelar. MYND/AP

Ísraelar fengu ekki „grænt ljós“ á áframhaldandi árásir á Líbanon, þótt engin niðurstaða hafi fengist á alþjóðaráðstefnunni um Líbanon í Róm á miðvikudag. Þetta kom fram í máli Adam Ereli, talsmanns utanríkisráðherra Bandaríkjanna í gær. Tók hann þar undir með Erkki Tuomioja, talsmanni Evrópusambandsins, sem lét sömu orð falla í fyrradag.

Haim Ramon, dómsmálaráðherra Ísraels, hélt þessu hins vegar fram á fimmtudag, enda hefur árásum Ísraela á Líbanon ekki linnt þó dragi nú úr mannfalli þar sem flestir hafa flúið átakasvæðin. Liðsmenn Hizbollah-samtakanna svara áfram í sömu mynt og skutu nýrri tegund öflugra sprengja á Ísrael í gær.

Sameinuðu þjóðirnar ákváðu í gær að færa óvopnaða alþjóðlega eftirlitsmenn sína frá bækistöðum sínum í Suður-Líbanon. Ákvörðunin var tekin eftir að Ísraelar skutu ítrekað á bækistöðvar eftir­litsmanna síðastliðinn þriðjudag, þrátt fyrir ítrekuð tilmæli frá SÞ um að hætta þeim. Fjórir eftirlitsmenn fórust í árásunum.

Talsmenn SÞ hafa farið fram á að taka þátt í rannsókn hersins á þeim árásum, en Dan Gillerman, sendiherra Ísraela hjá SÞ, sagði í gær það ekki koma til greina.

George W. Bush tilkynnti á blaðamannafundi í Wahington í gær að Condoleezza Rice, utan­ríkisráðherra Bandaríkjanna, færi aftur til Mið-Austurlanda nú um helgina. Haft var eftir Rice að hún ætlaði sér að koma á „varanlegu“ vopnahléi.

Átökin valda sífellt meiri usla í alþjóðapólitík og hafa nær öll þau ríki sem teljast til bandamanna Bandaríkjanna, auk Evrópusambandsins og SÞ, kallað eftir tafarlausu vopnahléi og lofað Líbanon aðstoð.

Bandaríkjamenn hafa hins vegar sagt að áður en til vopnahlés komi verði að semja um varanlegan frið milli Hizbollah og Ísraels.

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fundaði með George W. Bush Bandaríkjaforseta í gær og sagðist ætla að leita samþykktar öryggisráðs SÞ snemma í næstu viku á ályktun sem gæti orðið grundvöllur vopnahlés. Blair sætir nú auknum þrýstingi heima fyrir um að sýna samstöðu með ESB og SÞ, frekar en Bandaríkjunum.

Sameinuðu þjóðirnar munu halda fund á mánudag með þeim löndum sem gætu boðist til að senda liðsmenn í alþjóðlegt friðargæslulið sem sent yrði til Líbanons.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×